Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 36
382
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
ins eru tveir sjúkraflutningamenn frá Slökkvi-
stöð Reykjavíkur sem hlotið hafa ítarlega þjálf-
un í flutningi og meðferð bráðveikra og
slasaðra ásamt reyndum aðstoðarlækni af lyf-
lækningadeild Borgarspítalans.
Neyðarbíllinn er að jafnaði staðsettur á
slysadeild Borgarspítalans og er útbúinn full-
komnum tækjum, meðal annars til að veita
sérhæfða endurlífgun og má nánast líta á sem
færanlega gjörgæslu. Megintilgangur starfsem-
innar er að veita slösuðum og öðrum bráðveik-
um sjúklingunr sérhæfða meðferð svo fljótt
sem kostur er.
Á árunum 1982-1986 var neyðarbíllinn ein-
ungis starfræktur á daginn og á kvöldin til mið-
nættis sex daga vikunnar (1). Frá 1989 hefur
hann verið rekinn allan sólarhringinn og hefur
tjöldi útkalla verið á bilinu 3000-3500 á ári eða
tæplega þriðjungur allra sjúkraflutninga á
Reykjavíkursvæðinu (mynd 1). Við teljum að
þessi breyting á starfstíma neyðarbílsins hafi
ekki haft áhrif á árangur endurlífgunar þar sem
engin breyting varð á meðferð eða útkallstíma.
Sjúkdómar hafa reynst vera um 67% útkalla
að jafnaði en um 25% þeirra hafa verið vegna
slysa. Algengustu bráðasjúkdómar hafa verið
úr flokki hjarta- og æðasjúkdóma, heila- og
taugasjúkdóma og lungnasjúkdóma en útköll
vegna eitrana, efnaskiptatruflana og bráðaof-
næmis eru ekki óalgeng. Um 2% af heildar-
útköllum neyðarbílsins hafa verið vegna
hjarta- og öndunarstöðvunar eða um 60 tilfelli
árlega.
Árið 1986 komu út nýjar leiðbeiningar urn
sérhæfða endurlífgun frá ameríska hjartafélag-
inu (American Heart Association: Standards
and guidelines for cardiopulmonary resuscita-
tion and emergency cardiac care) (2). I þeim
var meðal annars lagst gegn notkun bíkarbón-
ats sem til þess tíma hafði verið notað sem
fyrsta lyf þegar urn hjarta- og öndunarstöðvun
var að ræða. Einnig var nánast tekið fyrir notk-
un kalsíums og ísóprenalíns auk nokkurra ann-
arra breytinga sem lagðar voru til. Allir læknar
neyðarbílsins sækja námskeið í sérhæfðri end-
urlífgun áður en þeir hefja störf á bílnum. Pessi
námskeið hafa miðast mjög við hinar amerísku
leiðbeiningar enda hafa þær til skamms tíma
verið þær einu sem tiltækar hafa verið. Frá
árinu 1987 hefur í öllum aðalatriðum verið far-
ið eftir endurskoðuðum leiðbeiningum frá 1986
og þótti því áhugavert að kanna hvort breytt
meðferð hefði í för með sér aðrar og ef til vill
Fjöldi
□ Útköll
. "'ltssk
■ Á-
•• -i Sf
• 1
j* g(: Jj.
‘hf:-: ■ Át.:
1989 1990 Ár
Mynd 1. Heildarútköll neydarbíls á hverju ári 1987-1990.
jákvæðari niðurstöður en áður hafa fengist
með rekstri neyðarbílsins.
Efniviður og aðferðir
Safnað var upplýsingum fyrir tímabilið 1987-
1990 af sérstökunr eyðublöðunr sem læknir
neyðarbílsins útfyllir jafnóðunr eftir hvert út-
kall vegna hjarta- og öndunarstöðvunar í sam-
ræmi við alþjóðlegar leiðbeiningar (3).
Eftir hvert tilfelli er skráð nafn sjúklings,
kennitala, heimilisfang, hvar tilfellið átti sér
stað, hvort vitni voru að því eða ekki og hvort
nærstaddir hófu endurlífgun eða ekki. Hjart-
sláttartruflun á fyrsta riti er skráð, svo og allar
læknisaðgerðir, svo sem hvers konar öndunar-
aðstoð, rafstuð og lyfjagjafir. Jafnframt eru
skráð helstu atriði líkamlegrar skoðunar,
fyrstu sjúkdómsgreiningar og greint frá afdrif-
um sjúklings. Eftir hvert útkall var skráð á
Slökkvistöð Reykjavíkur nákvæmlega hvenær
tilkynning barst, hvenær neyðarbúl var kom-
inn á staðinn, hvenær sjúklingur var kominn í
bflinn og hvenær neyðarbfllinn var kominn
með sjúkling á sjúkrahús.
Fengin voru afrit af sjúkraskrám þeirra
sjúklinga sem lögöust inn á Borgarspítalann,
Landspítalann og Landakot og könnuð afdrif
þeirra.
Utkallstími var skilgreindur sem sá tími sem
líður frá því að boð berast Slökkvistöð Reykja-
víkur þar til neyðarbíll kemur á staðinn.
Niðurstöður
Á árunum 1987-1990 voru 230 endurlífgun-
artilraunir gerðar af áhöfn neyðarbílsins.
Þegar hjarta- og öndunarstöðvun vegna slysa,
drukknunar, ofneyslu vímuefna og sjálfsvígs