Læknablaðið - 15.06.1997, Blaðsíða 10
370
LÆKNABLAÐIÐ 1997; 83
Table I. Mean pH.
pH Control Zantac® Famex® Losec® Lómex®
Means SD Means SD Means SD Means SD Means SD
Total 2.42 0.7 3.05 0.56 3.44 0.67 4.16 1.24 4.34 1.35
Meal 3.52 0.86 3.24 1.04 4 0.77 4.95 1.39 5.28 1.28
Uoriaht 2.45 0.49 2.78 0.6 3.38 0.59 4.59 1.33 4.82 1.44
Supine 2.32 1.47 3.52 1.19 3.55 1.28 3.31 1.58 3.51 1.29
Table II. Médian pH.
PH Control Zantac® Famex® Wilcoxon test on medians, p-value Losec® Lómex® C / Z C / F Z / F C/Los C / Lom L/L
Total 2.9 3.7 3.7 4.9 4.8 0.02 0.005 0.08 0.006 0.002 1
Meal 3.1 3.8 3.9 5.15 5.3 0.8 0.01 0.17 0.02 0.004 0.1
Upriqht 2.8 3.2 3.5 5.1 5.2 0.04 0.005 0.05 0.005 0.006 0.5
Supine 1.8 3.7 3.3 3.65 2.9 0.03 0.57 0.89 0.2 0.003 0.9
Table III. Percentage (%) of 24 hours with pH over 3, 4 and 5.
W-test, p-value
Median control Zantac® Famex® Losec® Lómex® Z/F L/L
pH>3 25.9 36.8 46.7 73.0 76.4 0.03 0.5
pH >4 16.5 28.3 32.3 65.8 67.2 0.03 1.0
pH >5 10.5 17.7 21.5 53.5 48.8 0.30 0.3
Lómex®. Eftir hvert lyfjatímabil var hlé í sjö
daga. Tilraunin var með krossuðu sniði þannig
að allir þátttakendur í hverri lotu tóku bæði
lyfin í tilviljana röð. í hvora lyfjalotu voru
teknir 16 sjálfboðaliðar og 13 tóku þátt í báðum
lyfjalotum. Þátttakendur rnættu fastandi milli
klukkan 8 og 9 og var slanga sett gegnum nef
niður í maga. Sýrumæling var stöðvuð á sama
tíma morguninn eftir og slangan tekin. Stað-
setning var ákveðin þannig að lengd vélinda
var áætluð eftir formúlunni hæð einstaklings í
cm x 0,25 + 5 cm. Slanga var síðan sett 10 cm
lengra en áætluð lengd vélinda. Beðið var eftir
að stöðugt sýrustig á bilinu 2-3 sæist í glugga
mælitækis. Staðsetning var síðan könnuð frek-
ar með því að draga slönguna til baka þar til
sýrustigið varð um og yfir 7 og slanga síðan sett
til baka 10 cm frá þeim punkti (11). Þessar tvær
aðferðir við staðsetningu slöngu féllu vel sam-
an. Fyrsta tilraun hjá hverjum þátttakanda var
viðmiðunarmæling án lyfja. Skráð var lengd
slöngu frá nefi í fyrstu tilraun og nákvæmlega
sama lengd notuð í seinni tilraunum. Þátttak-
endur fengu fyrirmæli fyrir hverja tilraun um
að borða samskonar mat á sama tíma alla til-
raunardagana og einungis hófleg neysla gos-
drykkja var leyfð. Þátttakendur sinntu dagleg-
um störfum meðan á rannsókn stóð.
Sýrumæling: Notuð voru tæki og hugbúnað-
ur frá Synectic™, sem eru sérhönnuð til mæl-
inga á sýrustigi í maga og vélinda þannig að
fólk geti auðveldlega sinnt daglegum störfum.
MicrodigitrapperTNI tækið er fyrirferðarlítið
(15x7x3 cm) og er borið í belti og skráir sýru-
stig á þriggja sekúndna fresti. Mælislangan (2,1
mm í þvermál) var lögð í maga gegnum nef. I
upphafi hverrar tilraunar var sýruskynjari
stilltur í sýrustigsupplausn 1,0 og 7,0. Tilraun
var ekki hafin fyrr en skynjari stóðst prófin en
tækið gefur til kynna hvort svo sé. Flestar
slöngurnar voru notaðar í tvö til þrjú skipti en
hámarksnotkun var fimm skipti. Eftir hverja
notkun var slangan þvegin með volgu vatni og
spritti og lögð í glútaraldehýð í 10 mínútur. í
fimm skipti var skynjari einnig staðlaður eftir
tilraun og stóðst prófin í öll skiptin. Ekki var
talið nauðsynlegt að staðla skynjara reglu-
bundið eftir rannsókn meðan slangan var ekki
notuð meira en fimm sinnurn. Mæling var gerð
á sjöunda degi lyfjagjafar þannig að seinasta
tafla af Zantac® og Famex® var tekin að kvöldi
rannsóknardags (kl. 19) en seinasta hylki af
Losec® og Lómex® var tekið að morgni rann-
sóknardags (kl. 8). Multigram hugbúnaður gaf
útskrift á dreifingu sýrustigs á bilinu <1 til <6,
reiknað sem hundraðshluti af 24 klukkustund-
um eða undirtímabil, sem þátttakendur stimpl-
uðu sjálfir inn. Máltíðir mörkuðust við upphaf