Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 40
(flúoxetín)
-árangursríkt íslenskt geðlyf
Seról (flúoxetín)
Framleiðandi: OMEGA FARMA ht Kársnesbraut 108, 200 Kópavogur. Töflur; N 06 A B 03. Hver tafla
inniheldur: Fluoxetinum INN, klóríð, samsvarandi Fluoxetinum INN 10 mg. Hylki; N06AB 03. Hvert hylki
inniheldur: Fluoxetinum INN, klórlð, samsvarandi Fluoxetinum INN 20 mg. Eiginleikar: Flúoxetín er geð-
deyfðarlyf, sem er talið verka þannig, aðþað blokkar upptöku serótóníns (5-HT) í taugaenda I heila. Lyfið hefur
Iftil sem engin áhrífá noradrenalin eða önnur boðefni I heila. Flúoxetín minnkar matarlyst. Blóðþóttni lyfsins
nær hámarki u.þ.b. 6 klst. eftir inntöku. Helmingunartími flúoxetíns I blóði er 2-3 dagar. Aóalumbrotsefni
flúoxetíns er norflúoxetín, sem er álíka virkt og flúoxetln og helmingunartlmi þess er 7-9 dagar. Próteinbinding I
plasma er um 94%. Um 80% af gefnum skammti skiljast út I þvagi, að mestu sem umbrotsefni. Vegna langs
helmingunartima lyfsins koma breytingar á skammtastærðum ekki fram fyrren eftirnokkrar vikur. Ábending-
ar: Innlæg geðdeyfð (unipolar og bipolar). Alvarlegt, langvarandiþunglyndi, sem á sór ytri orsakir. Frábend-
ingar: Meðganga og brjóstagjöf. Sérstakrar varúðar ber að gæta við flogaveiki, alvarlega nýrnabilun, lifrar-
sjúkdóm, nýlegt hjartadrep og hjá öldruðum. Varúð: Við þunglyndi getur sjálfsmorðshætta aukist I byrjun
meðferðar. Flogaveikisjúklingar þurfa að vera undir mjög góðu eftiríiti vegna aukinnar hættu á flogum.
Aukaverkanir: Ógleði, óróleiki, slappleiki, niðurgangur, höfuðverkur, skjálfti, kvíði, sljóleiki, munnþurkur og
aukin svitamyndun. Ofnæmi með útbrotum og liðverkjum. Milliverkanir: Lyfið má ekki nota með MAO-
hemjandi lyfjum og þar sem lyfið og umbrotsefni þess hverfa ekki úr líkamanum fyrr en mörgum vikum eftir að
töku þess er hætt, er ekki óhætt að nota MAO-hemjandi lyffyrr en liðið hafa a.m.k. 5 vikur frá þvítöku flúexetlns
er hætt. Ekki ætti að nota trýptófan með þessu lyfi. Hækkun á litlumþéttni hefur sést eftir samtímis gjöf af
flúoxetíniog þarfþvíað fylgjast vel með litlummagni Iblóði. Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur
upphafsskammtur er 20 mg, sem heppilegt er að taka að morgni. Verkun nær ekki hámarki fyrr en eftir 2-3
vikur. Fáist ekki fullnægjandi verkun má auka skammtinn smám saman, þó ekki I meira en 80 mg á dag. Við
mikið skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi og hjá öldruðum getur þurft að gefa lægri skammta en 20 mg á dag.
Lyfið er ekki ætlað börnum.
o
OMEGA FARMA
íslenskt almenningshlutafélag
um lyfjaframleiöslu, stofnaö 1990
Pakkningar:
Töflur 10 mg: 30 stk.; 100 slk.
Hylki 20 mg: 30 stk.; 100 stk.