Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 42

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 42
40 bein annars staðar á brjóstveggnum. öll geta þessi einkenni fylgt öðrum sjúkdómum í lungum og mismunagreining því stundum erfið. 1 þessum sjúklingahópi voru aðeins 4 sjúk- lingar, sem engin einkenni höfðu haft frá lungum. Þessu er öðru vísi farið í mörgum skýrslum, einkum ef framkvæmdar hafa ver- ið fjöldaskoðanir í áhaettuhópum. Þá finnst sjúkdómurinn oft miklu fyrr og fjöldi sjúk- linga ekki kominn með nein einkenni. GREINING Ekki er unnt rýmis vegna að fjalla um greiningu sjúkdómsins eða greiningaraðferð- ir, en framfarir á því sviði hafa stuðlað að betri og fljótari greiningu, sem getur skipt sköpum fyrir sjúklingana. MEÐFERÐ Hér verður eingöngu fjallað um skurðað- gerðir, hvenær þeim verði beitt og um árang- ur þeirra. Á töflu 6 eru talin þau einkenni, sem margir hafa talið teikn um óskurðtæk æxli, en þarna eru þó undantekningar á, sem gefið er til kynna með spurningarmerki. Sem dæmi nefni ég að meinvörp utan lung- ans útiloka ekki aðgerð, ef um virðist vera að ræða einstakt meinvarp í einu líffæri t.d. heila og frumæxlið í lunganu talið vel skurðtækt. Ef æxli utarlega í lunganu er vaxið út í brjóstvegginn, þá er unnt að fjar- lægja hluta brjóstveggjar ásamt æxlinu. Þá má segja að meinvörp í eitlum í miðmæti útiloki alls ekki alltaf aðgerð, en gefa mikil- vægar upplýsingar um horfur sjúkdómsins. Vissulega tekst ekki alltaf að komast alveg fyrir sjúkdóminn með þess háttar víðtækari aðgerðum (extended resections), en fróunar- aðgerðir eru réttlætanlegar og oft sjálf- sagðar og sjúklingar lifa stundum árum saman eftir þær. Á töflu 7, sem sýnir heildarfjölda aðgerða á þeim tveim tiu ára tímabilum, sem um er að ræða. kemur fram, að aðgerðarhlutfall (operability rate) hefur lækkað úr 35.3% i 32%. Með bættum og fjölþættari greiningar- aðferðum fækkar könnunaraðgerðum og brottnámshlutfall (resectability rate) hækk- ar úr 44% i 58%. Þetta hlutfall er lægra hér en víða annars staðar, en oftast er þó um að ræða skýrslur frá stórum skurðdeildum, sem taka ekki við sjúklingum, nema útlit sé TÁBLE 6 LUNG CANCER. INOPERABILITY ? 1. SUPERIOR VENA CAVA SYNDROME 2' pancoast's syndrome 3. RECURRENS PARESIS 9. PLEURAL EFFUSION ( MAL. CELLS IN FLUID ) 5. DISTANT METASTASES 6. TUMOURS INFILTRATING OUTSIDE THE LUNG 7. WIDENING OF THE CARYNA 8. PARESIS OF THE DIAPHRAGM 9. MEDIASTINOSCOPY POS. CARDIOVASC. INSUFFICIENCY, SOME SYST. DISEASE, AND OLD AGE , MAY BE A CONTRAINDICATION. TABLE 7 143 SURGICAL PROCEDURES FOR LUNG CANCER IN ICELAND 1955 - 1974 1955 - 1964 1965 - 1979 TOTAL (156 PTS.) (274 pts. ) (430 PTS EXPLORAT!VE THORACOTOMIES.. .. 31 37 68 RESECTIONS .. 24 51 75 OPERABILITY .. 55,31 321 33.21 RESECTABILITY RATE 58% CALCULATED FROM THE TOTAL . NUMBER OF PATIENTS .. 15.« 18.6% 17.91 POST OP. MORT. RATE: EXPLORATIVE THORACOTOMIES .. .... 5.9% RESECTIONS ......... 42 fyrir að þeir séu skurðtækir og verður þá brottnámshlutfallið eðlilega hátt. Brottnámshlutfall miðað við alla sjúk- linga með lungnaki-abbamein á þessum tveim áratugum hækkar úr 15.4% í 18.6%. 1 fæstum skýrslum liggja þess háttar upplýs- ingar fyrir, þar sem ekki er fjallað um alla sjúklinga með lungnakrabbamein á ákveðnu svæði, hvað þá í heilu landi, heldur aðeins sjúklinga sem valdir eru til skurðaðgerða eða annarrar meðferðar. Með skurðdauða (post op. mortality) er átt við sjúklinga, sem deyja innan eins mánaðar frá aðgerð eða síðar, ef greinilega er um að ræða fylgi- kvilla eftir aðgerðina. Þrir sjúklingar hafa dáið eftir brottnám æxlis (resectio) (4%). 1) 65 ára gamall karlmaður dó 5 vikum eftir að allt vinstra lungað var fjarlægt. (P.A. D.: Ca.anaplasticum. Dánarorsök: Bron- chopleural fistula + Empyema). 2) 44ra ára karlmaður dó á 6. degi eftir að allt hægra lunga var tekið. (P.A.D.: Ca.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.