Heimilisritið - 01.12.1947, Page 66

Heimilisritið - 01.12.1947, Page 66
láta verða af því að fara þangað á morgun, Odell“. „Já, elskan“, sagði Gardener. Hercule Poirot spurði ungfrú Brewster: „Ætlið þér ekki í sjóinn?“ „Eg fékk mér dýfu í morgun. Það var þá nærri búið að rota mig með flösku, sem hent var út um glugga á hótelinu“. „Það er stórhættulegt að henda svona hlutum“, sagði frú Gardener. „Einn kunningi minn fékk heilahristing af tannpasta- túpu, sem kom í höfuðið á hon- um, þar sem hann gekk eítir götunni. Hann var lengi að ná sér“. Hún fór að leita í hnvkla- pokanum. „Æ, Odell, ég hef víst gleymt öðrum rauða hnyklinum. Hann er í annarri skúffunni, eða kannske þeirri þriðju, í kommóð- unni í svefnherberginu okkar“. „Já, elskan“. Gardener fór að leita að hnyklinum. Frú Gardener hélt áfram: „Stundum finnst mér eins og menn fari full gapalega að, nú á dögum. Hvernig er það ekki með alla þessa vélamenningu, og all- ar þessar rafbylgjur í loftinu. Eg held að það rugli sansana; ég hef það einhvernveginn á tilfinning- unni, að nýr boðskopur sé í vændum. Eg veit ekki, Poirot, hvort þér hafið nokkurn áhuga á pýramída-spádómunum?“ „Nei, ég er laus við það“. „Jæja; en ég get fullvissað yð- ur um, að þeir eru mjög athyglis- verðir. Við skulum nú taka til dæmis Moskvu, sem er réttum þúsund mílum norðar en — hvað var það nú aftur — Nineve? — jæja, maður tekur sirkil, og þá kemst maður að hinum undra- verðustu niðurstöðum — það hefur áreiðanlega verið einhver æðri innblástur sem Egyptarnir urðu fyrir. Og þegar kemur að talnafræðinni, ja þá verður það allt deginum Ijósara, svo að ég skil ekki hvernig nokkur getur efast um það“. Ilvorki Poirot eða Emily Brewster sáu ástæðu til að gera grein fyrir afstöðu sinni til þess- ara dulrænu vísinda. Poirot horfði með raunasvip á skóna sína. „Hafið þér vaðið í skónum, Poirot?“ sagði Emily Brewster. „Það kom slvs fvrir mig“. Emily Brewster lækkaði róm- inn. „Hvar er blóðsugan í dag? Hún er seint á ferli“. Frú Gardener, sem hafði rennt augunum, í áttina til Pat- rick Redfern, sagði í hálfum hljóðum. „ITann er eins og þrumuský. Ó, drottinn minn. það er ósköp að vita það. Hvað skyldi Mar- shall hugsa um þetta allt sam- 64 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.