Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 25

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 25
2202 Skóviðgerðir. Áætlanir um útgjöld til skóviðgerða eru reistar á veltutölum í atvinnugrein 242, skóviðgerðir. Til að nálgast heildarútgjöldin á árinu er söluskatti bætt við sölutekjur án söluskatts í skóviðgerðum samkvæmt atvinnuvegaskýrslum Þjóðhagsstofnunar. Smásöluverðmæti skóviðgerða á föstu verði er fundið með vísitöluaðferð þar sem byggt er á vísitölu skóviðgerða í framfærsluvísitölunni. 3. Húsnœði, Ijós og hiti. 3.1 Reiknuð húsaleiga. Fram til ársins 1977 var húsnæðiskostnaður að stærstum hluta reiknað leiguígildi íbúðarhúsnæðis á landinu sem byggt var á áætlunum um markaðsleiguna. Auk þess voru meðtalin iðgjöld til heimilis- og húseigendatrygginga að frádregnum tjónagreiðslum. í þriðja lagi var áætluðum húsgjöldum íbúða í blokkum bætt við sem öðrum útgjöldum vegna eigin íbúðarhúsnæðis. Leiguígildi var áætlað með upplýsingum um fjölda íbúða á íslandi og upplýsingum um meðalhúsaleigu sem fram komu í gögnum stjórnar Verkamannabústaða á Islandi. Byggðust tölurnar á greiddri húsaleigu þeirra sem sóttu um verkamannabústaði. Frá og með árinu 1977 er uppgjörsaðferðum breytt á þann veg að í stað þess að áætla leiguígildið út frá markaðsleigu er nú reynt að áætla allan rekstrarkostnað íbúðarhúsnæðis, svo sem fasteignagjöld. tryggingar, afskriftir og viðhald og rekstrarafgang að auki. Afskriftir eru áætlaðar 2,4% af þjóðarauðs- mati en viðhald er áætlað 20% af leiguígildi. Rekstrarafgangur er áætlaður 3,5% af þjóðarauðsmati íbúðarhúsnæðis á landinu. Samtala kostnaðar og rekstrarafgangs telst því brúttóleiguígildi frá árinu 1977. Þessar breyttu aðferðir valda ekki teljandi skekkju í mati á leiguígildinu. Húsnæðiskostnaður á föstu verðlagi byggist á vísitöluaðferð þar sem ofantaldir kostnaðarliðir eru hver um sig staðvirtir með mismunandi verðvísitölum. Leiguígildi sumarhúsa er ekki meðtalið hér þótt að réttu lagi ætti að reikna það með á líkan hátt og annað íbúðarhúsnæði. 3.2 Ljós og hiti. Ekki liggja fyrir tölur frá orkusölufyrirtækjunum um skiptingu sölunnar milli heimila og fyrirtækja. Útgjöld heimilanna verður því að áætla. Við áætlanir á kyndingarkostnaði íbúðarhúsnæðis eru notaðar upplýsingar um skiptingu fólksfjölda eftir orkugjöfum sem Orkustofnun tekur saman. Athuganir liggja fyrir um upphitað rúmmál á mann og orkuþörf mismunandi orkugjafa til upphitunar á rúmmetra íbúðarhúsnæðis. Sú orka, sem þarf til að hita upp ákveðið húsnæði, er fundin með því að margfalda saman upphitað rúmmál á mann, þá orku sem þarf til upphitunar þess húsrýmis á ári og heildarmannfjölda eftir orkugjöfum. Útgjöldin eru því næst fundin með því að margfalda orkutaxta (kr. á lítra af olíu, kr. á rúmmetra af heitu vatni eða kr/kWh rafmagns) með orkuþörf í heild fyrir hverja tegund upphitunar. Olíustyrkur, sem greiddur er af ríkissjóði til þeirra sem búa við upphitun með olíu, er ekki færður til frádráttar útgjöldum hér heldur kemur hann sem tilfærsla til heimilanna samkvæmt reglum þjóðhagsreikninga. Húshitun á breytilegu verði er staðvirt með þremur vísitölum, húshitunartaxta Hitaveitu Reykjavíkur, verði gasolíu til húshitunar og húshitunartaxta RARIK. Olíukynding á föstu verðlagi er hér sömuleiðis færð brúttó, þ.e. án olíustyrkja frá ríkissjóði. Rafmagn til ljósa, eldunar og til annarrar heimilisnotkunar en upphitunar er einnig talið með í þessum flokki. Orkustofnun tekur saman og birtir tölur um sölu á raforku til heimilisnota. Hér er notuð uppgefin sala í fjárhæðum en upplýsingar liggja einnig fyrir um orkunotkunina í magni. Rafmagn til heimilisnotkunar á föstu verðlagi er reiknað út frá breytilega verðlaginu og verðvísitölu rafmagnstaxta samkvæmt tölum Orkustofnunar um selda orku í fjárhæðum og selt magn. 23
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.