Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 56
400
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Umræða og fréttir
Sverrir Bergmann formaður Læknafélags íslands
Aðalfundur
Læknafélags íslands 1994
Læknafélag Noröausturlands
bar hitann og þungann af frain-
kvæmd aðalfundarins og fórst
hún öll hið besta úr hendi.
Fundurinn var afkastamikill og
árangursríkur. Dvölin á Húsa-
vík hin ánægjulegasta. Þótt
vissulega sé kostnaðarsamara
að halda aðalfundi utan höfuð-
borgarsvæðisins heldur en í höf-
uðborginni sjálfri væri eftirsjá
að því ef aðalfundahald utan
höfuðborgarinnar félli niður
með öllu eða yrði rniklu mun
sjaldnar en nú er. Aðalfundir
utan höfuðborgarsvæðisins eru
haldnir annað hvert ár í hring-
ferð um landið ef svo má að orði
kornast.
I
Aðalmál þessa aðalfundar
var skipulag læknasamtakanna.
Þar náðist samkontulag unt
ályktun sem birt er á öðrum stað
í blaðinu og vísast til hennar.
Um frekari breytingar á skipu-
lagi læknasamtakanna verður
fjallað á aukaaðalfundi sem
fram fer í nóvember næstkom-
andi, væntanlega í nýjunt húsa-
kynnum læknasamtakanna að
Hlíðasmára 8 í Kópavogi.
Stjórn Læknafélags íslands hef-
ur þegar byrjað undirbúning að
frekari tillögugerð um skipulag
læknasamtakanna í næstu fram-
tíð og sett sérstaka undirnefnd
til þess að vinna að málinu.
Drög verða send svæðafélögunt
innan mánaðar. Jafnframt bið-
ur stjórn Læknafélags íslands
öll svæðafélög að fjalla um þær
tillögur sem þegar liggja fyrir í
skýrslu sérstakrar nefndar sem
fjallaði um framtíðarskipulag
læknasamtakanna. Þær voru
birtar í Fréttabréfi lækna 6/94
og sendar svæðafélögunum. Er
þar beðið um ábendingar en
stjórn Læknafélags íslands fékk
mikilvægar leiðbeiningar í unt-
ræðununt á aðalfundinum á
Húsavík.
Markmiðið er það að heildar-
samtök lækna verði sterk, opin
og lýðræðisleg og að enginn
læknir þurfi að standa utan
þeirra. Eðlilegt þykir einnig að
taka tillit til nánast sjálfsagðrar
þróunar félagamyndana innan
heildarsamtakanna og að aðild
að heildarsamtökunum markist
af þátttöku í félögum lækna ef
einstaklingsaðild verður ekki
fyrir valinu. Hyggja þarf að enn
frekari breytingum á skipulagi,
meðal annars hvernig stjórn
Læknafélags íslands er valin á
hverjum tíma. Hugsanlega tekst
ekki að ljúka þessu verki fyrr en
á næsta aðalfundi sem enn er
ekki ákveðið hvort verður að
vori eða næstkomandi haust.
Á aðalfundinum var sam-
þykkt tímabundin breyting á
lögum félagsins sem heimilar
opnari einstaklingsaðild að
Læknafélagi Islands en verið
liefur og gerir þannig öllum
læknurn mögulegt að vera í
Læknafélagi íslands þó þeir séu
hvorki aðilar að svæðafélagi né
meðlimir í sérstökum sérgreina-
eða fagfélögum lækna. Öðrum
lagabreytingum var frestað.
II
Veruleg umræða var urn innri
mál læknasamtakanna. Félags-
gjöld verða óbreytt frá fyrra ári.
Þau eru nú krónur 3.500,- á
mánuði eða 1% af meðalmán-
aðartekjum lækna sem er hið
sama og almennt tíðkast hjá
öðrurn stéttum þótt hjá sunium
sé greitt allt upp í 1,5% af
meðaltekjum. Félagsgjöld hafa
ekki hækkað í fimm ár og voru
raunar lækkuð á síðastliðnu ári
um tæp 10%. Raunlækkun fé-
lagsgjalda síðastliðin finim ár er
yfir 20%. Stjórn Læknafélags
íslands óskaði eftir heimild til
þess að geta sett reglur um upp-
hæð félagsgjalda þar sem eðlileg
frávik væru frá fullu gjaldi.
Þetta á við um eldri lækna, einn-
ig þá yngstu og sömuleiðis þá
lækna sem annaðhvort eru hætt-
ir störfum þótt aldur korni ekki
til eða eru í takmörkuðu starfi.
Ekki hefur verið innheimt gjald
af læknum sem dvelja erlendis.