Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 44
388
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
var fengið læknabréf. Þeim sjúklingum er ekki
náðist í símleiðis var skrifað og leitað upplýs-
inga. Upplýsingar unt þá sjúklinga er voru látn-
ir fengust með dánarvottorðum frá Hagstofu
íslands og/eða úr sjúkraskýrslum, væru þær
fyrir hendi.
Stadtölulegar aöferöir: Beitt var kí-kvaðrat
prófi og 95% öryggismörk talin marktæk
(p<0,05).
Niðurstöður
í upphaflegu rannsókninni voru 54 konur
(48,6%) og 57 karlar (51,4%). Meðalaldur var
52,9 ár og aldursdreifing 10-91 árs. Af þessuni
111 var 21 (18,9%) dáinn, átta konur og 13
karlar. Meðaldánaraldur var 72,7 ár og aldurs-
dreifing 42-92 ár. Hjá þeim 90 sem eftir lifðu
fengust upplýsingar frá 81 einstaklingi. Endur-
tekið yfirlið fannst hjá 20 (24,7%), níu körlurn
og 11 konunt.
Látnir: í töflu I sést skipting hópsins eftir
upphaflegri sjúkdómsgreiningu og hve margir
úr hverjum hópi eru látnir. Dánarorsökunt var
skipt niður í annars vegar þá sem létust vegna
hjartasjúkdóma og hins vegar þá sem létust af
öðrunt orsökum.
í töflu II er hópi látinna skipt í tvennt eftir
tímalengd frá yfirliði til andláts. Annars vegar
þá sem létust innan 12 mánaða og hins vegar þá
sem létust síðar. Flokkað var eins og áður eftir
upphaflegri sjúkdómsgreiningu. Alls létust 10
innan 12 ntánaða. í ljós kont að sex létust vegna
hjartasjúkdóma, fjórir vegna annarra orsaka
(lungnabólgu eða illkynja sjúkdóms). Ellefu
létust eftir 12 mánuði, af þeim Iétust fimrn
vegna hjartasjúkdóma en sex vegna annarra
orsaka.
Af þeim 21 sem dóu létust 11 vegna hjarta-
sjúkdóma, þar af sjö vegna hjartabilunar (tveir
höfðu einnig lungnabólgu) og tveir úr bráðu
hjartadrepi. Einn sjúklingur með neggauka-
þrengsli (hypertrophic obstructive cardiom-
yopathy) dó skyndidauða og einn dó vegna
lungnablóðreks. Af hinum 10 létust fimm úr
lungnabólgu, fjórir úr krabbameini og einn úr
heilablæðingu.
Samkvæmt aldursstöðluðum töflum fyrir
Norðurlönd (8) er dánartíðni í þýðinu 0,65%
árið 1986, 0,7% árið 1987, 0,72% árið 1988 en
töflur fyrir 1989 og 1990 eru ekki handbærar. Ef
reiknað er nreð sömu dánartíðni fyrir þessi ár
og hæsta talan notuð fyrir 1989 og 1990 (0,72%)
Table I. Tolal and cardiovascular mortality in 111 patients with syncope after five years according to class.
Class Number of patients Number of deaths (%) Mortality CVD* non-CVD Mean age of death Mean age at syncope
Vasovagal 46 3 ( 6.5) 1 2 81 40
Cardiovascular 11 4 (36.4) 3 1 78 64
Orthostatic hypotension 22 8 (36.4) 4 4 76 65
C.N.S diseases 9 2 (22.2) 1 1 57
Metabolic causes 3 1 (33.3) 1 83
Unknown 20 3 (15.0) 1 2 63 61
Total 111 21 (18.9) 11 10 73
*) Cardiovascular disease
Table II. Mortality before and after one year, according to major causes of syncope.
Class No. of patients No of. deaths No. of deaths >12 mon. (%) Cardiovasc. mortality No. of deaths <12 mon. (%) Cardiovasc. mortality
Vasovagal 46 3 2 ( 4.2) 1 1 ( 2.1) 0
Cardiovascular 11 4 1 ( 9.1) 1 3 (27.3) 2
Orthostatic hypotension 22 8 5 (21.7) 3 3 (13.0) 1
C.N.S diseases 9 2 0 2 (22.2) 1
Metabolic causes 3 1 1 (33.3) 1 0
Unknown 20 3 1 ( 5.0) 0 2 (10.0) 1
Total 111 21 10 ( 9.0) 6 11 ( 9-9) 5