Læknablaðið : fylgirit - 01.05.1982, Blaðsíða 90
88
vegria sams konar rannsóknar á legvatnssýni
úr næstu meðgöngu. Sýnin voru send til
rannsóknar bæði til Hollands og Danmerkur.
Hér er um að ræða fyrsta tilfellið af með-
fæddum efnaskiptasjúkdómi sem greindur
er hjá fóstri hér á landi og verður gerð nán-
ari grein fyrir því annars staðar. Þess má
geta, að siðan hefur sami sjúkdómur greinst
í öðru fóstri hjá þessari konu. Síðan þessu
uppgjöri lauk, hefur verið útilokaður
Krabbe's-sjúkdómur í fóstri hjá konu, sem
áður hafði fætt barn með þann sjúkdóm.
Afdrif meðgöngu
TAFLA IX. Afdrif meögöngu hjá J/99 konum
eftir legástungu.
Fjöldi %
Fóstureyðing 12 2.4
Fósturlát 9 1.8
Fyrirburðarfæðing (< 37 vikur) 20 4.0
Afbrigðileg fæð.ing (keisarask. o.fl.) 74 14.8
Eðlileg fæðing: 382 76.6
Upplýsingar vantar 2 0.4
Alls 499 100.0
Tafla IX sýnir útkomu meðgöngu hjá þeim
499 konum sem uppgjörið nær til. Eins og
áður hefur komið fram, var gerð fóstureyð-
ing hjá 12 konum og 9 misstu fóstur. Fyrir-
burðarfæðingar voru 20 eða 4%, sem er sam-
bærilegt við það sem almennt gerist hjá
konum í landinu, og það sama er að segja
um afbrigðilegar fæðingar. Upplýsingar
vantar um fæðingu hjá tveimur konum sem
fæddu erlendis.
ust erlendis. Þrennir tviburar fæddust eftir
legástungu. Allir greindust við sónarskoðun,
en ékki tókst að gera legástungu á báðum
belgjum nema i einu tilviki.
UMBÆÐUB
Talið er að allt að 10% lifandi fæddra
barna hafi einhverja meðfædda galla.9 Flest-
ir þessara galla eru ekki það alvarlegir að
fóstureyðing komi til greina og eru ekki
greinanlegir á fósturskeiði. Með legvatns-
rannsókn er hins vegar unnt að greina litn-
ingagalla og vissa aðra sjúkdóma eins og
fram kemur hér að framan. Hætta á fóstur-
láti eftir legvatnsástungu hefur verið talin
um 1—1,5 samkvæmt upplýsingum frá
öðrum löndum en niðurstöður framan-
greindra rannsókna benda til þess að hætta
á fósturláti eftir legástungu sé svipuð hér og
annars staðar þar sem slíkar rannsóknir eru
gerðar.10
Nauðsynlegt er að takmarka rannsóknirn-
ar við ákveðna áhættuhópa, bæði vegna
hættu á aukaverkunum og vegna kostnaðar.
Tíðni sumra litningagalla einkum trisomy,
vex með hækkandi aldri móður11 og er því
talið rétt víðast hvar að gera legvatnspróf
hjá öllum konum 35 ára og eldri.
Skoðanir eru nokkuð skiptar um aðrar á-
bendingar til legvatnsrannsókna og ræður
þar nokkru um rannsóknaraðstaða á hverj-
um stað.11 Hérlendis er stuðst við neðan-
greindar ábendingar, sem eru mjög svipaðar
því og gerist i nágrannalöndum.
1. „Hár“ aldur móður, það er 35 ára og eldri.
2. Staðfestur litningagalli hjá foreldri eða
börnum.
Börn fædd eftir ástnngu
Ekki fundust neinir litninga- eða efna-
skiptagallar eftir fæðingu hjá börnum i þess-
um hópi. Alls höfðu 9 börn meiriháttar með-
fædda galla og af þeim dóu 3 skömmu eftir
fæðingu. Engan þessara galla hefði verið
unnt að greina með legvatnsrannsókn.
Þrettán börn voru talin með of lága þyngd
miðað við meðgöngulengd, það er iéttburar
(„light for dates“).
Ýmsir kvillar voru skráðir hjá 14 börnum
á nýburaskeiði og er þá ekki meðtalin væg
gula. Tvö börn fæddust andvana án þekktrar
orsakar.
Upplýsingar vantar um tvö börn er fædd-
TAFLA X. Börn fœdd eftir legástungu.
Heilbrigð
Haldin meðfæiddum. galla
Anomaliae col. cervico-thoracalis 1 dó
Hemivertibrae multiplex 1
Achondroplasia 1
Anomaliae cordis 1
Strictura ani 1
Situs inversus totalis et
facialis paresis 1
Osteopetrosis familialis 1 dó
Anomaliae variae 1 dó
Abductio coxae bilat. 1
Léttburar (dysmaturitas)
Með ýmsa sjúkdóma á nýburaskeiði
Andvana fædd
Upplýsingar vantar
442
9
13
14
2