Heimilisritið - 01.09.1948, Side 63

Heimilisritið - 01.09.1948, Side 63
Kœkir manna afhjúpa þá KÆKIR lýsa oft hugarfari manna bet- ur en orð þeirra og yfirbragð. Skarp- skyggn maður getur lesið margt úr smá- kækjum annarra. Oafvitandi getur litil handahreyfing, sem er töm, afhjúpað sér- einkenni persónuleika þíns, hugsana og tilfinninga. En einnig þú getur numið þetta táknmál kækjanna og öðlast á þann hátt nýjan hæfileika til að kynnast innra manni þeirra, er þú þekkir, eða vilt kynn- ast. Hér skulu tekin nokkur dæmi um þýð- ingu ýmissa kækja. Sá, sem hamrar með fingurgómunum á borðplötu, þráir að komast úr þvingandi og óskemmtilegri aðstöðu. Ef hann gerir það oft, er ekki ólíklegt, að hann sé ákveðinn eða kappmáll. Maður, sem slær í borðið máli sínu til áherzlu, er skapör og lætur tilfinningarnar fá yfirhöndina yfir skynseminni. Ef hann hins vegar gerir margar snögg- ar og lóðrétt handahreyfingar, meðan hann er að rökræða áríðandi málefni, er hann einbeittur, skapstór og áhrifamikill. Sumir hafa þann ávana að toga eða grípa í eyrnasnepilinn á sér. Þeir eru oft- ast margfróðir, viðbúnir, meinfyndnir og óútreiknanlegir á marga vegu. Að fingra við hárlokk getur táknað, að viðkomandi sé í slæmri klípu. Þeir sem naga á sér neglumar, jótra tyggigúmi eða eru sífellt að sjúga eitthvað °g tyggja, eru oftast taugaóstyrkir og eiga óuppfylltar þrár. Margir kækir bera vott um, að maður vill ná meiri einbeittni í hugsun — kom- ast í nánara samband við sjálfan sig inn- byrðis. Meðal þessara kækja eru: að nudda hökuna, fetta fingurna, þreifa á fótleggjunum, taka á eyrunum, strjúka hárið og krossleggja armana á brjóstinu. Ef maður hefur marga þessara kækja er sjálfstraust hans of lítið. Þeir, sem halda með fingurgómunum meira eða minna fyrir munninn, þegar þeir tala, eru oftast nær óframfærnir, jafnvel hugdeigir eða ef til vill fráhrind- andi. Þegar menn lyfta augabrúnunum eru þeir oft að leitast við að hafa eindregna athygli á því, sem við þá er rætt. Ef þú beinir sigarettunni fram fyrir þig með stífum fingrum, má álita að þú haf- ir tilhneigingu til að halda fólki í hæfilegri fjarlægð frá þér. Ef þú drepur í hálfreykt- um sígarettum, ber það vott um tauga- æsing og óþreyju. Þeir, sem teygja sig oft eða spenna bakið, eru að búa sig undir athöfn — eru að vekja sig og gera sig hæfa til að taka því, sem að höndum ber. Margir hafa þann sið að krassa myndir eða meiningarlaust pár á blað, þegar þeir þurfa að sitja kyrrir. Þetta getur táknað, að viðkomandi sé auðugur í hugsun, en venjulega aðeins, að hann sé óþrcyjufull- fullur og rissi á blaðið til þess að hafa eitthvað fyrir stafni er sefar óeirð lians eða athafnaþörf. Menn, sem hafa þá venju að bíta sam- an tönnum, eru sókndjarfir og einbeittir. Auðvitað má enginn taka þessar skýr- ingar bókstaflega, því að ytri aðstæður geta alltaf breytt þýðingunni. En enginn þarf að efa, að táknmál kækjanna er raunverulegt og rökfræðilegt. Ef til vill sérðu bráðum bíómynd, þar sem ein persóna drepur í hálfreyktri sígarettu. Taktu þá eftir þvi, hvað það hefur mikið meiri áhrif en nokkrar drama- tískar setningar. HEIMILISRITIÐ 61

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.