Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Síða 75

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Síða 75
73 TAFLA I. Dysmatur börn faedd á kvennadeild Lsp. 1978 og 1979._________________ Ekki Sonar- Ekki Greind greind ranns. sonar ísonar ísonar 1978 21 16 14 7 1979 21 17 14 7 Samtals 42 33 28 14 TAFLA II. Dysmatur tvíburar fæddir á kvenna- deild Lsp. 1978 og 1979. Ekki Sonar- Ekki Greind greind ranns. sonxir í sonar í sonar 13 3 __7__ _ 6 _ hún stendur og hverjar afleiðingar hennar verða. Greint er á milli tveggja flokka vaxtar- seinkunar in utero. Við öndverða vaxtar- seinkun (early onset growth failure) eru börnin lítil fœdd og sein til hreyfiþroska. Við eftirkannanir 1 árs og 4 ára, hafa þau reynst líkamlegir og andlegir eftirbátar jafnaldra sinna. Við áliðna vaxtarstöðnun (late onset growth failure) eru nýfæddu börnin lítil fædd, en með eðlilegan hreyfiþroska. Við 1 árs aldur hafa þau náð jafnöldrum sinum hvað varðar stærð. Við þroskamat 1 árs og 4 ára hafa þau staðið jafnöldrum sínum ó sporði.4 Við vaxtarseinkun in utero getur fóstrið verið i bráðri hættu, og betur komið utan legsins en í. Menn eru ekki á eitt sáttir um það hvenær gripið skuli til ráðstafana (il að ljúka meðgöngunni. Á síðustu árum hefur tilhneigingin verið sú að ljúka meðgöngu fyrr en áður var.B c Þetta er gert með hlið- sjón af þvi að möguleikar til meðferðar á vandamálum nýbura hafa stórbatnað á und- anförnum áratugum. Áður en sú ákvörðun er tekin að Ijúka meðgöngu, annað hvort með gangsetningu eða keisaraskurði, er tekið mið af sonar- rannsóknum. í sonar er mældur biparietal diameter, það er breidd höfuðs á milli pari- etal beina, og er sú mæling notuð sem aðal- mælikvarðinn á aldur fóstursins. Við vaxtar- seinkun in utero, reynir náttúran i lengstu lög að hlífa heilanum með þvi að dreifa næringar- og súrefnisríkasta blóðinu beint upp til heilans, áður en það dreifist út um líkamann. Þetta fysiologiska fyrirbæri er kallað heilahlífð (brain sparing). Athugun á höfuð- stærð fóstursins er þannig ekki nægjanleg til þess að greina vaxtarseinkun. Ef hins vegar kemur fram seinkun á vexti höfuðs, er vaxtarseinkun fóstursins orðin veruleg, og hefur þá mögulega valdið varanlegum skaða. Til að greina vaxtarseinkun með heilahlifð, er nauðsynlegt að mæla ummál bolsins og bera það ummál saman við stærð höfuðsins.7 Með þvi móti er hægt að sjá vannæringu hjá fóstri, þar sem líkur eru á að heili og mið- taugakerfi hafi þroskast eðlilega fram að greiningu. Á síðustu 2—4 árum hafa komið fram ná- kvæmar sonarrannsóknaraðferðir til þess að greina vaxtarseinkun með heilahlífð, og er þá stuðst við flatarmál þverskurðarmyndar af bolnum, á milli naflastrengs og hjarta- brodds. Þetta flatai’mál er siðan boiáð saman við biparietal diameter höfuðsins.8 Þar sem sonarrannsóknir hafa brugðist við greiningu á vaxtarseinkun fóstui’s 'hefur ummál bols venjulega ekki verið mælt, en biparietal diameter höfuðsins verið eðlilegur. f athugun okkar kemur fram að 44% þeirra kvenna, sem fæddu vaxtarseinkuð börn, fóru aldrei í sonarrannsókn. Ennfrem- ur sást, að við sonarrannsóknina var ekki greind vaxtarseinkun hjá 33% tilfellanna, sem rannsökuð voru. Ástæðan til þess var oftast sú, að einungis var mældur biparietal diameter fóstursins við sonari-annsóknina, en látið hjá líða að mæla ummál bolsins. Þegar athugaðar voru mæðraski’ár kvenna, sem gengu með vaxtarseinkuð börn, kom i ljós að læknar höfðu horft á óbreytt um- mál kviðar og óbreytta hæð legbols vikum saman, án þess að gera frekari rannsóknir eða athugasemdir vegna þessa. Ástæða er til þess að leggja kapp á að greina vaxtarstöðvun fósturs eins fljótt og auðið er. Á þessari greiningu getur fi’amtíð hins ófædda einstaklings oltið. Frumskilyrði fyi’ir því að svo megi verða er góð mæðra- vei’nd með athugulli kliniskri skoðun og mati á stækkun fóstursins. Lítil aukning ummáls og lítil hækkun legbols hiá þungaðri konu, á ætið að vekja gi’un um vaxtarseinkun fóst- ursins. Ef slikur grunur vaknar, á að senda viðkomandi konu í sonai-rannsókn. Það er ennfremur skoðun okkar, að allar konur með staðfesta vaxtarseinkun fósturs eigi að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.