Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 29

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 29
5.1 Lyf og lyfjabúðarvörur. Kaup á vörum, sem eru annars vegar lyf og hins vegar hjúkrunarvörur eru áætluð út frá veltu apóteka, atv.gr. 624. Sölu með söluskatti er skipt skv. upplýsingum frá Lyfjaverðlagsnefnd í sölu Iyfja og sölu annnarra vara. Hluti sjúkrasamlaga í lyfjakaupum er hér dreginn frá. Staðvirðing á útgjöldum til lyfjakaupa og til kaupa á hjúkrunarvörum er gerð með tilheyrandi vísitölu úr framfærsluvísitölunni. 5.3 Læknishjálp. Heilsuverndarþjónustan er hvað varðar tannlæknaþjónustu, læknaþjónustu og þjónustu ljós- mæðra, áætluð út frá upplýsingum um útgjöld til þessara þátta í vísitölunni og með hliðsjón af fólksfjölda á hverjum tíma. Upplýsingar um greiðslur sjúklinga vegna komu á slysadeild eru úr ársskýrslum Borgarspítalans. Fastaverðið er reiknað með verðvísitölum sem byggjast á útgjöldunum í framfærsluvísitölunni og töxtum fyrir greiðslur sjúklinga fyrir aðstoð á slysadeild. Til viðbótar útgjöldum einstaklinga til kaupa á lyfjum og læknaþjónustu ýmiss konar voru hér taldar tilfærslur frá ríkinu til heimilanna vegna heilsugæslu. Er hér m.a. um að ræða greiðslur sjúkrasamlaga fyrir kaup á vörum og þjónustu svo og rekstur sjúkrahúsa í landinu. Með tilkomu nýs þjóðhagsreikningakerfis, SNA, á árinu 1985 var þessum tilfærslum sleppt hér en þær taldar með samneyslunni. Tölur fyrri ára hafa verið lagaðar að hinu nýja kerfi. 6. Flutningatœki og samgöngur. Þessi þáttur einkaneyslu skiptist í kaup einkafarartækja og rekstur þeirra og almenna flutninga- þjónustu. 6.1 Kaup einkafarartækja. Kaup einkabifreiða, vélhjóla, reiðhjóla og annarra slíkra einkafarartækja eru áætluð á svipaðan hátt og aðrar innfluttar vörur. Hér er þó um fleiri álögur að ræða en almennt gerist. í innflutningsskýrsl- um koma fram fjöldi og innflutningsverðmæti innfluttra bifreiða, bæði nýrra og notaðra. Hér eru til viðbótar meðtalin innflutt bifhjól, reiðhjól, hjólhýsi og tjaldvagnar. Til einkaneyslu hafa verið taldar fólksbifreiðar aðrar en atvinnubifreiðar sem taldar eru fjárfesting. Á síðari árum hafa 92-96% einkabifreiða talist með einkaneyslunni. Svipaðri reglu hefur verið beitt við stærri bifhjól þar sem um 85% hjólanna hafa talist einkaneysla. Til að áætla smásöluverðmæti fólksbifreiða er tolli, sérstöku innflutningsgjaldi, álagningu og söluskatti bætt við tollverð bifreiðanna eftir reglum sem í gildi eru á hverjum tíma. Til að áætla innflutningsgjaldið, sem er breytilegt eftir eigin þyngd eða vélarstærð bifreiðanna, er tekið mið af innheimtu gjaldi og fjölda fólksbifreiða. Tölur um innfluttar bifreiðar og verðmæti þeirra eru miðaðar við þann tíma þegar þær eru leystar úr tolli. Bifreiðar geta því verið komnar til landsins og beðið tollafgreiðslu um óákveðinn tíma án þess að koma í innflutningsskrár. Sömu meðferð fá einnig aðrar innfluttar vörur aðrar en þær sem fara í gegnum Tollvörugeymsluna. Vörur í Tollvörugeymslunni koma inn í skrár Hagstofunnar um leið og þær koma til landsins en hér er aðallega um að ræða stærri heimilistæki, hljómtæki o.fl. Til að reikna smásöluverðmæti einkafarartækja á föstu verðlagi er beitt vísitöluaðferð. Verðvísi- talan, sem notuð er, byggir á verðbreytingum afskrifta í sérstakri bifreiðavísitölu Hagstofu íslands. 6.2 Rekstur einkafarartækja. Framan af var kostnaður við rekstur einkafarartækja áætlaður með samantekt á ýmsum upplýsingum um gjaldaliði við rekstur einkabifreiða. Hér má nefna tryggingar, eldsneytiskostnað o.fl. sem byggjast á heimildum úr sérstakri bifreiðavísitölu Hagstofunnar, upplýsingum frá tollstjóra o.fl. Alls er um að ræða 12 kostnaðarliði, sem teknir eru með í rekstrarkostnað auk kaupa á bifreiðum og varahlutum til þeirra. Flestir kostnaðarliðir eru reiknaðir út frá bifreiðafjölda og kostnaði á bíl, nema tryggingar þar sem upplýsingar um greiðslu ábyrgðartryggingagjalda og iðgjalda vegna kaskótrygginga 27
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.