Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.1997, Page 11

Læknablaðið - 15.06.1997, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83 371 T-test on means, p-value c/z C/F Z/F C/Los C / Lom L/L 0.012 0.003 0.11 0.008 0.002 0.6 0.4 0.016 0.06 0.009 0.002 0.4 0.16 0.007 0.026 0.001 0.001 0.5 0.026 0.086 0.94 0.2 0.04 0.6 og endi máltíðar, svefntími frá því lagst var til svefns og risið úr rekkju og vökutími það sem eftir var. Staðtöluleg úrvinnsla: Reiknuð voru meðal- töl, miðgildi og dreifing sýrustigsgilda og einn- ig sem hundraðshluti af 24 klukkustundunr. Staðtölulegur munur á miðgildum var metinn með nákvæmnisprófi Wilcoxon samkvæmt Sigma Stat forriti (version 1,0, Jandel Corpora- tion). Marktækur munur var talinn vera p<0,05. Staðtölulegur munur á meðaltölum var metinn með pöruðu t-prófi. Niðurstöður Ur 16 sjálfboðaliðum sem fóru í hvora til- raun fengust 13 nothæf pör til úrvinnslu fyrir Zantac® / Famex® en 14 fyrir Losec® / Lómex® rannsóknina. Brottfallið var af tæknilegum ástæðum eins og slæmu jarðsambandi eða laus- um tengingum við mælitæki. Viðmiðunarmæl- ing í annarri og þriðju rannsóknarlotu sýndu nánast sömu gildi (1-2% nrun) og er því sýnt í töflum sem eitt meðaltal fyrir báðar mælingar. Staðtölulegir útreikningar voru gerðir á raun- verulegum tölum. í töflu I eru sýnd meðaltöl og töflu II miðgildi sýrustigs fyrir sólarhring og undirtímabil. Tölverður munur er á þessum gildum og sýna meðaltöl tölvert meiri mun á Zantac®/Famex® og Losec®/Lómex® heldur en miðgildin. Þó miðgildin séu talin áreiðan- legri (12) eru staðtölulegir útreikningar gerðir á miðgildum og meðaltölum. I mynd 1 er stuðst við miðgildi. í töflu III eru sýndar niðurstöður fyrir sýrustig yfir 3,4 og 5 sem hundraðshluti af 24 klukkustundum. Mynd 1 sýnir niðurstöður fyrir sýrustig yfir 3,4 og 5 umreiknað í klukku- stundir úr sólarhring. Fyrri rannsóknarlota, Zantac® / Famex®: Á mynd 1 sést að viðmiðunarmæling gefur 6,2 klukkustundir á sýrustigi yfir 3,4 klukkustund- ir á sýrustigi yfir 4 og 2,5 á sýrustigi yfir 5. Famex® lengir tímann fyrir sýrustig yfir 3 um fimm klukkustundir en Zantac® um 2,6 (p<0,03). Famex® lengir tímann fyrir sýrustig yfir 4 um 3,8 klukkustundir en Zantac® um 2,8 (p<0,03). Famex® lengir tímann fyrir sýrustig yfir 5 um 5,8 klukkustundir en Zantac® um 4,2 (p<0,3). Tafla II og III sýnir marktæka hækk- un á sýrustigi miðað við viðmiðunargildi fyrir bæði lyfin og er hækkunin meiri fyrir Famex® en einungis marktæk á vökutíma. Seinni rannsóknarlota, Losec® / Lómex®: Viðmiðunargildi eru sömu og í fyrri rannsókn- arlotu. Mynd 1 sýnir að Lómex® lengir tímann fyrir sýrustig yfir 3 um 12,1 klukkustund en Losec® um 11,3 klukkustundir (p=0,5). Ló- mex® lengir tímann fyrir sýrustig yfir 4 um 12,1 klukkustund og Losec® um 11,8 klukkustundir (p=l). Lómex® lengir tímann fyrir sýrustig yfir 5 um 9,2 klukkustundir en Losec® um 10,4 (p=0,3). í töflu II og III sést að bæði lyfin hækka sýrustigið marktækt miðað við viðmið- unargildi á öllum tímabilum nema Losec® á dagtíma. Enginn munur er á Losec® og Ló- mex® í innbyrðis samanburði. Umræða Aðferðafræðileg vandamál við mælingu á sýrustigi í maga í 24 klukkustundir eru mörg. Mælingar geta mistekist af tæknilegum ástæðum, skekkjur komið vegna rangrar stað- setningar á sýruskynjara í maga og ennfremur eru tölulegar niðurstöður vandmeðfarnar. í okkar rannsókn mistókust fimm mælingar af 60 (8%) af tæknilegum ástæðum en talið er eðli- legt að um 5% mælinga mistakist (13). Áreið-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.