Heimilisritið - 01.07.1955, Qupperneq 36

Heimilisritið - 01.07.1955, Qupperneq 36
og hún sagði, að þá hefðu verið fleiri karlmenn þar en konur. Finnst þér það ekki gott? Hún leit á Susan yfir borðið. — Það vildi ég að þú keyptir þér eitthvað af fallegum fötum — eitthvað, sem vekur athygli. Fötin, sem þú átt eru svo sem nógu þóð, en þau eru bara svo fábrotin. — Hafðu ekki áhyggjur af mér, sagði Susan. — Ég skemmti mér ábyggilega á minn hátt. Hótelið auglýsir, að það sé hægt að fara 1 göngutúra og útsýnið sé fallegt og mér líkar bezt úti í náttúrunni. Ég var að hugsa um að hafa teikniblokkina með mér. Þrátt fyrir þetta var hún að hugsa um það, að það gæti ver- ið skemmtilegt að geta gengið með einhverjum og rabbað við einhvern. Hún leit dreymandi út um gluggann. — Úff, gönguferðir, hreytti Bett út úr sér. — Útsýni. Nei, bezta útsýnið, sem ég þekki, eru hótelsvalir fullar af fallegum, ungum mönum, daginn sem við komum. Þegar þær komu á svalir hótelsins fyrsta dag sumarleyf- isins, voru þær næstum tómar, nema hvað tvær gamlar konur sátu í einu horninu og hekluðu. Bett stóð kyrr meðan burðar- maðurinn fór með farangur þeirra. — Þetta eru þá tveir ungu mennimir, sem talað var um í auglýsingunni, sagði hún. — Taktu þetta rólega, Bett, sagði Susan. — Það er ábyggi- lega fullt af ungu fólki hérna, en það er sennilega á tennisvellin- um eða á baðströndinni á þess- um tíma dags. Þeim var vísað inn í lítið her- bergi í álmu, sem lá nokkuð til hliðar og þegar þær höfðu greitt sér og snyrt sig gengu þær aft- ur að hótelinu og vonuðu hið bezta. Á svölunum var nú miklu fleira fólk og dauf danshljómlist heyrðist frá matsalnum. En þeg- ar þær litu betur á fólkið, kom þeim saman um að þetta væri ekki sérlega spennandi fólk. Bett leit á Susan og það voru vonbrigði í svipnum og röddin var bitur þegar hún sagði: — Ellefu ungar stúlkur og allar á veiðum eftir karlmanni; tveir stráklingar sextán ára, tveir eldri herrar og einn ungur mað- ur, sem lítur út eins og hann sé með eitthvað súrt í munninum. Susan, við höfum verið gabbað- ar. Fyrstu dagamir voru leiðin- legir. Það rigndi frá morgni til 34 HEIMILISRITIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimilisritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.