Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Síða 28

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Síða 28
reiknaður til fasts verðlags með vísitölu smásöluverðs í sápu- og þvottaefnaiðnaði samkvæmt framfærsluvísitölunni, sbr. töflu 6.4 í atvinnuvegaskýrslu 1986. 4502 Þjónusta efnalauga og þvottahúsa. Hér er notuð sala þvottahúsa og efnalauga með söluskatti samkvæmt yfirlitum í atvinnuvega- skýrslum. Frá heildarsölu með söluskatti er dreginn hluti þvottahúss ríkisspítalanna og áætluð sala til atvinnurekstrar. Niðurstaðan er sú að telja til einkaneyslu 5% af veltu þvottahúsa og 70% af veltu efnalauga. Efnalaugar og þvottahús teljast til sama atvinnugreinanúmers samkvæmt atvinnuvega- flokkun Hagstofu íslands og þarf því að áætla skiptingu veltunnar milli þeirra. Þetta er gert á grundvelli launamiðaskrár ríkisskattstjóra en sú skrá veitir m.a. upplýsingar um launagreiðslur einstakra fyrirtækja í hverju atvinnugreinarnúmeri fyrir sig. Samkvæmt skránni má ætla að um 75% veltunnar í atv.gr. 864, þvottahús og efnalaugar, séu í þvottahúsum og 25% í efnalaugum. Samanlagt eru því um 20% af veltu efnalauga og þvottahúsa meðtalin í einkaneyslu. Útgjöldin á föstu verðlagi eru reiknuð annars vegar með vísitölu „efnalaugaútgjalda“ og hins vegar vísitölu „þvottahúsaútgjalda" sem hvor tveggja byggist á þjónustuköflum framfærsluvísitölunnar frá 1968. í nýrri vístölu, sem tók gildi 1/2 1984, eru útgjöldin aftur á móti færð í einu lagi og þess vegna er staðvirðingin nú gerð með einni vísitölu í stað tveggja áður. 4.6 Heimilisaðstoð. Hér er útgjöldum vegna heimilisaðstoðar skipt í tvo hluta sem eru kostnaður við gæslu barna á dagheimilum, hjá dagmæðrum o.fl. og aðkeypt þjónusta við heimilisstörf og aðra aðstoð á heimilum. 4601 Útgjöld vegna barnagæslu. Kostnaður við gæslu barna er hér áætlaður með því að margfalda útgjöld meðalfjölskyldu í vísitölunni með fjölda fjölskyldna í landinu hverju sinni. Gengið er út frá tölum Hagstofunnar um íbúafjöldann ár hvert og fjölskyldustærðir í neyslukönnunum Hagstofunnar. Þegar fjölskyldufjöldinn er fundinn var fyrst miðað við fjölskyldustærð 3,98 manns sem var fjölskyldustærðin í neyslukönnun Hagstofunnar 1964-1965. Var sú neyslukönnun grundvöllur að framfærsluvístölunni frá 1968. Frá því viðmiðun var tekin upp við neyslukönnunina, sem gerð var árin 1978-1979, hefur fjöldi fjölskyldna miðast við 3.66 manna meðalfjölskyldu. Vísitalan, sem byggði á þeirri könnun, tók gildi 1/2 1984. Á sama hátt er kostnaður við barnagæslu á föstu verðlagi reiknaður með töxtum og tímafjölda úr vísitölu framfærslukostnaðar. 4602 Heimilishjálp. Útgjöld vegna heimilisaðstoðar eru áætluð á sama hátt og barnagæslan með upplýsingum um fjölda fjölskyldna og fjölskylduútgjöld í vísitölu framfærslukostnaðar. í eldri vísitölu var bæði að finna tímakaup og fjölda greiddra tíma á ári fyrir heimilishjálpina. í nýrri vísitölu er nú einungis tilgreind greidd fjárhæð til þessara hluta en tímanna ekki getið sérstaklega. Útgjöld vegna heimilishjálpar á föstu verði eru reiknuð með vísitöluaðferð sem byggir á verðvísitölu samkvæmt fjárhæðum í framfærsluvísi- tölunni. 5. Lyf og lœknishjálp. Til þessa útgjaldaflokks teljast aðeins beinar greiðslur sjúklinga vegna lyfjakaupa og læknishjálpar en öll útgjöld hins opinbera til þessa málaflokks teljast samneysla. Þeim útgjöldum, sem hér um ræðir, er skipt í tvo hluta. Annars vegar er um að ræða kaup á lyfjum og öðrum lyfjabúðarvörum og hins vegar greiðslur sjúklinga til lækna fyrir veitta læknisþjónustu. 26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.