Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 12

Heimilisritið - 01.09.1948, Síða 12
Hann anzaði þessu alls ekki. „Við förum lieim“. „Núna strax?“ Ilún fann engar mótbáur gegn þessari ákveðnu skipun. „Strax“, sagði hann hvatlega og tók um handlegg hennar og leiddi hana að bílnum. Þau óku heim steinþegjandi, og ótti, sekt og löngun til að réttlæta sig börðust um í huga hennar, og hún óskaði að óveðr- ið skylli sem fyrst á. „Þetta er allt þér að kenna“, sagði hún óstyrkri og grátklökkri röddu. „O, drottinn minn“, sagði hann, „og þú gerir þig að fífli með slíkum manni“. „Hann var hálf-franskur og hálf-pcrsneskur“, sagði hún, og fannst sinni misboðnu virðingu einhver málsbót í þessari ná- kvæmu ættfærslu. „Mér er sama hver hann er. Hann er einn af þeim, sem eru á eftir hverju pilsi. Ég hefð'i átt að lúberja hann“. . „Því gerirðu það ekki?“ spurði Margot og fann huggun í þessum bardagamóði. „Ég vissi ekki hvar þið voruð, fyrr en ég sá þig“. „Vegna þess að þú varst of önnum kafinn við þá rauð- hærðu“, sagði Margot. „Rauðhærð della. Ég keypti bara glas fyrir hana, og fór svo að' skipta um flibba og missti hnappinn niður um vaskinn“. „Hvernig náðirðu honum upp?“ spurði hún, og henni létti stórum við þessa skýringu hans. „Ég náði honum ekki. Tom kom með mér í bílnum, og við sóttum annan“. „O, elskan“, sagði hún. 5rÉg hélt þú værir með þeirri rauð- hærðu, eða hefðir farið að drekka og gleymt mér“. Rödd hennar var angurvær. „Leyfðirðu honum að kyssa þig?“ spurði Johnny og sleppti öllum aukaatriðum. Um leið ók hann inn um hliðið, stöðvaði bíl- inn og leit á hana ströngum dómaraaugum. „Nei, ég gerði það' ekki“, sagði hún, „ég gerði það ekki“. Hún lagði höfuðið á öxl hans, af því að hún þoldi ekki að líta í augu honum. Eftir stutta þögn sagði hann út í loftið: „Jæja, þetta hefur verið prýðilegt kvöld“. Hún hélt áfram að hvíla höf- uðið á öxl hans. „Ertu leið á hjónabandinu, eða eitthvað svoleiðis?“ sagði hann. „Nei, en ég hélt að þú kynnir að vera það“. „Hvers vegna?“ „Þér virðist vera orðið sama hvernig ég lít út“. „Og aðeins vegna þess að ég 10 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.