Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 91
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
431
Leiðrétting vegna skrifa í Eintaki
í vikublaðinu Eintaki mánu-
daginn 5. september 1994 birtist
svohljóðandi klausa: „Aðal-
fundur Lœknafélagsins var
haldinn ú Húsavík ísíðasta mán-
uði og mœtti Birna Þórðardóttir
ritstjóri Lœknablaðsins galvösk.
Var hún fljótlega beðin um að
víkja úr salnum ásamt öðrum
þeim sem ekki voru félagar í
lœknafélaginu. Birna hefur
löngum verið umdeilanleg kona
og hefur hún meðal annars verið
gagnrýnd fyrir að krefjast náms-
leyfis eins og þau sem læknar
njóta...“
Rétt þykir að koma leiðrétt-
ingum við klausu þessa á fram-
færi við lækna. Rétt er að aðal-
fundur Læknafélags Islands var
haldinn á Húsavík dagana 26.
og 27. ágúst síðastliðinn. Rétt er
einnig að Birna Þórðardóttir rit-
stjóri Læknablaðsins var á fund-
inum. Rangt er að hún hafi
verið beðin að víkja úr salnum
ásamt öðrum sem ekki voru fé-
lagar í Læknafélagi Islands.
Rangt er að hún hafi krafist
námsleyfa eins og samningar
lækna gerir ráð fyrir læknum til
handa.
Leitt er til þess að vita ef
læknir eða læknar - en vart væru
aðrir til frásagnar - telja það
samboðið virðingu sinni að fara
með fleipur og ósannindi og
rógbera starfsmann læknasam-
takanna.
Stjórn Læknafélags íslands
býður jafnan ritstjóra Lækna-
blaðsins að sitja aðalfund til
þess bæði að veita þær upplýs-
ingar sem nauðsyn krefur og
eins þess að gegna þar starfi
fréttamanns.
Birna er ráðin til læknasam-
takanna eftir kjarasamningi
Blaðamannafélags íslands. í
fjórða kafla þess kjarasamnings
þriðju grein segir: „Blaðamenn
sem unnið hafa óslitið fimm ár
eða lengur hjá sama blaði, skulu
að loknu fimm ára starfi fá
þriggja mánaða frí á fullum
launum, og skal þá innifalið
sumár- og vetrarleyfi ársins.
Blaðamenn fái þettafrí aftur eft-
irlO ára starf síðan hverju sinni
eftir fjögur ár. Blaðamenn noti
leyfið til utanfarar eða á annan
hátt í samráði við útgefendur í
því skyni að aaka hœfni sína í
starfi, og skrifi þeir greinar í
blöð sín eftir samkomulagi".
Síðan fylgir enn frekari skil-
greining sem ástæðulaust er að
rekja hér. Birna hefur engra
kjara notið sem falla utan þessa
kjarasamnings né heldur gert
kröfur um slíkt. Hún hefur
reyndar hvergi nærri nýtt
ákvæði kjarasamnings Blaða-
mannafélags íslands sér til
fullnustu og hafa læknasamtök-
in notið þess sem og óumdeilan-
legs dugnaðs hennar og hæfni í
starfi sem ritstjóri Læknablaðs-
ins.
Engum getum skal að því leitt
hvaða fulltrúi á aðalfundi
Læknafélags Islands hefur
fundið það samboðið sér að
koma á framfæri ósannindum í
vikublaðið Eintak. Slíkir eru
mest vorkunnarverðir. Ég vil þó
benda á að séu fréttirnar frá ein-
hverjum úr hópi fulltrúa
Læknafélags Reykjavíkur þá
eru þeir einnig mínir fulltrúar á
aðalfundi og hafa ekki til þess
umboð frá mér né heldur mikl-
um meirihluta lækna að hafa
uppi í sífellu ósannindi og róg-
burð um ritstjóra Læknablaðs-
ins. Slíkt umboð gefa að vonum
engir.
Sverrir Bergmann,
formaður Læknafélags íslands
Bólusetning gegn inflúensu
Alþjóðaheilbrigðisstofnun-
in ráðleggur að inflúensubólu-
efni 1994-95 innihaldi eftir-
talda stofna:
A/Shangdong 9/93
A/Singapore /6/86/(HlNl)
B/Panama 45/90
Hverja á að bólusetja?
— Alla einstaklinga eldri en
60 ára.
— Öll börn og fullorðna sem
þjást af langvinnum
hjarta-, lungna-, nýrna- og
lifrarsjúkdómum, sykur-
sýki, illkynja sjúkdómum
og öðrum ónæmisbælandi
sjúkdómum.
— Starfsfólk heilbrigðisþjón-
ustu og aðra þá sem dag-
lega annast fólk með
aukna áhættu.
Frábendingar
Ofnæmi gegn eggjum,
formalíni eða kvikasilfri.
Bráðir smitsjúkdómar.
Lyfjaverslun íslands útveg-
ar bóluefni. Pantanir þurfa að
hafa borist Lyfjaverslun ís-
lands fyrir 1. október. Brýnt er
að bólusetningum ljúki eigi
síðar en í nóvemberlok. Bólu-
efni frá fyrra ári má endur-
senda til Lyfjaverslunar ís-
lands, sem tekur við því til
eyðingar.
Landlæknir