Heimilisritið - 01.06.1948, Side 42
En Helen var þegar farin út.
HÁLFTÍMA síðar kom Gord-
on inn til föður síns. -
„Jæja, Gordon! Eg vona, að
þú iðrist framkomu þinnar í
gærkvöldi“, hóf gainli maðurinn
máls.
„Já, pabbi“, svaraði Gordon,
„ég iðrast þess, að' ég notaði ekki
tækifærið til að segja þér — og
Vivienne — og þeim öllum, að
við IJelen Waugham ætlum að
giftast eins fljótt og unnt er“.
„Veiztu hvað þú átt á hættu
— þér ætti að vera Ijóst, að ég
gef ekki samþykki mitt“.
„Auðvitað, og mig tekur það
sárt. En við því er ekkert að
gera — það' breytir engu“-.
„Viltu í raun og veru eiga það
á hættu, að ég reki þig frá verzl-
uninni?“
Gordon greip um stólbak svo
hnuarnir á fingrum hans hvítn-
uðu.
„Pabbi, þú veizt hve mikils
virði verzlunin er mér. Þá hlýtur
þú að skilja hve heitt ég ann
Helen, fyrst ég. . . .“
„Já, já. drengur minn. En þú
átt ekki um neitt að velja. Ung-
frú Waugham fól mér að segja
þér, að hún vildi elcki giftast þér,
ef þú hættir í verzluninni“.
„Pabbi, þú lýgur!“
„Hvað vogarðu þér!“
„Hvað, sem er. Pabbi, hefur
þú ekki verið ungur sjálfur og
hætt öllu fyrir þá, sem þú unnir?
Eg trúi því ekki, að Helen svíki
mig“.
IJannaway leit á son sinn —
hve ákafur hann var. Svo líkur
honum sjálfum, er hann var
ungur. Hann þagði og átti í bar-
áttu við sjálfan sig. Hið góða
hjartalag hans varð ágirndinni
yfirsterkara, hann leit alvarlega
á son sinn.
„Gordon, viltu hringja niður
í búðina, svo þú fáir að vita
sannleikann af hennar eigin vör-
um“.
„UNGFRÚ Waugham“, sagði
Hannaway. „Viljið þér lýsa því
yfir í áhevrn sonar míns, að þér
viljið ekki giftast honum, ef
hann yfirget'ur verzlunina?“
„Helen!“
Gordon flýtti sér til hennar og
tók blíðlega utan um hana og
horfði í augu hennar.
„Helen, nú skil ég. Þú ætlaðir
að afsala þér öllu tilkalli til mín
— til þess að ég þyrfti ekki að
yfirgefa verzlunina. Hvernig
kom þér til hugar, að ég myndi
þiggja það?“
„Heyrið þið nú“, sagði Hanna-
way og ræskti sig, „við evðum
dýrmætum tíma til ónýtis. Ung-
frú Waugham, hverja hafið þér
hugsað yður sem eftirmann yðar
í deildinni?“
40
HEIMILISRITIÐ