Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 21

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 21
1105 Olía og feitmeti. Upplýsingar um framleiðslu á feitmeti, t.d. smjöri, smjörlíki o.fl., eru fengnar frá Framleiðsluráði og úr skýrslum Hagstofunnar um iðnaðarvöruframleiðsluna. Framleiðsluráð tekur saman upplýsingar um framleiðslu og sölu á smjöri og smjörva en Hagstofan aflar talna um framleiðslu á ýmsum öðrum tegundum feitmetis, þar á meðal framleiðslu smjörlíkis og matarolíu. Frá tölum um framleiðslu á feitmeti er dregin áætluð notkun þessara vara í iðnaði. En upplýsingar um þessa notkun er að finna í áðurnefndum skýrslum Hagstofunnar um iðnaðarvöruframleiðsluna þar sem einnig kemur fram notkun ýmissa hráefna og hjálparefna í innlendum iðnaði. Heildarútgjöld vegna kaupa heimila á olíum og feitmeti eru áætluð með því að margfalda selt magn með smásöluverði. Heimildir um smásöluverðfeitmetiseru verðlistar frá Osta- ogsmjörsölunni, verðtilkynningar Verðlagsstofnunar og vísitala framfærslukostnaðar. Útgjöld á föstu verðlagi eru í flestum tilfellum fundin með einingarverðsaðferð þar sem magn af vöru hverju sinni er margfaldað með verði vörunnar á staðvirðingarárinu. Ef um nýjar vörutegundir er að ræða eru útgjöld á föstu verðlagi fundin með vísitöluaðferð. 1106 Avextir og grænmeti. Sölutölur frá Söiufélagi garðyrkjumanna um selt magn af innlendu grænmeti eru verðlagðar með verði úr vísitölu framfærslukostnaðar. í sumum tilvikum er um að ræða heildsöluverð S.F.G. til kaupmanna að viðbættri áætlaðri smásöluálagningu samkvæmt heimildum Verðlagsstofnunar. Áætluð útgjöld neytenda til grænmetiskaupa út úr verslunum eru því selt magn margfaldað með einingarverði hinna ýmsu tegunda grænmetis. Áætlanir um sölu beint frá bændum svo og áætlanir um heimanotkun bænda eru byggðar á upplýsingum frá Sölufélagi garðyrkjumanna. Selt magn er verðlagt með útborgunarverði Sölufélagsins til bænda. Neysla á niðursoðnu innlendu grænmeti er byggð á tölum Hagstofunnar um iðnaðarvörufram- leiðsluna en þar er m.a. að finna tölur um magn af grænum baunum og öðru grænmeti sem fer í niðursuðu. Út frá hráefnatölum er því næst áætlað framleiðslumagn í dósum talið og til þess notaður margfaldari sem fundinn er út í samvinnu við framleiðendur í greininni. Útgjöldin eru því næst áætluð með því að verðleggja framleiðsluna með verði úr framfærsluvísitölu og hugmyndum um áætlaða skiptingu sölunnar eftir tegund pakkninga. Er þá yfirleitt gert ráð fyrir því að sala í hálfdósum nemi um 2/3 sölunnar en sala í heildósum sé um 1/3. Til að reikna útgjöldin á föstu verðlagi er hér notuð einingarverðsaðferð, þ.e.a.s. magn af ávöxtum og grænmeti á hverju ári er margfaldað með verði vörunnar á grunnárinu. Hins vegar er notuð vísitöluaðferð við fastaverðsreikning á innfluttum ávöxtum og grænmeti. Byggist sú aðferð á vísitölum sem reiknaðar eru samkvæmt tegundasundurliðun framfærsluvísitölunnar. 1107 Kartöflur og rótarávextir. Kaup á innfluttum kartöflum eru áætluð á sama hátt og annar innflutningur þar sem innflutnings- verðmætið er reiknað til smásöluverðmætis með því að leggja á tolla, álagningu o.fl. Útgjöld vegna kaupa á innlendri framleiðslu byggja á upplýsingum frá Grænmetisverslun landbúnaðarins, nú Ágæti h.f. Sala á innlendum kartöflum er verðlögð með verði frá Framleiðsluráði og úr vísitölu framfærslukostnaðar. í verðlistum Verðlagsnefndar landbúnaðarins (sexmannanefndar) var lengi vel tilgreint heildsölu- og smásöluverð á kartöflum, auk útborgunarverðs til bænda, og var smásöluverð þá notað. í seinni tíð birtir verðlagsnefndin einungis útborgunarverð til framleiðenda og er því í ríkari mæli stuðst við upplýsingar úr framfærsluvísitölunni. Tölur um sölu á gulrófum og gulrótum eru áætlaðar í samvinnu við Sölufélag garðyrkjumanna. Áætlanir um sölu bænda á kartöflum, gulrófum og gulrótum beint til neytenda svo og áætlanir um heimanotkun framleiðenda sjálfra eru fengnar frá Sölufélagi garðyrkjumanna og Grænmetisverslun- inni, nú Ágæti h.f. Magn beinnar sölu er verðlagt með áætluðu heildsöluverði en heimanotkun með útborgunarverði til bænda. Til að reikna útgjöldin á föstu verðlagi er notuð einingarverðsaðferð, þ.e.a.s. magn af kartöflum, 19 L
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.