Heimilisritið - 01.09.1948, Page 39

Heimilisritið - 01.09.1948, Page 39
„Þér eruð ekki sá lögreglu- þjónn, sem vanur er að hafa eft- irlit hér í hverfinu?“ „Nei, en hvaða máli skiptir það?“ „Því að hann þekkir manninn minn í sjón“, sagði hún og stakk höndinni undir arm þjófsins. „En hinn þama —?“ „Takið' hann fastan og farið með hann á lögreglustöðina“, sagði þjófurinn, „ég kem strax og ég hef huggað konuna mína“. Þrátt fyrir áköf mótmæli Leo- polds var farið með hann. Dyr- unum hafði ékki fyrr verið lok- að, er þjófurinn tók skartgripi Sonju upp úr vasa sínum og lagði þá á borðið. „Ég þakka yður fyrir hjálp- ina“, sagði hann, „mér er engin leið að halda skartgiápum yðar, eftir það sem á undan er geng- ið“. „Mér þykir leitt“, sagði Sonja brosandi, „að hafa þurft að eyði- leggja fyrir yður vinnu heils kvölds“. „Það gefst ábyggilega tæki- færi til að jafna þetta seinna“, svaraði hann hlæjandi, „en var- ið yður á því að treysta hverj- um manni, sem þér hittið á göt- unni“. Með þessari hollu ráðleggingu hvarf hann út úr dyrunum. ENDIR Vissirðu það? Roy Rogers, sem nú mun vera vinsæl- astur allra leikara meðal íslenzkra drengja, hefur leikið í yfir fimmtiu kúrekakvik- myndum. Það eru þó aðeins tiu ár, síðan hann varð filmstjama. 13. Dana Andrews — 14. Margaret Lock- wood — 15. Anne Baxter — 1G. Claude Rains — 17. Rosalind Russel — 18. Griffith Jones — 19. Googie Witliers — 20. Tyrone Power. Brezkir bíógestir telja eftirfarandi kvikmyndaleikara hafa sýnt beztan leik á síðasta ári, samkvæmt atkvæðagreiðslu, sem enska leikarablaðið „Picturegoer“ stofnaði nýlega til meðal lesenda sinna: 1. Anna Neagle — 2. John Mills — 3. Michael IVilding — 4. Mai Zetterling — 5. Jane Wyman — 6. James Mason — 7. Ingrid Bergman — 8. Gregory Peck — 9. Jean Simmons — 10. Deborah Kerr — 11. Jennifer Jones — 12. Larry Parks — Shirley Temple og John Agar hafa leik- ið saman í tveimur kvikmyndum, síðan þau giftust. I hjónabandi sínu hafa þau eignast eitt barn, dóttur, sem heitir Linda Sue og er enn svo ung, að hún er ekki orðin talandi. Shirley segist ekki ætla að láta hana feta í sín fótspor og fara að leika í æsku. Hún kveðst hafa í hyggju að eignast fjögur börn, og ef til vill muni yngsta bamið verða stjarna i barnahlut- verkum. HEIMILISRITIÐ 37

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.