Heimilisritið - 01.06.1948, Blaðsíða 58
„Ég skal sjá um það“, sagði
Colgate.
„Ég held að ég ætti sjálí'ur að
fara og skoða víkina núiia. Við
verðum líka að athuga, livort
nokkuð bendir til þess að ein-
liver hafi falið sig í þessum Pixy
lielli. Hvað segið þér um það,
Poirót?"
„Alveg sjálfsagt. Það er ekki
óhugsandi“.
„Það ætti að vera tilvalinn
felustaður, fyrir kunnuga“,
sagði Weston. „Ég býst við að
fólk hér í grendinni kannist við-
hann“.
„Ekki yngri kynslóðin“, sagði
Colgate. „Þér vitið, eyjan hefur
leng'i verið einkaeign; hvorki sjó-
menn né ferðalangar liafa lagt
leið sína hingað. Hótelgestirnir
eru utansveitarfólk. Frú Castle
er frá London“.
„Það er réttast að við tökum
Redfern með okkur“, sagði
Weston. „Hann sagði okkur frá
hellinum. En þér Poirot?“
Hercule Poirot var hikandi.
Hann sagði:
„Eg er ekki betri en þær ung-
frú Brevvster og Christine Red-
fern, að því leyti. Ég er ekbi
góður í bröttum stiga“.
„Þér getið farið á bát“, sagði
Weston.
„Maginn í mér gerir uppreisn“.
„Hvaða vitleysa, maður lif-
andi. Sjórinn er spegilsléttur.
56
Þér megið ekki bregðast okkur“.
Rétt í þessu opnuðust dyrnar.
Það var frú Castle, sem mjak-
aðist kurteislega inn í stofuna.
„Það er líklegast ekki mikið á
|)\'í að græða, en maður hefur
heyrt að það væri ekki rétt að
sleppa neinu sem ef til vill gœti
áhrært svona mál. Þannig er, að
það komu hingað maður og
kona, urn eittleitið, og báðu um
mat. Þeir var auðvitað sagt, að
það væri því miður ekki hægt,
eins og ástatt væri. Þeim mis-
líkaði það; sem von var; annars
voru þau æði forvitin, og vildu
vita nánari atvúk — ég sagði
þeim ekkert. — Það var heldra
i'ólk, verð ég að álíta“.
„Þakka yður fyrir“, sagði
Weston þurrlega. „Ég býst ekki
við að það hafi neina þýðingu,
en það var rétt af yður að —
lun — hlaupa ekki yfir neitt“.
„Ég reyni, eftir fremsta megni
að gera skyldu mína“, sagði frú
Castle.
„Já — jæja — látið séra Lane
koma.
V.
SÉRA Lane kom skálmandi
inn í stofuna.
Weston sagði:
„Ég er lögreglustjóri hér í um-
dæminu, séra Lane. Ég býst við,
að þér liafið frétt hvað gerst
hefur?“
HEIMILISRITIÐ