Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 49

Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 49
Danslagatexlar RÓSA MARIE (lslenzkur texti eftir Gitðm. SignrSsson viS þennan vinstda þýzka folka. — Kynnt á Tónika-hljómplötu Það eykur, það eykur oss ánægju og þor á stundum, á stundum að stíga polkaspor. Ei sakar, ei sakar þó sé hann gamaldags, því unga fólkið örvast æ við óma fjörugs lags. Fljóð og menn, fljóð og menn fjör og kæti lifa enn. Hver er fríðust, bezt og blíðust bæði fjær og nær? Rósa Marie. Allar stundir létt í lundu líkt og þýður blær Rósa Marie. Hver er fim og fagurlimuð fín og öllum kær? Rósa Marie. Hveni er til lista lagið flest, ljúf og töfrar mcst, þegar sól er sezt? Hver er það sem kyssir alltaf bezt? Fasra Rós Marie. SÍLDARSTÚLKURNAR (Lag: Oddg. Kristjánsson — Texti: Asi í Bæ. — Sungið á Tánik a-hljómplötu af Ragnari Bjarnasyni) Þær heilsuðu okkur með svellandi söng síldarstúlkurnar, og þá voru dægrin svo ljós og löng, en ljúfastar næturnar. Því við vorum ung og ástin hrein og ólgandi hjartans blóð. Og sumarið leið og sólin skein og síldin á miðunum óð. Ennþá er mér í minni myjarbros og tár, skellóttur skýluklútur, skollitað undirhár. Glettni í gráum augum, gamanyrði á vör. Dansinn á bátabryggju, blossandi æskufjör. Spriklandi silfur í sólareldi, sökkhlaðinn bátur í áfangastað. Landað í skyndi og kysst að kveldi, kannastu bróðir við lífið það. Köld voru kynni haustsins, kveðjustundin sár. Ennþá er mér í minni meyjarbros og tár. JÚLÍ, 1955 47

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.