Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Page 63

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Page 63
61 örsök brunasára við sprengingar hefur m.a. verið heimagerðir flugeldar, eimingar- tæki og sprenging í kyndiklefa. Tafla III sýnir stærð brunaáverkans mið- að við likamsyfirborð svo sem hann var metinn við komu á sjúkrahúsið og þar kem- ur ennfremur fí’am, að fjórir sjúklinganna létust af völdum áverkanna (9,7%). Eitt barn dó á fimmta degi, einn karl á fjórða degi og tveir karlar dóu á tíunda degi legu sinnar á deildinni. Við útreikning á stærð brunaáverka hefur verið stuðst við svokallaða niureglu, sem gildir um fullorðna. Um börn gildir önnur regla (sjá myndir). Af töflu III má lesa að mestur hluti sjúk- linga er með brunasár undir 30% af yfir- borði og er þar um að ræða flest börnin, en brunasár hjá þeim eru alltaf alvarlegri. Með brunasár yfir 71% af yfirborði voru alls 3 sjúklingar, en af þeim dóu 2 sem voru með um og yfir 90% bruna i báðum tilfellum, en slíkir brunaáverkar eru nánast alltaf ban- vænir.4 Legutími á gjörgæzludeild hefur verið mis- langur, eins og sjá má af töflu IV. Allt að tveimur sólarhringum í 25% tilfella, en þar er um að ræða í flestum tilfellum ung- börn. 1 30% tilfella er legutími 1—2 vikur, og 1 sjúklingur lá á gjörgæzludeild í 44 daga, en hann hafði brunasár sem náðu yfir um 75% af yfirborði likamans. Þegar sjúklingarnir eru komnir úr beinni lífshættu, eru þeir fluttir á legudeildir til framhaldsmeðferðar. Um afdrif þeirra og legutíma, sem oft á tiðum er alllangur, er fjallað í öðrum greinum.10 1 Stærð brunaáverka miðað við líkamsyfir- borð segir ekki nema takmarkaðan sann- leika, því taka verður tillit til dýptar brun- TAFLA III. StœrÖ brunasára í % af yfirboröi metiö viö komu á sjúkrahúsiö og afdrif sjúk- linga. undir 31— 51— 61— 71% ___30%___50%____60% 70% og yfir Sjúklingar 26(68%) 7(19%) 2(5%) ■ 3(8%) Dánir___ — 1 1 — 2 TAFLA IV. Legutími á gjörgæzludeild Land- spítalans._________________ yfir 1—2 dagar S—7 dagar 8—H dagar H daga 10(25%) 17(41%) 13(30%) 1(4%) ~ ans og hafa í því skyni verið reiknaðir út brunaáverkastaðlar, þar sem mismunandi tillit er tekið til I., II. og III, stigs bruna.9 MEÐFERÐ, ÁRANGUR, FYLGIKVILLAR Meðferð brunaáverka er allflókin og krefst samstarfs fleiri sérgreinahópa: lýtalækna, svæfinga- og gjörgæzlulækna, barnalækna, nýrnasérfræðinga, lungnasérfræðinga, sér- fræðinga í sýkingasjúkdómum, starfsfólks blóðbanka og rannsóknastofu, sérþjálfaðra hjúkrunarfræðinga og sjúkraþjálfara.

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.