Heimilisritið - 01.06.1948, Page 62
„Það virðist ekki auðvelt, en
það er þó hægt að komast það“,
sagði Redfern.
Weston mjakaði sér varlega
gegnum hellisopið'. Það var ekki
eins þröngt óg honum liaf'i virzt,
í fyrstu, og víkkaði fljótlega
þegar innar dró.
Hereule Poirot og Stephen
- Lane fylgdu lögreglustjóranum
eftir inn í hellinn. Það lagði
glætu inn um hellisopið. West-
on brá upp vasaljósi og litaðist
um. Hann sagði:
„Hentugur staður. Vel fal-
inn“. Hann tók eftir því að Poi-
rot sogaði að sér loftið. „Hress-
andi loft, engin þaralykt, en við
erum líka talsvert fyrir ofan
fjöruborð“.
Hin nákvæmu þeffæri Poirots
skynjuðu annað og meira en
hressandi loft. Hann kannaðist
við hinn þægilega ilm, sem barst
að vitum hans, og vissi hver
notaði þess háttar ilmvatn.
„Eg sé nú ekkert sérstakt
hérna“, sagði Weston.
Poirot leit á syllu, sem var í
seilingarhæð. „Ættum við ekki
að gá að, hvort nokkuð er að
finna þarna uppi?“
„Það er kannske ekki úr
vegi“, sagði Weston.
„Þér eruð hæstur af okkur,
séra Lane“, sagði Poirot. „Vilj-
ið þér teygja ,yður upp á syll-
una, og vita hvort þér finnið
nokkuð?“
Lane náði ekki að þreifa um
alla syllúna. Hann tyllti fæti í
skoru á veggnum, og hóf sig upp.
„Bíðið við. Hér eru öskjur“.
Þeir flýttu sér út í dagsbirt-
una, og rannsökuðu fundinn.
Það voru grænar blikköskjur.
„Takið varlega á þeim“, sagði
Weston, „það gætu verið
fingraför, sem yert væri að
rannsaka“.
Phillips lögreglufulltrúi tók
upp vasaklút og opnaði öskjurn-
ur varlega. Þær höfðu að geyma
smærri öskjur, sem á var letrað:
salt, pipar, mustarður; ennfrem-
ur tvo ferkantaða smákassa.
Phillips opnaði salt-ílátið. Það
var barmafullt. Síðan opnaði
hann pipardósirnar. „Nú, líka
salt í þessum“. Phillips flýtti sér
líka að ópna annan kassann.
Sams konar innihald. Phillips
drap fingri í það, og færði að
tungunni. Hann sagði með
ákefð:
„Það er ekki salt. Síður en
svo. Það er beiskt. Ég hugsa að
það sé einhverskonar deyfilyf“.
n.
ÞIÍIR VORIJ komnir heim í
gistihúsið.
Lögreglustórinn tók til máls:
„Ef ópíumsmyglarar skyldu
hafa verið að verki hér, þá
breytist viðhorfið. Það er þá
60
HEIMILISRITIÐ