Heimilisritið - 01.07.1955, Blaðsíða 37
kvölds — eilífur úrhellingur,
sem gerði sængurfötin rök og
fór hroðalega í skapið.
í hvert skipti, sem Susan sá
sundfötin sín, fékk hún gæsa-
húð, og strandfötin hennar Bett,
eftir nýjustu tízku, voru eins og
frá öðrum hnetti.
En þegar sólin brauzt fram á
fjórða degi breyttist allt á svip-
stundu. Eftir eins dags steikj-
andi sólarhita mættu allir gest-
imir eldrjóðir við kvöldverðar-
borðið, þreyttir og hamingju-
samir eftir svo mikið útiloft og
sjóböð. Og til þess að bæta upp
síðustu dagana, kom bíll hótels-
ins hlaðinn nýjum gestum og 1
þeim hóp var bara ein stúlka,
hitt voru allt ungir kerlmenn.
Þetta kvöld skartaði Bett í
fallegasta kjólnum sínum og
hún var í ljómandi skapi og
skemmti sér konunglega. Það
leið ekki á löngu þar til hún var
orðin hrókur alls fagnaðar 1
hóp ungmenna, sem eltu hana á
röndum, en Susan lét lítið á sér
bera.
Nokkru seinna, þegar þau voru
öll sezt við eitt borð, gaf Bett
Susan merki og þær gengu sam-
an út á svalirnar. — Sjáðu nú
til, Susan, sagði Bett og greip í
handlegg hennar. — Ég vil fá
að tala við þig. Þú verður að
reyna að tala eitthvað við strák-
ana. Það er ekki nóg að sitja
bara og anda. Þú verður að vera
fjörug og skemmtileg, annars er
kvöldið ónýtt. Maður verður að
hafa það á tilfinningunni, að þú
sért með.
— Ég vildi bara að þú létir
mig í friði, sagði Susan reiðilega.
Ég veit ekki hvemig ég á að
vera fjörug og ef ég reyndi það
myndi ég bara verða mér til
skammar. Mér er líka alveg
sama þó að þessir krakkar þarna
inni haldi að ég sé drepleiðinleg.
Mér er návæmlega sama hvað
þau halda.
Rétt í þessu ók bíll upp að
hótelinu og þær heyrðu karl-
mannsraddir. Bett rýndi út í
myrkrið og kom auga á þrjá
karlmenn, sem komu í áttina að
svölunum.
•— Jæja, heillin, sagði hún
ánægð — hér koma fleiri til við-
bótar.
Ungu mennirnir þrír gengu
upp tröppurnar og námu staðar
þegar þeir sáu stúlkurnar. *
— Kvöldið, sagði sá fremsti,
— er þetta hótelið?
Bett mældi þá út án þess að
sýna nokkum áhuga. — Já, það
er rétt, sagði hún kuldalega. En
þið komið hingað inn á eigin
ábyrgð, það er hreint þvaður,
sem stendur í auglýsingunni frá
hótelinu.
JIJLÍ, 1955
35