Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 35
33
því hvernig þeir svöruðu meðferðinní. Full-
komin svörun (complete remission) var talin
þegar æxlið hvarf á röntgenmynd af lungum
og engin önnur hlutlæg einkenni um sjúk-
dóminn fundust. Svörun að hluta (partial re-
mission) var talin þegar æxlið minnkaði um
meira en helming (50%) á röntgenmynd.
Stöðvun sjúkdóms (static disease) var talin
þegar æxlið stækkaði ekki eða minnkaði um
minna en helming (50%) á röntgenmynd.
Héldi æxlið eða meinvörp áfram að stækka
eða ný meinvörp að koma fram var talið að
sjúklingur svaraði ekki meðferð (progressive
disease). Meðan á meðferð stóð var fylgst
með toreytingum á blóðmynd, lifrarstarfsemi,
nýrnastarfsemi og taugakerfi.
NIÐURSTÖÐUR
Mynd 2 sýnir árangur meðferðar, lifslengd
eftir að meðferð hófst, lengd svörunar og
legudaga á spitala. Meðaliífslengd íþeirra 3
sjúklinga sem fengu fullkomna svörun var
FIG. 2
RESULTS OF COMBINED CHEMOTHERAPY AND RADIATION THERAPY IN 11
PATIENTS WITH SMALL CELL ANAPLASTIC CARCINOMA OF THE LUNG
(n =3) (n - 4) (n « 3) (n - 1)
MEAN SURVIVAL FROM START OF THERAPY
MEAN LENGTH OF REMISSION
MEAN HOSPITAL STAY
58,3 víkur, lengd svörunar 41,3 vikur og legu-
dagar á spítala 7,5 vikur. Hliðstæðar tölur
fyrir þá 4 sjúklinga sem fengu svörun að
hluta voru 31, 15,3 og 12,7 vikur og fyrir þá
3 sjúklinga sem sjúkdómurinn stöðvaðist hjá
24, 15,3 og 6 vikur. Einn sjúklingur svaraði
ekki meðferð og lifði í 7 vikur, þar af 3 vikur
á sjúkrahúsi. Meðallífslengd allra sjúkling-
anna voru 241 dagar (34,4 vikur), en ef und-
an er skilinn sá sjúklingur sem ekki svaraði
meðferð var meðallifslengd 260 dagar (37,1
vikur). Meðallegutími á spítala hjá þeim tíu
sjúklingum sem svöruðu meðferð voru 64
dagar. Tveir þeirra þriggja sjúklinga sem
fengu fullkomna svörun voru í lélegu ástandi
við byrjun meðferðar, annar með stóra
lungnabólgu sem svaraði ekki fúkkalyfja-
meðferð en hinn með meinvörp í beinum og
mjög máttfarinn. Þriðji sjúklingurinn var í
góðu almennu ástandi, en með stóran eitil á
hálsi.
Minnka þurfti lyfjagjöf CTX og MTX
sautján sinnum vegna fækkunar á hvítum
blóðkornum og þrisvar vegna fækkunar á
blóðflögum. MTX var minnkað tvisvar vegna
hækkunar á creatinini í serum. VCR gjöf var
minnkuð fimmtán sinnum vegna minnkunar
á sinaviðbrögðum, en slík minnkun er venju-
lega fyrsta einkenni um eituráhrif á tauga-
kerfi. í eitt skipti þurfti að minnka VCR
gjöf vegna brenglaðra lifrarprófa. Hármissir
varð hjá öllum sjúklingunum og ógleði var
algeng. Alvarlegustu fylgikvillar eru sýndir
á töflu II.
TABLE II, Main Complications. ______
Pneumonia 5 times in 3 patients
Stomatitis 2 times in 2 patients
Sepsis 1
Herper Zoster 1
Enginn sjúklingur dó af völdum meðferð-
ar. Fjórir luku meðferðaráætlun, meðal
þeirra voru þeir þrír sjúklingar sem fengu
fullkomna svörun en sá fjórði var í hópi
þeirra sem fékk takmarkaða svörun. Sex
urðu að hætta meðferð vegna fylgikvilla eða
versnandi sjúkdóms, en einn dó á meðferð
án þess að svara henni. Fjórir sjúklingar
voru settir á annarskonar lyfjameðferð eftir
að sjúkdómurinn hafði tekið sig upp (re-
lapse), en enginn þeirra svaraði slíkri með-
ferð.