Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 82

Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Side 82
80 cosa og proteini en ekki fyrir blóði enda var hlutur dýfuprófs þá aðeins um 20% jákvæðra svara. Frekari líkur fyrir því að læknar hér fari ekki eftir svörum rútínuþvagrannsókna, er að sjá á mynd 4, en þar er könnuð tíðni þvagræktana eftir mismunandi innihaldi sýna af hv. blk. Sést að um 2/3 hlutar rækt- unarbeiðna eru frá sjúklingum, sem hafa normal fjölda hv. blk. í þvagi. Einnig sést á 4. mynd að bakteriuria er varla nokkurrar þýðingar fyrr en svör hafa 3 og 4 plúsa. f töflu III má sjá, að upp undir helmingur þvagsýna frá konum eru menguð vaginal epitheli og er það sýnatöku heldur slæmur vitnisburður. Normalgildi hv. og r. blk. með smásjárrannsóknum þeim, sem gerðar eru á Landspítalanum má sjá á 3., 4. og 5. mynd. Tíðnidreifing blóðkornafjöldans kemur glöggt fram og má sjá að normalgildin eru 0—7 fyrir bæði hv. og r. blk. Jafnframt kemur í ljós, að dreifing normalgildanna er mismunandi. Hv. blk. virðast hafa Gaussian dreifingu en r. bl. ekki og e.t.v. er munur á normal dreifingu r. bl. i börnum og fullorðn- um. Normalgildi, sem hér fundust voru í all- miklu ósamræmi við þau normalgildi, sem áður höfðu viðgengist á rannsóknastofunni. Augljóslega hefur mengunin í sýnum kvenna áhrif á normalgildin, eins og þau eru fundin í þessari rannsókn. Því hefur verið haldið fram, að smásjár- skoðun þvags sé nánast óþörf ef góð kemisk (dýfupróf) og macroscopisk (turbitity test, skýjupróf) rannsókn hefur verið neikvæð.u Auk samanburðarins í töflu II höfum við borið saman einstök dýfupróf og það sem teljast mætti jafngildi (counterpart) þeirra i smásjárskoðun. Þannig voru borin saman proteinmælingar og smásjárskoðun cylindra (tafla V), blóðrauðamælingar og r. blk. (tafla VI) og loks nýjasta dýfuprófið fyrir hv. blk. og smásjárskoðun hv. blk. Sjá má að cylindrar (0—1) og protein tákna sitt hvað, en hin prófin, sem borin eru saman, eru nánast jafngild. Hið nýja dýfupróf fyrir hv. blk., sem við prófuðum hér var ekki í notkun sem rútínu- próf í maí 1977 og hefur ekki ennþá verið bætt við rútínu á Landspitalanum. Þetta próf fyrir hv. blk. er annað prófið, sem komið hefur fram á síðustu árum til að prófa fyrir þvagfærasýkingu. Hitt prófið, sem til er á markaðnum, er hið svokallaða nitrit test, sem áður var kallað Griess-próf og byggist á þvl, að sumar bakteriur breyta nitrati yfir í nitrit. Nú eru á markaðnum dýfupróf, sem gera 9 próf samtímis, þar á meðal nitrit- og cytur- próf. Ekki verður lagður á það dómur hér, hvort rútinu smásjárskoðun á þvagi hefur ekkert hagnýtt gildi eða hvort sumar niðurstöður hennar séu beinlínis hættulegar, eins og sum- ir hafa haldið fram.4 Hins vegarber að leggja áherslu á það, að vel verður að standa að slíkri skoðun og sýnaöflun að vera þannig, að sýni sem berast séu ný og ómenguð. En það gildir um öll sýni og er þá sama hvaða rannsókn er beitt, niðurstöður rann- sóknar verður aldrei betri en sýnið býður upp á. En kannski stixa menn þvag á sjúkra- deildum innan tíðar. Kannski komast há- stilkuð bikarglös aftur í tisku við þvag- flutninga milli sjúkra- og rannsóknastofa. Þakkarorð: Steinunni Oddsdóttur þakka ég fyrir mikilvæga aðstoð. Ennfremur Ólafi Steingrímssyni, Arinbirni Kolbeinssyni og Vigfúsi Þorsteinssyni. Önnu S. Gunnarsdótt- ur þakka ég vélritun á handriti. The results of all routine urinalysis of Land- spítalinn, Reykjavik, in May 1977 were studied The results of urine microscopy and dip-stick tests were compared and classified according to departments and otherwise. A new dip-stick for detecting elevated levels of white blood cells in urine was compared to corresponding method by microscopy. The main findings were as follows: 40—50% of urine samples from wo- men had squamous vaginal epithel, 20—40% of samples had bacteria and 20—40% had casts. Normal values for red and white blood cells in urine were found to be different from those accepted before the study. The percentage of positive samples with the new normal values was 37%. Rate of repeated requests for urina- lysis or requests for becterial culture had little relation to the results of the routine urina- lysis. Results of dip-stick test for red and white blood cells compared well with the results of microscopy. 1. Kesson, A.M., Talbott, J.M. & Györy, A.Z.: Microscopic examination of urine. Lancet 1978; 2:809-812. 2. Hamburger et al.: Nephrology, 134. W.B. Saunders, Philadelphia 1968. 3. Schuman, G.B. & Greenberg, N.F.: Us?- SUMMARY HEIMILDIR

x

Læknablaðið : fylgirit

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.