Heimilisritið - 01.12.1947, Side 61
Morðið í klettavíkinni
Framhaldssaga eftir Agatha Christie
Nýir lesendur geta byrjað hér:
A Smyglaraeynni, sem tengist við Suð-
ur-England með örfirisgranda. var fyrir fá-
einum árum stofnað rólegt og rikmannlegt
sumarhótel. Gestir þeir, sem dvelja þar
þetta sumar og komið liafa við sögu, eru
þessir:
Ilercule Poirot er nafnkunnur, belgiskur
einkaspæjari.
Arlena (Stewart) og Kenneth Marshall,
ásamt Lindu, dóttur Kenneths af fyrra
hjónabandi. Arlena var áður leikkona og á
vafasama fortíð; er fögur og mikið pilta-
gull. Kenneth er hlédrægur og myndarlegur
kaupsýslumaður. Linda er fremur ólánlegur
unglingur og ber haturshug til Arlenu.
Rosamund Damley er fræg tízkusauma-
kona, skynsöm og viðfelldin; æskuvinkona
Kenneths.
Patrick og Christine Redjem. Ung hjón.
Hann virðist vera hrifinn af Arlenu, og hin
sakleysislega kona hans hefur veitt því at-
hygli.
Barry majór er uppgjafa herforingi og
ekki ónæmur fyrir fögrum konum.
Odell Gardener og frú. Amerísk, mið-
aldra hjón, fremur viðfelldin. Hún er mál-
ug mjög, en hann fámáll og auðsveipur.
Vngfrú Brewster er nokkuð hryssingsleg
piparmey.
Séra Stephan Lane er taugaóstyrkur
prestur.
llorace Blatt, framhleypinn kaupsýslu-
maður.
FJÓRÐI KAPÍTULI
I.
DAGIJRINN 25. ágúst rann
upp lteiður og sólríkur. Jafnvel
hinir morgunlötustu fóru
snemma úr bólum sínum þann
morgun.
Klukkan átta sat Linda við
snyrtiborð sitt. A borðinu stóð
lítil, þykk bók í skinnbandi upp
á endann og gapti. Linda horfði
á andlit sitt í speglinum. Varirn-
ar voru eins og mjótt strik og
augun starandi.
Ilún dró andann þungt og
sagði:
,,Ég geri það ...“
Hún færði sig úr náttfötun-
um og í sundbol. Síðan fleygði
hún yfir sig baðslopp og lét á
sig gúmmískó.
Ilún læddist út úr herberginu
og eftir ganginum. Fyrir enda
hans voru dyr, og þaðan lágu
tröppur niður klaþpirnar undan
gistihúsinu. Það voru mjóar
járntröppur, sem náðu alveg nið-
ur í flæðarmál. Þær voru ætl-
HEIMELISRITIÐ
59