Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 62

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 62
60 Hallgrímur Magnússon, Þórarinn Ólafsson SJÚKLINGAR MEÐ BRUNAÁVERKA VISTAÐIR Á GJÖRGÆZLUDEILD LANDSPÍTALANS ÁRIN 1975—1979 INNGANGUR Meðferð brunaáverka er vandasöm, trufl- anir geta orðið á starfsemi flestra líffæra- kerfa: blóðrás (lost), öndunarbilun, nýrna- bilun, lifrarbilun, geysilegar truflanir á vökvajafnvægi vegna vökvataps, electrolyta- truflanir, stórkostlegt niðurbrot á vefjum og þar af leiðandi næringartruflanir. Hætta er á ýmsum fylgikvillum, svo sem losti, lungna- bólgu, hjartsláttartruflunum og hjartastoppi, lungnabjúg, oliguri og anuri, nýrnabilun án oliguri, lifrardrepi, sýkingum og blóðsýkingu (sepsis), auk þess fá margir sjúklingar garnalömun, sumir fá krampa og óvæntar snöggar blóðþrýstingshækkanir koma einnig fyrir. Brunasjúklinga þarf að vista í ein- angrunarherbergi þar sem unnt er að stjórna hita- og rakastigi, Víða um heim hefur verið komið upp sér- stökum brunadeildum eða jafnvel sérstökum sjúkrahúsum. Hér á landi hafa flestir meiri- háttar brunaáverkar verið lagðir á Land- spítalann og síðan görgæzludeild tók til starfa hafa stærri brunaáverkar jafnan verið vistaðir á gjörgæzludeildinni, fyrst eftir að þeir eru lagðir inn, en síðan verið fluttir á lýtalækningadeild og Barnaspítala Hrings- ins. Hér verður gerð grein fyrir þeim sjúkling- um, sem lagðir hafa verið á gjörgæzludeild Landspítalans á árunum 1975—1979 með brunaáverka. EFNIVIÐUR Á árunum 1975—1979 voru 38 sjúklingar innlagðir alls 41 sinni á gjörgæzludeild Landspítalans. Eitt barn var lagt inn þrisvar og ein kona var lögð inn tvisvar á deildina. t töflu I kemur fram skipting eftir aldri. Eins og sjá má i töflu I eru börn undir tveggja ára aldri tiltölulega mörg eða 27% og börn undir 10 ára aldri eru saman- lagt um 41%. Það skal haft í huga, að bruna- Frá svæfinga- og gjörgæzludeild Landspítalans áverkar hjá ungum börnum eru hættulegri en hjá fullorðnum, sem stafar m.a. af því að líkamsyfirborð þeirra er tiltölulega stærra miðað við þyngd og efnaskipti barna eru hraðari. Hjá barni er þannig litið á bruna- áverka sem nær til 5—10% af líkamsyfir- borði sem alvarleganý Brunasár í andliti eða á kynfærum eru einnig alvarleg og geta tor- veldað meðferð. Einnig verður að líta á bruna hjá eldra fólki (yfir 60 ára) sem alvarlega, þó ekki sé um að ræða stórt yfir- borð. Flestir brunaáverkar hjá ungum börnum eru vatnsbrunar, þ.e. orsakaðir af heitu vatni, kaffi, te eða þess ‘háttar og slysstaður er heimilið eða nánar tiltekið eldhús eða baðherbergi. Tafla II sýnir hvað hefur valdið brunanum. Við húsbruna einkennist sjúkdómurinn oft af reykeitrun, þ.e. sóti í öndunarvegum og kolsýringseitrun auk sjálfs brunaáverkans. Hætta er á innöndun eiturefna, sem myndast við bruna á ýmsum gerviefnum, svo sem plasti, nylon og gúmmí. Við sprengingar og benzínloga er alltaf fyrir hendi hætta á brunasárum í efri öndunarvegum, sem veld- ur bjúg og giarnan öndunarerfiðleikum, en lætur oft lítið yfir sér í fyrstu. TAFLA I. Fjöldi sjúklinga með brunaáverka inniagöur á gjörgcezludeild Landspítalans árin 1975—1979, og aldursdreifing. 0—2 3—10 11—30 31—50 51—70 71 árs ára ára ára ára ára og yfir 11(27%) 6(14%) 11(27%) 7(17%) 5(12%) 1(3%) TAFLA II. Orsakavaldur brunaáverka. Orsakir brunaáverlcans Fjöldi sjúklinga 19 (50%) 10 (26%) 5 (13%) 1 (2.7%) 1 (2.7%) 1 (2.7%) 1 (2.7%) Samtals 38 (99.8%) Heitt vatn Eldur Sprenging Benzín Gufa Sýra Tjara

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.