Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 8
356
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Blóðrauðastyrkur hjá eldra fólki
sem leitar læknis á stofu:
Gagnstæðar breytingar í konum
og körlum
Hans J. Beck, Marcella Iniguez, Helgi Tómasson,
Bcck HJ, Inigucz M, Tómasson H, Kjeld M
Blood haemoglobin concentration in elderly people
sccking doctors clinics: opposite changes in men
and women
Læknablaðið 1994; 80: 356-61
Anaemia of uncertain origin is common in elderly
people and is reported to be more common in men
than women. We have investigated retrospectively a
database of haematological and biochemical data on
16.332 people referred to an outpatient laboratory
and compared the blood haemoglobin (Hb) concen-
tration of the sexes. In men the mean adult Hb
values of 151 g/1 started to decline at the age of 60 to
reach the level of 138 g/1 by the age of 80 and older.
In women, by contrast, the mean adult Hb concen-
tration of 134 g/1 started to increase at the age of 50
to 137 g/1 then declining after the age of 70. A
multiple regression analysis of variables likely to
influence measured Hb values indicated that 6,7 g/1
of the observed 13 g/1 decrease in elderly men could
not be explained by chance or selection bias and that
an increase of Hb values in women was sustained
until after 80 years of age. Results would suggest
that sex or sex hormone related factors influence
haemoglobin concentrations in elderly people.
Ágrip
Eldra fólki er hætt við blóðrauðaskorti (ana-
emia) af óþekktum ástæðum og hefur karl-
mönnum verið hættara við því en konum. Til
að kanna þetta nánar höfum við rannsakað
gagnabanka á almennri rannsóknarstofu í
efna- og blóðmeinafræði, sem hafði að geyma
færslur frá 16.330 manns, og bárum saman
Frá Rannsóknastofunni í Domus Medica, viðskipta- og hag-
fræðideild Háskóla Islands, rannsóknastofa Landspítalans.
Fyrirspurnir, bréfaskipti; Matthías Kjeld, rannsóknastofu
Landspítalans, 101 Reykjavík.
Matthías Kjeld
blóðrauðastyrk (haemoglobin concentration)
kynjanna. í karlmönnum byrjaði meðalstyrkur
blóðrauðans að lækka um sextugt og féll úr
151g/l í 138g/l hjá áttræðum körlum og eldri. í
konum, aftur á móti, hækkaði blóðrauðastyrk-
urinn úr 134g/l hjá konum á fimmtugsaldri í
137g/l hjá konurn á sjötugsaldri en þá byrjaði
hann að falla lítið eitt. Staðtölulegir útreikn-
ingar (multiple regression analysis) á breytum
sem líklegar voru til þess að hafa áhrif á blóð-
rauðastyrk bentu til þess að af 13g lækkun sem
fundist hafði í eldri körlum væri aðeins hægt að
útskýra 6,7g/l sem tilviljun og að í konum héld-
ist hækkun blóðrauðastyrks fram yfir áttrætt.
Niðurstöðurnar gefa til kynna að kyn eða þætt-
ir háðir kyni hafi áhrif á blóðrauðastyrk í eldra
fólki.
Inngangur
Það er nokkuð vel grundað að styrkur
blóðrauða (Hb=haemoglobin) í eldra fólki fer
lækkandi, en um ástæðu(r) lækkunarinnar og
hve mikil hún er vita menn ekki (1). Sumir sem
kannað hafa þessi mál telja, að blóðrauðalækk-
unin sé í raun einhvers konar kvilli og eigi að
meðhöndlast sem slík, en aðrir halda að hér sé
um að ræða lífeðlisfræðilegan þátt öldrunar og
sérstök viðmiðunargildi skuli fundin og notuð
fyrir þennan aldurshóp (2-5). Flestar kannanir
hafa bent til þess að Hb falli meir í gömlum
körlum en konum (4-7) og sumir hafa einungis
fundið þekktar ástæður fyrir lækkuninni hjá
miklum minni hluta fólksins (8) en aðrir aðeins
aukna dreifingu Hb-styrks meðal eldra fólks
(9). Rannsóknir á blóðkornamyndun í eldra
fólki hafa gefið til kynna að eitthvað hafi dreg-
ið úr starfsemi beinmergs og bent hefur verið á
að minnkuð framleiðsla karlhormóna gæti
verið orsakaþáttur í þessum breytingum (10). I
nýlegri könnun á 3946 manns, 70 ára og eldri,