Heimilisritið - 01.11.1948, Blaðsíða 47

Heimilisritið - 01.11.1948, Blaðsíða 47
samlegasta kona er hann hafði nokkru sinni hitt á lífsleiðinni. Hann átti erfitt með að' skilja, að þetta væri veruleiki, en ekki draumur. Hún var kát, hló og hjalaði. Hún ávítaði hann annað slagið, ef hann var eins og úti á þekju. Honum tókst að tala þannig að hana grunaði ekki, að um misgrip væri að ræða. Hann eyddi umræðum, er gátu snert sameiginlega kunningja. Og þó að hann vildi gjarnan vita eitt- hvað' um John, forðaðist hann að minnast á hann. Honum átti að vera kunnugt, hvaða maður haiin væri. Síðar um kvöldið gengu þau um Djurgárden. Það var kyrrt og hljótt í skjóli hinna stóru trjáa. Einstaka par gekk þarna um gangstígana, eða sat á bekk. „Komdu. Við setjumst hér“, mælti hún, greip í hönd hans og leiddi hann að bekk, er var rétt við vatnið. Þau settust. Hún hallaði sér upp að honum og hann tók yfir axlir hennar. „Er þér kalt?“ spurði hann lágt. Hún hristi höfuðið og kvað nei við. Þau þögðu. Hann sá, að hún var niðursokkin í hugsanir sín- ar. Ef til vill var hún að hugsa um hinn rétta Birgi. „Manstu, þegar við sátum hér síðast?“ spurði hún svo allt í einu. „Það er langt síðan“, sagði hann. „Já, bráðum tvö ár. Það var í maí. Ertu búinn að gleyma því?“ „Nei, ég hef ekki gleymt því“, svaraði hann. Hann var orðinn alvörugefinn á svip. Hann vildi losna við að ræða þetta mál. Það hafði eitt- hvað komið fyrir milli hennar og Birgis, sem hún mundi öðru bet- ur, og sem verið hafði óþægilegt. Honum kom til hugar að reyna að bæta úr því. Þessi stúlka var sú fyrsta, er hann hafði kynnzt og óskað' eft- ir að skiljast aldrei við. Og svo ætlaði hann sarnt að sætta hana við mann, sem hann var sjálfur staðgengill fyrir. Það var ein- kennilegt. Helzt hefði hann kosið að út- liúða þessum Birgi. En það mátti hann ekki. Hann hafði náð' sam- bandi við stúlkuna á sviksam- legan hátt. Og hann hafði engan rétt til hennar. Þau myndu skilja innan lítillar stundar, og eðlilegast væri, að liann bætti fyrir liinn manninn. En hann elskaði hana. Skyndilega mælti hún: „Hittir þú Inger ennþá?“ Hann sá að henni var brugðið. „Nei, nei“, svaraði hann. HEIMILISRITIÐ 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimilisritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.