Læknablaðið - 15.10.1994, Blaðsíða 4
„Ef þetta hjálpar ekki getur þú komið aftur og fengið eitthvað annað"
„Gæti ég ekki alveg eins fengið þetta annað núna?"
Afhverju ekki að byrja
strax á bestu og ódýrustu
meðferðinni?
Með því að nota Losec® við bakflæði fæst styttri meðferðartími
og sjúklingnum líður betur (QoL) en á meðferð með H2 blokkum.
Jafnframt er Losec®ódýrari fyrir þjóðfélagið
Eiginleikar: Lyfið blokkar prótonupumpuna (K+, H+
- ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur
þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldar-
framleiðslu og við hvers konar örvun. Lyfið frásog-
ast frá þörmum á 3-6 klst. og er er aðgengi nálægt
35% eftir einstaka skammt en eykst i 60% við
stöðuga notkun. Hvorki matur ná sýrubindandi lyf
hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding i blóði
er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er
u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun
lengur en því samsvarar og er taliö, að verkun
hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega.
Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin
að mestu út með þvagi.
Ábendingar: Sárasjúkdómur i skeifugörn og maga.
Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison
heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar
greiningar séu staðfestar með speglun. Langtíma-
notkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við
síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn: Ekki
er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár.
Frábendingar: Engar þekktar.
Aukaverkanir: Aukaverkanir eru almennt fátíðar.
Húð: Útbrot koma fyrir svo og bráðaofnæmi og
kláði. Stoðkerfi: Liðverkir og vöðvaþreyta. Eymsli í
vöðvum. Taugakerfi: Höfuðverkur. Sjaldan svimi.
Paraestesiur. Syfja og svefnleysi hefur einnig sést.
Tímabundið rugl, oflæti, þunglyndi og ofskynjanir
hafa einnig verið tengd gjöf lyfsins í einstaka tilvik-
um, einkum hjá mjög veikum sjúklingum.
Meltingavegur: Breytingar á hægðum (niðurgang-
ur, hægðartregða). Kviðverkir, ógleði, uppköst og
aukin vindgangur. Lifur: Lifraenzým hafa hækkað
með eða án bilirúbinhækkun. Innkirtlar: Brjósta-
stækkun hefur sést. Blóð: Einstaka tilvikum um
fækkun hvítra blóðkorna og blóðflagna hefur verið
lýst.
Milliverkanir: Ómeprazol getur minnkað umbrots-
hraða díazepams, warfarins og fenýtóíns í lifur.
Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarin eða
fenítóín og getur verið nauðsynlegt að minnka
skammta.
Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um
eitaurverkanir ( mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar
um meðferð eru því ekki þekktar.
Athugið: Ekki er ráðlagt að gefa lyfið á
meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn
ástæða sé til.
Skammtastærðir handa fullorðnum:
Siruhjúphilkinn á að gleypa heil með a.m.k. 1/2
glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna f t.d.
skeið og taka það þannig inn að þau má ekki
tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkinn í
vandlega lokuðu glasi. Sýruhjúphylki: Skeifu-
garnarsár: Venjulegu skammtur er 20 mg. á dag í 2
vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð
áfram í 2 vikur i viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa
ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg. einu
sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan
4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg.
á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda
meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúkling-
um, sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40
mg. einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið,
oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bak
flæðis: Venjulegur sklammtur er 20 mg. á dag i 4
vikur. Hafi bólgan ekki læknast má halda meðferð
áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem
hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg. einu
sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venju-
lega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni
(syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg. einu
sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju
sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg. á dag.
Fari dagskammtur yfir 80 mg. þarf að skipta hon-
um í tvær lyfjagjafir. Langtímameðferð vegna bak-
flæðis f vélinda eða vegna síendurtekins sársjúk-
dóms í maga eða skeifugörn: Venjulegur skamm-
tur er 20 mg. einu sinni á dag. Ef einkenni versna
má auka skammtinn i 40 mg. einu sinni á dag.
Skammastærðir handa börnum: Enginn reynsla er
af notkun lyfsins hjá börnum.
Framleiðandi: Astra.
Einkaumboð á fslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2,
Garðabæ.
2
|
E
I