Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 73
LÆKNABLAÐIÐ 1994: 80
413
ökuleyfi á grundvelli þess ís-
lenska ef það er gert innan árs
frá því að komið er til landsins,
að öðrum kosti getur viðkom-
andi þurft að taka próf, bæði
skriflegt og verklegt.
I sumum tilvikum er krafist
vottorðs frá sjúkrahúsi um
framhaldsnám. Slík vottorð fást
á skrifstofum spítalanna en þar
kemur fram hversu lengi við-
komandi hefur unnið á stofnun-
inni og frá hvaða deild laun voru
greidd. Á sömu skrifstofum er
hægt að fá vottorð sem sýnir
tekjur síðastliðins árs en slíkt
vottorð getur komið að góðum
notum ef sótt er um bætur úr
félagslega kerfinu, til dæmis
fæðingarorlof.
Ekki er lengur krafist
sænskuvottorðs nema í algjör-
um undantekningartilvikum.
Þá er staðfest af viðurkenndunt
sænskukennara að viðkomandi
skilji bæði ritað og mælt mál og
geti gert sig skiljanlegan á
sænsku. Þó má benda á að tali
fólk reiprennandi sænsku getur
verið ávinningur í því að fá það
staðfest, til dæmis af sænsku-
kennara. Einnig er sjálfsagt að
geta þess þegar sótt er urn stöðu
að umsækjandi tali góða
sænsku.
Húsnæði
Yfirleitt er talið ráðlegt að
byrja í leiguhúsnæði. Húsaleiga
á almennum markaði er mis-
munandi eftir stöðum og oft
dýrari í stórborg en á minni
stöðum á landsbyggðinni. I
borgum er húsaleiga fyrir
þriggja til fjögurra herbergja
íbúð oftast á bilinu 30-50 þús-
und íslenskar krónur á mánuði
og er þá innifalið bæði hiti og
vatn. Kallast það „varm hyra'1
þegar hiti er innifalinn en ef það
er ekki er talað um „kall hyra'*
en mikilvægt er að hafa þessi
hugtök á hreinu þegar samið er
urn verð á leiguhúsnæði. Fyrir
raðhús hækkar leigan í 55-80
þúsund íslenskar krónur á mán-
uði. Leigusalar eru oftast sér-
stök leigufyrirtæki eða þá
einkaaðilar. I flestum tilvikum
fylgja íbúðunum raftæki, svo
sem ísskápur, eldavél, þvotta-
vél og þurrkari. Ef svo er ekki
má benda á að verð á rafmagns-
tækjum er umtalsvert lægra en á
íslandi.
Oftast er ekki miklum vand-
kvæðum bundið að verða sér úti
um húsnæði en best er að ganga
frá þessum málum með nokk-
urra mánaða fyrirvara. Hægt er
að leita til íslendinga í nágrenn-
inu og þeir geta síðan grennslast
fyrir urn húsnæði eða sent inn
auglýsingu í dagblöð. Oft er
árangursríkt að hengja upp hús-
næðisauglýsingu á þeim spítala
þar sem fyrirhugað er að stunda
nám.
Þegar fólk hefur áttað sig bet-
ur á hlutunum kemur til greina
að kaupa húsnæði. Verð á hús-
næði er rnjög breytilegt eftir
stöðum en þegar þetta er ritað
hefur markaðurinn verið í botni
og því hagstætt að kaupa hús-
næði. Aftur á móti er rétt að
hafa í huga að erfiðara er að
losna við húsnæði hafi fólk til
dæmis í huga að færa sig um set
innan Svíðþjóðar eða til ann-
arra landa.
Laun og skattar
Á sjúkrahúsum eru byrjunar-
laun aðstoðarlækna í kringum
160 þúsund íslenskar krónur á
mánuði fyrir dagvinnu (ágúst
1994). Heildarlaun ráðast af
vaktálagi en flestir eru á fjórum
til fimm vöktum á mánuði og
geta þá bæst við 40 - 50 þúsund
íslenskar við dagvinnulaunin.
Oft er þó greitt fyrir vaktir í
formi fría, að minnsta kosti að
hluta (sjá betur síðar). Greiðsl-
ur fyrir vaktir eru því ekki jafn
stór hluti af heildarlaununum
eins og á Islandi. I þessu sam-
bandi er rétt að árétta að sam-
anburður á launum á milli landa
er óviss mælikvarði á afkomu.
Sumarfrí er yfirleitt fimm vik-
ur en að auki eru vaktavinnufrí
sem er þá hluti af greiðslu fyrir
vaktir. Á flestum stöðum er
þess krafist að læknar taki helm-
ing til tvo þriðju hluta út í fríum
fyrir vaktir en hitt í launum. Á
sumum stöðum er þó hægt að
taka allt út í peningum. Vakta-
vinnufrí eru betri en á íslandi.
Sé gert ráð fyrir að urn það bil
tveir þriðju hlutar af greiðslu
fyrir vaktir séu teknir út í fríi og
vaktir séu fjórar til fimm á mán-
uði þýðir þetta einnar viku frí á
fimm til sex vikna fresti. Þetta
frí er til dæmis hægt að nota til
vísindarannsókna en oft er hægt
að semja við yfirmenn um að
safna upp vaktavinnufríum og
vinna annars staðar um tíma, til
dæmis á Islandi.
Vinnuvika sérfræðinga er 43-
48 klukkustundir á viku en
læknar í sérnámi (underlakare)
eiga yfirleitt að vinna 40-45
klukkustundir á viku. Yfirleitt
er ekki greitt sérstaklega fyrir
yfirvinnu. Unnið er frá mánu-
degi til föstudags en sums staðar
er hætt fyrr á föstudögum til
þess að Iengja helgina. Á flest-
um stöðum er frí að minnsta
kosti síðari hluta dags eftir vakt
en vaktir eru yfirleitt rnjög
annasamar. Vinnutími er yfir-
leitt frá kl. 07:30 til 17:00 með
klukkutíma í mat sem ekki telst
til vinnutímans.
Laun heilsugæslulækna eru
yfirleitt sambærileg launum
sjúkrahúslækna en ekki er greitt
sérstaklega fyrir afköst líkt og
heima á Islandi. Sumarfrí eru
einnig sambærileg en víða er
greitt að fullu fyrir vaktir í pen-
ingum og vaktavinnufrí því
styttri.
Skattar hafa síðustu ár lækk-
að umtalsvert í Svíþjóð og eru
nú í kringum 30% af fyrstu 200
þúsund sænskum krónum á ári