Heimilisritið - 01.07.1954, Page 38

Heimilisritið - 01.07.1954, Page 38
Eftir að barnið kemst á ung- lingsaldurinn, verður heimurinn utan heimilisins eðlilega mikil- vægari og áhrifameiri fyrir það, en hinn þröngi heimur fjölskyld- unnar. Það er hin eðlilega löng- un móðurinnar til að hafa barn- ið' heima og undir sinni vernd- arhendi, sem orsakar mest af vandræðum unglinganna, álít ég. Þú vilt að þau fari út að skemmta sér, en þú vilt að þau geri það eftir þínu höfði. Af því þú ert eldri, sérðu hætturnar alls staðar leynast. En það, sem ég held að við foreldrarnir ætt- um að muna, er, að margt af því, sem við óttumst, er einungis hluti af útsýni unglingsins. Það er þeirra útsýni, en ekki okkar. Þó að við mæður reynum eftir l>eztu getur — og ég held allar skynsamar mæður reyni það — að sjá allt þetta frá sjónarmiði dætra okkar, getum við ekki ætl- ast til að þær skilji afstöðu okk- ar miðaldra líkama, fmnur en tízkuna á okkar æskuárum. En samt verðum við að' reyna. Eins var það þetta kvöld, sem Dídí fór á dansleikinn, og það leið fram á nótt, án þess hún kæmi heim. Eg var hrædd. Eg vissi, að það var venja að fara eitthvao á eftir og fá sér bita, við pylsuvagn eða slíkan stað'. Það var látið heita, að kókakóla væri helzti drykkurinn, en þó höfðu stöku sinnum hlotist vand- ræði af því, að piltarnir drukku eitthvað sterkara. Það hafði ver- ið' setið í bílum og daðrað. Og það höfðu orðið árekstrar með slysum á vegunum. Allt þetta leitaði á huga minn, er ég beið í setustofunni og fylgdist með klukkunni. Eg gat ekki að því gert, að ég fór að ganga um gólf og gæta út um gluggann eftir bílljósum. En svo áttaði ég mig. Skynsemi mín fékk aftur yfirhöndina. Ef Dídí kæmi og fyndi mig í slíku eymd- arástandi, taugaóstyrka og grama við hana, myndi öllum trúnaði lokið okkar í milli. Svo mikið vissi ég. Hún var rétt að byrja erfið- asta tímabil ævinnar, og ef ég brygðist henni í skilningi nú, myndi ég vel-ða síðasta mann- eskjan, sem hún leitaði til, ef hún þarfnaðist samúðar og hjálpar. Réttast væri, hugsaði ég, að hátta, eins og ég liefði engar á- hyggjur. Nei, það væri heimsku- legt. Hún myndi hugsa sem svo, að ég kærði mig kollótta. um, hvenær hún kæmi heim. Ég varð að' vaka og bíða eftir henni, en það varð að líta ofur eðlilega út. Traust. Það var orðið. Hún varð að trúa því, að ég treysti henni. 36 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.