Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 14

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 14
Innflutningur Tollur 20% 100 kr. 20 kr. Tollverð innflutnings 120 kr. Vörugjald 18% af cif-verði 18 kr. Innlendur kostnaður 10% af tollverði 12 kr. Jöfnunargjald 3% af tollverði 3 kr. Heildsöluálagning 10% af kostnaðarverði 15 kr. Smásöluálagning 40% af heildsöluverði 67 kr. Söluskattur 25% af smásöluv. án sk. 59 kr. Smásöluverðmæti 294 kr. Áætlað hlutfall þess verðmætis sem fer til einkaneyslu 80% 235 kr. Þeim aðferðum, sem notaðar eru við þann hluta einkaneyslunnar sem er af innlendum uppruna, má í stórum dráttum skipta í 6-7 aðferðir. Það sem ræður skiptingunni eru einkum þær heimildir sem fyrir liggja um framleiðslu og sölu tiltekinna neysluvara eða þjónustu. Fyrsta aðferðin byggir á heimildum um framleiðslu og sölu innlendra neysluvara, svo sem mjólkur, kjöts o.fl. Sá hluti varanna, sem fer beint í neyslu, er verðlagður samkvæmt verðlistum, framfærsluvísitölunni eða öðrum heimildum. Önnur aðferðin byggir á tölum úr atvinnuvegaskýrslum Þjóðhagsstofnunar. Veltu- eða tekjutölur einstakra atvinnugreina í uppgjörinu eru teknar beint, eða reiknaðar upp til smásöluverðs, til að nálgast fjárhæðir heildarútgjalda heimilanna í landinu. Má hér t.d. nefna fjárhæðir sem varið er til neyslu á innlendu sælgæti, gosdrykkjum o.fl. Þriðja aðferðin byggir á tölulegum upplýsingum frá einstökum fyrirtækjum, stofnunum eða úr ársskýrslum og eru þær notaðar beint í einkaneysluuppgjörið. Hér má t.d. nefna upplýsingar um afnotagjöld útvarps og sjónvarps, tölur um farþegaflug flugfélaganna, upplýsingar um kostnað Islendinga vegna ferðalaga erlendis o.fl. í fjórða lagi er byggt á upplýsingum úr neyslukönnun Hagstofunnar sem gerð var árin 1978-1979. Þessi neyslukönnun var grundvöllur að vísitölu framfærslukostnaðar sem í gildi var 1/2 1984-1/5 1988. Meðalstærð fjölskyldu í þessari könnun var 3.66 manns þ.e.a.s. hjón með 1.66 börn að meðaltali. Útgjöld meðalfjölskyldunnar til ákveðinna neysluflokka í þessari neyslukönnun eru margfölduð með fjölda fjölskyldna í landinu. Fæst þannig fram áætlun á heildarútgjöldum landsmanna í nokkrum tilfellum, t.d. greidd lækna- og tannlæknaþjónusta, útgjöld til menntunar o.fl. Upplýsingar úr nýjustu neyslukönnun Hagstofunnar, sem gerð var 1985-1986, hafa í ríkari mæli verið notaðar í áætlunum hin síðari ár. Framfærsluvísitala, sem byggðist á þessari neyslukönnun, tók hins vegar ekki gildi fyrr en í maí 1988. í fimmta lagi er kostnaður við rekstur einkabifreiðar í grunni framfærsluvísitölunnar notaður til að meta þennan kostnað í heild. Er það gert með því að margfalda rekstrarútgjöld einkabifreiðarinnar, án afskrifta, með fjöida einkabifreiða samkvæmt skrám Bifreiðaeftirlits ríkisins. I sjötta lagi er notuð sérstök aðferð til að meta kostnað við íbúðarhúsnæði, bæði svokallað húsaleiguígildi og hita- og annan orkukostnað heimilanna. Húsnæðiskostnaður er nú reiknaður þannig að metinn er heildarkostnaður við það að búa í eigin húsnæði. Má hér nefna viðhald, tryggingar, vexti, afskriftir o.fl. Þessir kostnaðarliðir eru áætlaðir á grundvelli sérstakra athugana á nokkurra ára fresti, en þess á milli framreiknaðir í samræmi við breytingar á verðmæti íbúðarhúsnæðis eins og það er metið í þjóðarauðnum. Til að gera grein fyrir nokkrum helstu aðferðum við uppgjör einkaneyslunnar og vægi þeirra í heildarútgjöldunum er hér tekið dæmi frá árinu 1983. Hlutfallslegt vægi aðferðanna er nokkuð breytilegt milli ára sem ræðst einkum af sveiflum í innflutningi. 12
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.