Heimilisritið - 01.06.1948, Page 25
brýnn á kínverska konu í bláum
kyrtli og rauðum buxum, er stóð
skammt frá: „Þér lofuðuð að
koma ein!“ sagði hann.
„Það vera bara Li. Hún alltaf
með mér. Hún ekki sjá eða
heyra!“ Hún greip um handlegg
hans og dró hann með sér inn í
garðinn. Þau sáu ekki til Li og
gengu fram og aftur í garðinum
milli fagurra blómabeða.
„Der-riek — DerrickP Eg
segja það vel? Ég elska þig!“
„Alveg frá fyrstu stundu,
Lao?“
„Þegar mín augu sjá þig —
minn mann — þegar ég sjá þig,
ég elska þig. og ég vita það vera
mitt sumar!“
„Elskan litla. Og ég var
hræddur um að hafa móðgað þig
þegar ég sagði: „Tndæla, litla
barn”. Fyrirgefðu mér, Lao!“
„N’ im'porte“, sagði hún. Hann
tók hana í faðm sér, og vegna
þess hve hún var lítil, lyfti hann
henni upp og kyssti hana á rjóð-
an munninn.
Þetta var hið fyrsta af mörg-
um, mörgum leynilegum stefnu-
mótum,
„TÍMI blómanna“ var brátt
liðinn, og enn var Carey sem
heillaður af litlu, kínversku kon-
unni. Hann hafði gleymt ráði
vinar síns, hann hugsaði aðeins
um hana, daufan kamelíuilminn,
sem ætíð fylgdi henni, skæra
barnsrödd hennar. Hann hitti
hana hvað eftir annað í hofgarð-
inum. Og svo, eftir marga ásta-
fundi, eftir mikla varúð, varð
þeim á örlagaríkt glappaskot.
„Derrick, hann fara burt —
hann vera burtu þrjá daga“,
hvíslaði hún. Það var rökkvað'
í garðinum, stjörnurnar gægðust
milli trjánna, og litlu ldukkurnar
undir þaki hofsins ómuðu lágt í
kvöldblænum.
„Já, og hvað svo, Lao?“
„Þú koma til mín, elskan.
Miðdaginn af þessum þremur —
það vera alveg öruggt, enginn
■\ita um það. Li sýna þér litla
leynistigann upp í herbergi
mitt“.
Carey var tregur, því að hann
fyrirvarð sig fyrir að koma þann-
ig til hússins, þar sem liann hafði
verið gestur, en hún sagði:
„Enginn fá það að vita!“
„En Kiang — fer hann með
herra Chu?“
„Ég ekki vita. en n’importe,
hann hafa sitt herbergi á sömu
hæð og ég, en hann vita ekkert,
dyrnar hans lokaðar og hann
alltaf gera svona, tapp, tapp,
tapp“, og hún hreyfði granna
fingurna eins og hún væri að
skrifa á ritvél.
„Ég er ekki hræddur mín
vegna, lieldur vegna þín“, sagði
Carey.
HEIMILISRITIÐ
23