Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 66
406
LÆKNABLAÐIÐ 1994; 80
Frá Læknafélagi Reykjavíkur
Á aðalfundi LÍ, sem haldinn
var á Húsavík dagana 26.-27.
ágúst síðastliðinn voru sam-
þykktar nokkrar ályktanir, sem
hafa munu töluverð áhrif á starf
LI en einnig á svæðafélögin ekki
síst LR.
Meðal annars var samþykkt
að stefna að lagabreytingu á
næsta aðalfundi LÍ. seni heimil-
aði einu svæðafélagi að kjósa
fleiri fulltrúa á aðalfund, en hin
aðildarfélögin öll gera til sam-
ans, en það hefur ekki verið
heimilt samkvæmt núgildandi
lögum LÍ.
Staðan er nú þannig að á síð-
asta ári voru innheimt sem svar-
aði 771 fullu árgjaldi til LÍ. þar
af 610 (79%) frá félögum í LR.
Það er því réttlætismál að
breyta lögum LÍ þannig, að at-
kvæðaréttur lækna á Reykjavík-
ursvæðinu sé svipaður og lækna
sem búa annars staðar á land-
inu. Þá gæfist færi á að senda
fleiri fulltrúa frá sérgreinafélög-
um og unglæknum en unnt hef-
ur verið hingað til svo dæmi séu
tekin.
Þá var samþykkt að breyta
lögum LI þannig, að einstak-
lingsaðild lækna á íslandi væri
heimiluð fram að aðalfundi LI
1995. Ég h't svo á að með þessari
lagabreytingu gefist tími til að
vinna að skynsamlegum sátta-
leiðum og skipulagsbreytingum
innan læknasamtakanna.
Þá samþykkti aðalfundurinn
allar ályktunartillögur bornar
fram af LR með litlum breyting-
um, meðal annars um að starf-
semi sérfræðinga utan sjúkra-
húsanna skyldi tekin inn í Heil-
brigðisáætlun íslands. I
mörgum tilvikum starfa sér-
fræðingar saman svo tugum
skiptir á sérfræðingastöðvum,
sem þeir eiga sjálfir og reka.
Það er fráleitt að ekki skuli vik-
ið einu orði að þessari starf-
semi, í annars að mörgu leyti
ágætri áætlun. Á meðan ekki er
gerð á þessu breyting er hætt við
að það taki hvern nýjan heil-
brigðisráðherra langan tíma að
átta sig á því hve umfangsmikil
þessi þjónusta er og ekki síður
hve hagkvæm hún er þjóðfélag-
inu.
Einnig var samþykkt að meta
með skipulögðum hætti hvar sé
mest ástæða til eflingar sjúkra-
húsa í landinu og gerð verði um
það áætlun þannig að fjármagn-
ið leiti þangað sem þess er mest
þörf.
Samþykkt var að skora á yfir-
völd heilbrigðis- og mennta-
mála, að fjölga kennurum við
læknadeild HÍ ekki síst vegna
áætlana um aukið framhalds-
nám ungra lækna. Að þeim mál-
um þarf að sjálfsögðu að vinna í
náinni samvinnu við lækna-
deild.
Hvatt var til þess að lækna-
samtökin könnuðu með hvaöa
hætti skaðabótaábyrgð lækna
er háttað í nálægum löndum og
hvernig best væri að haga þeim
málum á Islandi.
Þá var hvatt til aukinna varna
gegn ýmsum hættulegum smit-
sjúkdómum og því beint til
stjórnar LI að skipa starfshóp til
að vinna að úrbótum á þessu
sviði.
Ákveðið var að boða til auka-
aðalfundar LÍ fyrir lok nóvem-
ber næstkomandi þar sem enn
frekar yrði rætt um skipulag
læknasamtakanna og meðal
annars fjallað unt það hvort LI
skuli sjá um gerð allra kjara-
samninga fyrir lækna.
Skipun samninganefnda -
deildaskipting innan LR
í skýrslu nefndar, sem fjallaði
urn skipulag LI og birtist í
Fréttabréfi lækna í júní síðast-
liðnum, var meðal annars gert
ráð fyrir því, að LI sæi unt gerð
allra kjarasamninga fyrir lækna,
en í átatugi hafa samningar sér-
fræðinga við TR verið á forræði
LR ásamt með samningum
lækna við sjúkrastofnanir
Reykjavíkurborgar. Þetta fyrir-
kontulag mun á sínum tíma hafa
þótt heppileg verkaskipting á
milli LÍ og LR og gafst lengst af
ágætlega. I tenglsum við síðustu
kjarasamninga LR við TR kom
upp ágreiningur innan LR. sem
átti þó sennilega lengri aðdrag-
anda, en endaði sem kunnugt er
þannig, að 23 heilsugæslulækn-
ar sögðu sig úr félaginu. Fram-
komin tillaga skipulagsnefndar-
innar um að LÍ sjái um alla
kjarasamninga er lögð fram í
jjeini tilgangi aö sættir geti tekist
innan LR. Til mikils er að
vinna. Ýmsir félagar í LR, með-
al annars fyrrum stjórnarmenn í
félaginu. hafa þó lýst efasemd-
urn um ágæti þessara hugmynda
og hafa jafnvel tekið svo djúpt í
árinni, að það dræpi félagið,
sem verður 85 ára þann 18.
október næstkomandi. Aðrir
hafa bent á, að flytjist forræði
allra samninga yfir til LI flyttust
í raun ágreiningsmálin um leið.
Á þessu stigi málsins er því leit-
að eftir hugmyndum að leiðunt
til sátta. Þeim geta menn komið
á framfæri hér í Læknablaðinu
eða skotið þeim til stjórna félag-
anna.
Stungið hefur verið upp á því,
að LÍ skipi samninganefnd sér-
fræöinga að hluta til samkvæmt