Heimilisritið - 01.09.1948, Side 52

Heimilisritið - 01.09.1948, Side 52
það“, og svo hófst nagg og nöld- ur. Einu sinni eða tvisvar skipaði hann henni í flöskuna, og hún hlýddi með ertnislegu, leyndar- dómsfullu brosi. „Hvers vegna skyldi hún brosa svona?“ spurði Frank árann. „Ég veit það ekki“, svaraði árinn. „Nema hún eigi elskhuga falinn þar“. „Getur það átt sér stað?“ hrópaði Frank þrumu lostinn. „Það er furðulégt“, sagði ár- inn, ,.hve svona flaska er rúm- góð“, „ÍJt!“ hrópaði Frank. ,Jvomið samstundis út!“ Elskan kom þegar. „Er nokk- ur annar í flöskunni?“ hrópaði. Frank. „Hvernig ætti það að geta verið?“ sagði hún vfir sig sak- leysisleg á svipinn. „Svarið mér ákveðið“, sagði hann. „Svarið já eða neit“. „Já eða nei“, svaraði hún ertn- islega. „Dauði og djöfull!“ hrópaði Frank., „Ég ætla að fara sjálfur og leita. Ef ég finn einhvern, má hann biðja fyrir sér, og vður líka“. Með ýtrasta viljaátaki tókst honum að smjúga niður í flösk- una. Hann leit í kringum sig: Þar var enginn. Allt í einu heyrði hann skrjáf fyrir ofan sig. Hann leit upp og sá tappann látinn í. „Hvað eruð þið að gera?“ hrópaði liann. „Við erum að setja tappann í“, svaraði árinn. Frank bölvaði, bað og grát- bændi. „Hleypið mér út. Ég skal gera hvað sem er. Hleypið mér út“. En árinn hafði nú öðrum mál- um að sinna. Frank leið þær ó- bærilegu vítishvalir að verða að horfa á afgreiðslu þeirra mála gegnum glerveggi fangelsins síns. Daginn eftir var honum þeytt í loftinu til litlu búðarinn- ar, þar sem enginn hafði tekið eftir hvarfi flöskunnar. Þarna hírðist hann ótakmark- aðan tíma, kafinn ryki og óður af bræði við tilhugsunina um það, sem fram færi í höllinni fögru milli árans og ótrúu elsk- unnar sinnar. Að lokum rákust nokkrir sjómenn inn í búðina, og er þeir heyrðu, að flaskan inni- héldi fegurstu stúlku í heimi, keyptu þeir hana með allsherj- ar samskotum í lúkarnum. Þeg- ar þeir svo opnuðu hana úti á sjó, og sáu að það var ekki ann- að en Frank veslingurinn, áttu vonbrigð'i þeirra sér engin tak- mörk, og þeir léku hann svo grátt, að slcömm væri að segja frá því. ENDHJ 50 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.