Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
375
Getuleysi meðal íslenskra karla
Magnús Gottfreðsson1,21, Guðmundur Vikar Einarsson2>' Guðmundur S. Jónsson31
Gottfreðsson M, Einarsson GV, Jónsson GS
Iinpotence among Icelandic niales 1986-1991
Læknablaðið 1994; 80: 375-80
The estimated prevalence of impotence in western
societies approximates 7%. A retrospective descrip-
tive study was performed on 282 Icelandic males
(mean age 53.5 years, range 19-79) referred for
evaluation of impotence during the period 1986-
1991. Diagnostic modalities included measurements
of nocturnal penile tumescence (NPT) and penite-
brachial index (PBI), hormonal profile and cavemo-
sography.
In 55% the NPT was abnormal. In contrast, only
8.2% of PBI was abnormally low. By logistic regres-
sion abnormal NPT results correlated with increas-
ing age. Measurements of hormonal profile was per-
formed in 73.4% of the patients. Testosterone was
found to be below normal in 12.1%. However, pri-
mary or secondary hypogonadism was only found in
3.9% and elevated prolactin in 2.8%. By caverno-
sography, venous Ieakage was demonstrated in
3.2% of the men and subsequently ligation of the
dorsal penile vein was performed. A trial of testos-
terone treatment was given in 39.4% of the patients.
Impotence is a common complaint among men. Psy-
chological factors predominate in young men and
the contribution of somatic etiologic factors increas-
es with age. In the majority of patients relatively
simple studies can give useful information on the
etiology of impotence.
Frá 1|lyflækningadeild og 2,handlækningadeild Landspítal-
ans, 3,rannsóknastofu í eðlisfræði — æðarannsóknum,
læknadeild Háskóla islands. Fyrirspurnir, bréfaskipti:
Magnús Gottfreðsson, Duke Univ. Med. Center, Dept. of
Medicine, P.O. Box 31171, Durham, NC 27710, USA.
Ágrip
Talið er að um 7% karla séu getulausir og
eykst tíðnin með hækkandi aldri. Hérlendis
hafa engar rannsóknir farið fram á orsökum
getuleysis, en kyngeturannsóknir hófust 1986.
Farið var yfir gögn 282 karla, sem vísað var
til kyngeturannsókna á árunurn 1986-1991
vegna kvartana um getuleysi. Meðalaldur karl-
anna var 53,5 ár (19-79 ára). Niðurstöður blóð-
þrýstingsmælinga á getnaðarlimi, næturrismæl-
inga, hormónamælinga og sérhæfðra röntgen-
rannsókna voru kannaðar.
Meirihluta karlanna (55%) reyndist hafa
óeðlilegt næturrispróf og þar með getuleysi
sem taldist vera af líkamlegum orsökum. Tæp-
lega tíundi hluti (8,2%) var með óeðlilega lág-
an blóðþrýsting í aðrennslisæðum getnaðar-
lims. Hjá 12,1% karlanna var testósterón lækk-
að, en merki um vanstarfsemi heiladinguls eða
kynkirtla fannst hjá 3,9%. Hjá 2,8% mældist
hækkað prólaktín. Bláæðaleki greindist hjá
3,2% karlanna og fóru þeir allir í aðgerð.
Hækkandi aldur var sterkasti áhættuþáttur
getuleysis af líkamlegum toga.
Getuleysi er algeng kvörtun meðal karla. í
mörgum tilvikum er unnt að komast nær or-
sökum þess með einföldum rannsóknum og
byggja ákvarðanir um meðferð á niðurstöðum
þeirra.
Inngangur
Á íslandi hefur getuleysi lítið verið rann-
sakað enda stutt síðan aðstaða var sköpuð til
sérhæfðrar greiningar og grundvöllur þannig
lagður að bættri meðferð. í íslenskum bók-
menntum og annálum er hins vegar unnt að
finna stöku frásagnir af getuleysi karla:
„Á Eyrarbakka giftist ein áttrœð rúmt tvítug-
um manni haustið fyrir bólu, og vildi honum
aftur skila um vorið impotentiae causa. “(1)
Enda þótt getuleysi tvítugra karla sé tiltölu-
lega sjaldgæft er getuleysi meðal eldri karla