Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 4

Læknablaðið - 15.10.1994, Page 4
„Ef þetta hjálpar ekki getur þú komið aftur og fengið eitthvað annað" „Gæti ég ekki alveg eins fengið þetta annað núna?" Afhverju ekki að byrja strax á bestu og ódýrustu meðferðinni? Með því að nota Losec® við bakflæði fæst styttri meðferðartími og sjúklingnum líður betur (QoL) en á meðferð með H2 blokkum. Jafnframt er Losec®ódýrari fyrir þjóðfélagið Eiginleikar: Lyfið blokkar prótonupumpuna (K+, H+ - ATPasa) i paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldar- framleiðslu og við hvers konar örvun. Lyfið frásog- ast frá þörmum á 3-6 klst. og er er aðgengi nálægt 35% eftir einstaka skammt en eykst i 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur ná sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding i blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er taliö, að verkun hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sárasjúkdómur i skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Langtíma- notkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn: Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár. Frábendingar: Engar þekktar. Aukaverkanir: Aukaverkanir eru almennt fátíðar. Húð: Útbrot koma fyrir svo og bráðaofnæmi og kláði. Stoðkerfi: Liðverkir og vöðvaþreyta. Eymsli í vöðvum. Taugakerfi: Höfuðverkur. Sjaldan svimi. Paraestesiur. Syfja og svefnleysi hefur einnig sést. Tímabundið rugl, oflæti, þunglyndi og ofskynjanir hafa einnig verið tengd gjöf lyfsins í einstaka tilvik- um, einkum hjá mjög veikum sjúklingum. Meltingavegur: Breytingar á hægðum (niðurgang- ur, hægðartregða). Kviðverkir, ógleði, uppköst og aukin vindgangur. Lifur: Lifraenzým hafa hækkað með eða án bilirúbinhækkun. Innkirtlar: Brjósta- stækkun hefur sést. Blóð: Einstaka tilvikum um fækkun hvítra blóðkorna og blóðflagna hefur verið lýst. Milliverkanir: Ómeprazol getur minnkað umbrots- hraða díazepams, warfarins og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarin eða fenítóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eitaurverkanir ( mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru því ekki þekktar. Athugið: Ekki er ráðlagt að gefa lyfið á meðgöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Skammtastærðir handa fullorðnum: Siruhjúphilkinn á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna f t.d. skeið og taka það þannig inn að þau má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkinn í vandlega lokuðu glasi. Sýruhjúphylki: Skeifu- garnarsár: Venjulegu skammtur er 20 mg. á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur i viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg. einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg. á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúkling- um, sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40 mg. einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bak flæðis: Venjulegur sklammtur er 20 mg. á dag i 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg. einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venju- lega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg. einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg. á dag. Fari dagskammtur yfir 80 mg. þarf að skipta hon- um í tvær lyfjagjafir. Langtímameðferð vegna bak- flæðis f vélinda eða vegna síendurtekins sársjúk- dóms í maga eða skeifugörn: Venjulegur skamm- tur er 20 mg. einu sinni á dag. Ef einkenni versna má auka skammtinn i 40 mg. einu sinni á dag. Skammastærðir handa börnum: Enginn reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Framleiðandi: Astra. Einkaumboð á fslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. 2 | E I

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.