Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.06.1997, Side 29

Læknablaðið - 15.06.1997, Side 29
tiugrnin grlinðllðhútiirifínP Prazol Áhrifaríkt íslenskt magalyf sem vinnur á sýruvandanum Sýruhjúphylki; A 02 B C 01 Afgreiðslutilhögun: Greiðsluþátttaka: E. Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar: Lyfið blokkar prótónupumpuna (K+,H+- ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfið dregur þannig úr framleiðslu magasýru, bæði hvíldarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frásogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir einstakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins Próteinbinding í blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábendingar: Sársjúkdómur í og maga. Bólga í vélinda vegna bakflæðis Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome) Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar með speglun. Langtímanotkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn. Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár. Frábendingar: Engar þekktar. Meðganga og brjóstagjöf: Ekki er ráðlegt að gefa lyfið á meögöngutíma og við brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægöatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (>1%): Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleði uppköst, hægðatregða, kviðverkir og aukinn vindgangur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húð: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst í tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað Liðverkir, vöðvaþreyta, vöðvaverkir. Tímabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýkingar í munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrabólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanlr: Ómeprazól getur minnkað umbrotshraða díazepams, warfaríns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eða fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar ekki þekktar. Skammtastærðir handa fullorðnum: Sýruhjúphylkin á að gleypa heil með a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka lyfiö þannig inn en innihaldið má ekki tyggja. Gæta skal þess að geyma hylkin í vandlega lokuöu glasi. Skeifugamarsár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viöbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sáriö gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf aö skipta honum í tvær lyfjagjafir. Langtímameðferð vegna bakflæðis í vélinda eða vegna siendurtekins sársjúkdóms í maga eða skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag. Skammtastærðir handa börnum: Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar og verð: 14 stk.(kr.3681), 28 stk.(kr.6439), 56 stk.(kr.11685) og 100 stk.(kr.19591). Mars 1997
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.