Læknablaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 90
442
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
talsvert meiri umbun. Petta er
kannski sett fram dálítið hvasst
en það má segja að álagsstörfin
séu þarna minna metin en þau
sem vinna má eftir ferliverka-
samningnum og faglega er þetta
út í hött, það er ekki heil fagleg
brú í þessu fyrirkomulagi.
Sigurður segir að þessi mis-
munun eigi ekki aðeins við
lækna innbyrðis heldur og aðrar
heilbrigðisstéttir, til dæmis
hjúkrunarfræðinga sem oftast
vinni við hlið læknanna í ferli-
verka- eða göngudeildarþjón-
ustunni, en það geti einnig átt
við sjúkraþjálfara og lyfjafræð-
inga. Þeir séu að veita þjónustu
sína á fastakaupinu einu en
læknar fái greitt eftir samningn-
um við TR.
Minni áhersla á
kennslu og rannsóknir
- Fyrir utan þessa mismunun
sem veldur leiðindum innan
stéttarinnar er annað atriði sem
er ekki síður alvarlegt ef haldið
verður áfram að auka áherslu á
þetta greiðslufyrirkomulag fyrir
ferliverk. Það er hvernig fer
með kennslu og rannsóknir sem
háskólaspítala er gert að
stunda. Ef læknar eru í síaukn-
um mæli að taka að sér verkefni
utan spítala fyrir sérstakar
greiðslur þá verður það bæði til
þess að möguleikar háskóla-
spítalans til að sinna fjölbreyttri
kennsluskyldu sinni minnka og
áhugi lækna beinist að ferliverk-
unum en ekki þeirri skyldu að
kenna og stunda rannsóknir.
Vinnudagurinn er hreinlega
ekki svo langur að nokkur tími
verði til að sinna þessum verk-
efnum ef læknar eru uppteknir
við annað megnið af deginum,
segir Sigurður.
- Við viljum hins vegar öll
halda þessum verkefnum sem
mest á sjúkrahúsunum enda er
þeim sinnt vel með góðri að-
stöðu, tækjum og þeirri þekk-
ingu sem starfsmenn búa yfir.
Mér finnst því réttara að auka
veg spítalanna og bæta þjónustu
þeirra en ágreiningurinn er
einkum um greiðslufyrirkomu-
lagið sem er algjörlega gengið
sér til húðar.
Sigurður segir að áherslan á
ferliverkin og sérstakar greiðsl-
ur fyrir þau sé meðal annars til-
komin vegna þeirrar stefnu
Læknafélags íslands að ferli-
verk verði sem mest unnin á
sjálfstæðum læknastofum en
ekki á göngudeildum, að draga
úr vægi göngudeildanna og
auka þess í stað veg einkarek-
inna læknastofa.
- Mér fyndist réttara að
reyna að tengja þessar stóru
stofur sjúkrahúsunum því þarna
fer fram mjög góð þjónusta og
umönnun en engar rannsóknir
eða kennsla. Þann efnivið þyrfti
að nýta betur og ég held að veg-
ur spítalanna sem fagspítala
myndi aukast við það.
Eg geri mér grein fyrir því að
við náum seint algjörum jöfnuði
milli einstakra hópa lækna hvað
launin varðar en við verðum að
leita raunhæfra leiða til að
breyta núverandi greiðslukerfi.
Ef við höldum ferliverkunum til
streitu undir þessi kerfi drögum
við um leið úr líkum á því að
grunnlaun lækna geti hækkað.
Augljóslega mun seint nást ein-
ing meðal lækna um þetta mál
enda eru hagsmunir manna afar
ólíkir. Hins vegar er hækkun
grunnlauna sjúkrahúslækna lík-
lega besta leiðin að lausn þessa
vanda.
-jt-
Sumarleyfislokun
Skrifstofa læknafélaganna verður lokuð vegna
sumarleyfa frá og með mánudeginum 21. júlí til
og með föstudeginum 8. ágúst.
Frá orlofsnefnd
Fellihýsi
Vegna góðrar undirtektar við tjaldvagnana var nýlega
ákveðið að fjárfesta í fellihýsi. Verður það staðsett á
Akureyri og leigt út þaðan. Koma kaupin ekki síst til
vegna frumkvæðis Læknafélags Akureyrar.
Fellihýsið er ekki komið, en verður væntanlega til af-
hendingar á Akureyri eftir 5.-10. júní.
Kaupin bar nokkuð brátt að og verður fellihýsinu af
skipulagsástæðum ekki úthlutað samkvæmt punktafjölda
þetta fyrsta surnar, heldur verða umsóknir afgreiddar í
þeirri röð sem þær berast. Punktafrádráttur og verð verð-
ur eins og fyrir tjaldvagnana, úthlutunardagar verða
væntanlega föstudagar.
Frekari upplýsingar á skrifstofu læknafélaganna.
Árni B. Stefánsson