Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 53

Heimilisritið - 01.07.1955, Síða 53
sem ekki þarf um að deila. Það er nikótínið, sem hefur alvarleg áhrif á blóðrásina, herpir saman smáæðarnar og veldur auknum blóðþrýstingi. Það er til fólk, sem aldrei ætti að reykja, ein- faldlega vegna þess, að blóðrás þess er í ólagi, svo sem þeir er líða af Buergers-veiki. Þetta við- urkenna allir, einnig framleið- endur tóbaks. En enginn grunur kefur fallið á nikótínið hvað irabbamein snertir. Reykingamennirnir voru fljót- ir að benda á, að margir hlutir væru ekki síðu líklegir til að -valda krabbameini í lungum. Forsvarsmenn tóbaksframleið- endanna birtu tafarlaust niður- stöður rannsókna, sem dr. E. Cuyler Hammond yfirmaður staðtölurannsóknardeildar sama sjúkrahússins og Wyender vinn- ur við hafði framkvæmt og bentu til, að þrjár orsakir gætu að minnsta kosti leitt til lungna- kabba. Fyrsta, sígarettureyking- ar, önnur, sót frá útblástursröri bifreiða og frá olíukyndingum, og þiðja, óhollusta í lofti frá verksmiðjum. Að margra áliti sýnir mismun- ur á krabbameins tilfellum, eftir því hvort fólk býr í sveit eða bæjum, það, að óhollusta í and- rúmsloftinu geti verið helzta á- stæðan. Brezkar rannsóknir sýna, JXJLÍ, 1955 að krabbameinstilfellin standa í réttu hlutfalli við tölu reykháfa á gefnu svæði. Dr. Daniel Horn, starfandi við Ameríska krabba- meinsfélagið, hefur sagt, að auk- in óhollusta í lofti geti ert lung- un svo að í þeim myndist krabba- mein. Eins og stendur munu hundr- uð vísindamanna starfa í rann- sóknarstofum að því, að sanna eða afsanna hlutdeild sígarettu- reykinganna í krabbameini í lungum. Tóbaksiðnaðurinn kost- ar sumar af þessum rannsókn- um, auðvitað í þeirri von, að þær sanni sakleysi sígarettunn- ar. Aðrir vinna að því, að finna hin carcinogenísku efni, sem leynast í tóbakstjörunni, og enn aðrir leita möguleikanna til að hindra tjöruna í að ná til lungn- anna. Rannsóknardeildir tóbaks- iðnaðarins reyna jafnframt að finna út hvort óhollusta 1 lofti eigi aðalsök á lungnakrabban- um. í New York-ríki einu saman voru 600,000-,000 færri sígarettur reyktar 1953 en árið áður. Þetta mun stafa af umræðunum um samband reykinganna og lungna- krabbans. Fyrir nokkru sagði dr. Ham- mond, sá er áður var nefndur, í viðtali við hagfræðirit í Amer- íku, meðal annars: „Við verðum 51

x

Heimilisritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.