Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 16

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Page 16
Áætluð lækkun matvælaliðarins frá heimilaðri eða reiknaðri hámarksálagningu. 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 Hlutfallsleg lækkun í % 1,5 1,6 1,7 1,8 1,9 2,0 2,1 2,2 Þessi áætlaða lækkun er meðal annars byggð á aukinni markaðshlutdeild stórmarkaðanna og lægri álagningu þeirra svo og harðnandi samkeppni í smásöluversluninni. Hér er einnig rétt að nefna annað atriði varðandi matvælaliðinn. Ekki hefur verið tekið tillit til birgðabreytinga á vörum þegar byggt er á upplýsingum um innlenda framleiðslu eða innflutning, heldur hefur verið gert ráð fyrir því að neysla eigi sér stað á því ári þegar varan er framleidd eða flutt inn. Birgðabreytingar voru þó áætlaðar fyrir hveiti, rúgmjöl og sykur fram til 1973 en ekki eftir það. Notkun þessara vara til framleiðslu á brauði, kökum, kexi og sælgæti hefur hins vegar verið dregin frá samkvæmt töium Hagstofu fslands um iðnaðarvöruframleiðslu og notkun hráefna í iðnaði. Auk matvælaliðarins hafa útgjöld vegna kaupa á fatnaði sömuleiðis verið lækkuð frá áður reiknuðu smásöluverðmæti. Ástæðurnar eru á sama hátt þær að útreikningur á smásöluverðmæti innlends og innflutts fatnaðar byggjast lengst af á leyfilegri hámarksálagningu samkvæmt reglum Verðlagsstofnunar. Vegna aukinnar samkeppni í fataverslun og til að taka tillit til lægri meðalálagning- ar, m.a. vegna útsala á fatnaði, hefur fatnaðarliðurinn verið lækkaður um 3% árlega 1980-1987. 4, Fast verðlag (staðvirðing). 4.1 Almenn lýsing. Eins og áður hefur komið fram er mikil áhersla á það lögð við alla þjóðhagsreikningagerð að fá tímaraðir sem eru samræmdar og samfelldar og lýsa breytingu í einstökum stærðum frá ári til árs. Þá er átt við breytingar á verðlagi hvers árs en þó ekki síður á föstu verðlagi. Með verðlagningu á föstu verði er ætlunin að greina verðbreytingar frá verðmætisbreytingu milli einhverra tímabila þannig að eftir standi magnbreyting. Magnbreytingar af þessu tagi eru síðan grundvöllur hagvaxtarmælinga. Verðlagningu á föstu verði, svonefndastaðvirðingu, er unnt aðskilja á tvennan hátt. Annars vegar er unnt að skilja hugtakið þannig að um sé að ræða verðmæti vöru eða þjónustu sem verðlögð er á því verði, sem þessi sama vara eða þjónusta kostaði á einhverju viðmiðunarári eða grunnári. Hins vegar mætti leggja þann skilning í hugtakið að um væri að ræða hvers konar peningaleg verðmæti sem á grundvelli einhverrar almennrar verðvísitölu væru færð til verðlags eða kaupmáttar á grunnári. Þessum síðari skilningi á hugtakinu „fast verð“ er hafnað í þjóðhagsreikningakerfi Sameinuðu þjóðanna sem hér er lagt til grundvallar. Ástæðan er sú að það er nánast útilokað að finna verðvísitölu sem væri við hæfi. Sem dæmi má taka tilfærslu frá A til B. Hugsanlegt væri að færa þessa tilfærslu til fasts verðs á grundvelli verðvísitalna sem byggðar væru á þeirri vörusamsetningu sem A eða B ýmist kaupa eða selja. Þannig væru strax komnar aðminnsta kosti fjórarverðvísitölursem til greina kæmi að nota. Fleiri ágalla mætti nefna á „föstu verði“ í þessum skilningi. Fast verð, eða staðvirðing, í þjóðhagsreikningum er því notuð í þrengri skilningi, og er þá átt við það verð sem greitt var fyrir þessa vöru eða þjónustu á grunnári. Staðvirðingu verðmætis samkvæmt þessari aðferð er unnt að framkvæma með tvennum hætti. Annars vegar má nota einingarverð á grunnári við verðlagningu á magni hvers árs, svonefnda einingarverðsaðferð. Hins vegar má reikna út verðvísitölur fyrir hvert ár með grunn á staðvirðingarári, svonefnda vísitöluaðferð. Hér á eftir verður fjallað nánar um þessar tvær aðferðir og hvenær hvor aðferð hefur verið notuð. En fyrst verður vikið að þrem vandamálum sem upp koma og gildir þá einu hvor aðferðin er notuð. Hér er um að ræða gæðabreytingar, meðferð á nýjum vörum og val á grunnári. Fyrst verður fjallað um gæðabreytingar. Ein grundvallarforsendan fyrir því að fá haldgott mat á magnbreytingu er skýrt afmörkuð vöruflokkun. Svo dæmi sé tekið mætti nefna, að ef svo óheppilega vildi til að öll sjónvörp, svart/hvít og litasjónvörp, af svipaðri stærð væru í sama vöruflokki, þá kæmi það fram sem verðhækkun á sjónvörpum ef meira væri flutt inn af litasjónvörpum eitt árið en annað. En þetta mætti einnig orða svo, 14
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.