Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Qupperneq 57
55
hjá konum en körlum og reyndist munurinn
marktœkur (p<0,05). Aðrir hafa fundið
hliðstæðan kynmun á MCVG eða gagnstæð-
an.7 8 MCHC var lægst í 2—4 ára aldurshópi
barna og var munurinn marktækur gagnvart
eldri börnum og körlum (p<0,05) en ekki
gagnvart konum. 5—11 ára börn höfðu hins
vegar svipuð MCHC gildi og fullorðnir. Þess
vegna voru þessir hópar, 5—7 og 8—11 ára
börn, karlar og konur, teknir saman í einn
við úrvinnslu, enda voru neðri algengismörk-
in (2,5% fraktílin) nánast þau sömu í öllum
þessum 4 hópum. Að meðaltali höfðu konur
lægra MCHC en karlar og var sá munur
næstum marktækur (p var u.þ.b. 0,05). Aðrir
lýsa lægra MCHC hjá konum en körlum,7 8 9
10 en heimildir greinir á um, hvort MCHC sé
lægra hjá ungum börnum en eldri börnum
eða ekki.
Ekki kom fram marktækur munur á fjölda
blóðflaga hjá körlum og konum (p>0,4).
Sökk reyndist marktækt hærra meðal
kvenna en karla (p<0,01), eins og er
reynsla annarra. 1 deilitalningu hvitra blóð-
korna var helsti munur á börnum og full-
orðnum sá, að börn höfðu fleiri lymphocyta
en færri granulocyta heldur en fullorðnir,
sérstaklega yngri börnin. Þessar niðurstöður
eru í samræmi við reynslu annarra. Óvæntur
og marktækur munur (p<0,05) kom fram
á fjölda monocyta, bæði %tölu og raun-
fjölda, meðal fullorðinna karla og kvenna.
Karlar höfðu að meðaltali 2,2 hærri %tölu
af monocytum og 154 x 10°/1 meiri raun-
fjölda monocyta en konur. Höfundur veit
ekki til þess að kynmunur á fjölda monocyta
hafi komið fram hjá öðrum. Þessi munur
hefur naumast klíniska þýðingu, en er á-
hugaverður frá fræðilegu sjónarmiði. Ekki
reyndist vera marktækur kynmunur á %tölu
annarra undirflokka hvítra blóðkorna hjá
fullorðnum. Ekki reyndist vera marktækur
munur á %tölu monocyta hjá drengjum og
stúlkum.
TAFLA II. NiðurstöSur könnunarinnar. 95% algengismörk.
FULLORÐNIR
BÖRN (15 ára og eldri)
2—U ára 5—7 dra 8—11 dra Karlar Konur
(37) (33) (38) (51.) (59)
HBK x 109/1 5,2—12,3 3,8—10,4 3,2—9,1 3,8—10,2
RBK x 101V1 4,20—5,30 4,20—5,24 4,25—5,45 (112) 4,20—5,90 4,00—5,18
Hb g/dl 11,3—14,4 11,4—14,4 11,8—14,7 13,0—17,5 11,8—15,8
Hct 1/1 0,338—0,428 0,338—0,430 0,358—0,442 0,386—0,512 0,360—0,470
MCV fl 75—86 75—87 77—87 80—95 81—96
MCH pg 24,1—29,4 24,9—30,2 26,0—29,6 26,0—32,4 26,5—32,4
Börn, 5 ára og eldri, og fullorðnir
MCHC g/dl 31,8—34,7 32,3 —35,1
(181)
Blóðflög'ur x 109/1 130—370
(57)
Sökk mm/klst. 0—15 (40) 1—23 (46)
Tölur innan sviga tákna fjölda í úrtakinu. Aldur er miðaður við síðasta afmælisdag.
TAFLA III. NiSurstöSur könnunairinnar. 95% algengismörk.
FULLORÐNIR
BÖRN 2—llára (15 ára og eldri)
_____(100)______ __________________________(75)
% x109/1 % X 109/1
Basophil granulocytar 0—1 0—100 0—2 0—140
Eosinophil granulocytar 0—6 0—450 0—7 0—460
Neutrophil stafir 0—11 0—750 0—12 0—850
Neuthrophil segment 17—59 1000—5500 25—75 900—6000
Lymphocytar 27—67 1500—6500 18—54 1100—4000
Monocytar 0—10 0—800 0—9 0—680
Tölur innan sviga tákna fjölda í úrtaki. Aldur cr miðaður við síðasta afmælisdag.