Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 61
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
403
ríkisins eins og almannatrygg-
ingalög gera ráð fyrir.
Sérfræðiþjónusta utan
sjúkrahúsa er veigamikill þáttur
í heilbrigðisþjónustunni og því
bæði æskilegt og eðlilegt að um
þann þátt sé fjallað í íslenskri
Heilbrigðisáætlun.
(Alyktunin hefw verið send
heilbrigðismálaráðherra og afrit
til TR, landlœknis, Sérfræðinga-
félags íslenskra lœkna og Félags
íslenskra heimilislœkna.)
V
Aðalfundur Læknafélags Is-
lands haldinn á Húsavík dagana
26. og 27. ágúst 1994 hvetur
Heilbrigðisráðuneytið til þess
að gera áætlun um verkaskipt-
ingu og starfssvið sjúkrahúsa í
landinu, leggja drög að sam-
vinnu þeirra og sérhæfingu og
reyna að meta með skipulögð-
um hætti hvar þörf uppbygging-
ar er mest. Hvar þurfi að fjölga
sjúkrarúmum og hvar megi
draga úr rekstri. Slík áætlun
gæti leitt til þess að fjármagnið
leitaði þangað, sem þess er mest
þörf.
(Ályktunin hefur verið send
heilbrigðismálaráðherra og afrit
til landlæknis, héraðslækna og
Landssambands sjúkrahúsa.)
VI
Aðalfundur Læknafélags Is-
lands haldinn á Húsavík dagana
26. og 27. ágúst 1994 skorar á
yfirvöld heilbrigðis- og mennta-
mála að fjölga kennurum við
læknadeild Háskóla íslands.
Fjölgun kennara er nauðsynleg
til að tryggja læknastúdentum
næga kennslu og tilsögn í klín-
ísku námi þeirra. Jafnframt er
fjölgun kennara nauðsynleg
vegna áætlana um aukið fram-
haldsnám ungra lækna á ís-
landi.
Háskóla íslands ber að viður-
kenna alla kennslu, sem læknar
leggja fram við háskólakennslu
heilbrigðisstétta.
(Ályktunin var send ráðherr-
um menntamála og heilbrigðis-
mála og afrit til lœknadeildar,
rektors Háskóla Islands og Fé-
lags lœknanema.)
VII
Aðalfundur Læknafélags ís-
lands haldinn á Húsavík dagana
26. og 27. ágúst 1994, leggur til
að stjórn Læknafélags Islands
skipi nefnd er kanni hvernig
skaðabótaábyrgð lækna er hátt-
að í nálægum löndum og kanni
með hvaða hætti sjúklingum er
bætt tjón, sem þeir hafa orðið
fyrir vegna læknisþjónustu.
Jafnframt verði lagt mat á það
hvernig slík mál hafa verið af-
greidd hér á landi. Telji nefndin
ástæðu til úrbóta, þá skal hún
leggja fram valkosti er tryggi
sem best hagsmuni sjúklinga og
lækna.
Nefndin skal skila skýrslu
fyrir næstu formannaráðstefnu
Læknafélags Islands.
(Nefndin verður skipuð síðar
og eru lœknar hér með minntir á
málþing um bótaábyrgð heil-
brigðisstétta og sjúkrastofnana,
sem auglýst er hér í blaðinu.)
VIII
Aðalfundur Læknafélags ís-
lands haldinn á Húsavík dagana
26. og 27. ágúst 1994 varar við
vaxandi hættu af ýmsum illvið-
ráðanlegum smitsjúkdómum.
Fundurinn telur núverandi
skipulag, viðbrögð og viðbúnað
gegn þessari ógnun ekki full-
nægja þeim öryggiskröfum og
möguleikum sem lega landsins,
fámenni og þekking lækna gefur
tilefni til.
Fundurinn ályktar að stjórn
Læknafélags íslands skipi
starfshóp til að vinna að nauð-
synlegum úrbótum á þessu
sviði.
(Stjórn LÍmun ræða við land-
lœkni um stöðu þessara mála
áður en starfshópur verður skip-
aður.)
IX
Aðalfundur Læknafélags ís-
lands haldinn á Húsavík dagana
26. og 27. ágúst 1994 felur stjórn
LI að kanna hvernig almanna-
tengslum læknasamtakanna
verði best við komið með það
fyrir augum að viðhalda já-
kvæðu viðhorfi samfélagsins til
starfa lækna.
(Viðræður við sérfrœðinga á
þessu sviði eru þegar hafnar.)
Tillögu um að stjórn LI kann-
aði möguleika á ráðningu hag-
fræðings var vísað frá.
Breyting á lögum LÍ
Eftirfarandi breytingar
voru samþykktar á aðal-
fundi LÍ
1. 2. málsliður 1. greinar orð-
ist þannig: Lögheimili þess
og varnarþing er í Kópa-
vogi.
2. Við 3. grein bætist:
Bráðabirgðaákvæði:
Einstakir læknar innanlands,
sem ekki eru í svæðafélagi,
skulu njóta sama réttar og
kveðið er á um í 3. mgr. þess-
arar greinar. Ákvæði þetta
gildir frá aðalfundi 1994 fram
að aðalfundi 1995.
Ný stjórn LÍ
Að loknum aðalfundi LÍ
1994 er stjórn félagsins
þannig skipuð:
Sverrir Bergmann formaður,
Sveinn Magnússon varafor-
rnaður, Guðmundur J. Elías-
son ritari, Ludvig Á. Guð-
mundsson gjaldkeri, Guð-
mundur Björnssson, Jón V.
Högnason, Drífa Freysdóttir
og Páll Torfi Önundarson
meðstjórnendur.