Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 49

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Side 49
með því að verðleggja báðar vörutegundirnar eða vöruafbrigðin á föstu verði áður en lagt er saman. Dýrari vörutegundin er þá talin jafngilda auknum gæðum og þar með auknu magni. Magnvísitölur einstakra útgjaldaliða í einkaneyslunni eins og þær birtast í þessari skýrslu eru fengnar með þessum hætti. Engu að síður þótti ástæða til þess að fylla upp í myndina með því að birta einnig nokkra grófa þyngdar- eða rúmmálsmælikvarða á nokkrum fæðutegundum. Þetta er gert í töflum 1.12 til 1.15. í töflu 1.12 eru sýndar tölur um sykurneyslu íslendinga 1960-1987, bæði í heild og á hvern íbúa á ári. Tölurnar byggja á upplýsingum úr Verslunarskýrslum Hagstofu íslands. Um er að ræða innfluttan sykur að viðbættu sælgæti úrsykri t.d. brjóstsykur. Hér til viðbótar hefur verið talið innflutt súkkulaði. Frá innfluttum sykri og sælgæti er aftur á móti dregin sykurnotkun í útflutningsiðnaði og fæst þannig heildarneysla landsmanna á sykri. Áætlanir um sykurnotkun í útflutningsiðnaði eru m.a. gerðar í samráði við Síldarútvegsnefnd. Tölur um sykurnotkun á íbúa sýna vaxandi neyslu undanfarin ár. Tafla 1.13 hefur að geyma upplýsingar um þær heildarfjárhæðir sem varið er til kaupa á áfengi og tóbaki samkvæmt einkaneysluuppgjörinu 1957-1987. Sömuleiðis er sýnt hversu stórt hlutfall útgjöldin eru ef miðað er við verga landsframleiðslu 1957-1987. Samkvæmt þessum tölum er neysla áfengis og tóbaks lækkandi hlutfall af landsframleiðslunni 1957-1987. Áfengisneysla á mann mæld í lítrum af hreinum vínanda hefur samt rúmlega tvöfaldast á þessum 30 árum eins og fram kemur í töflu 1.15. Sömuleiðis hefur tóbaksnotkun vaxið að magni eins og tölur í töflu 1.15 og 1.17 bera með sér. í töflu 1.14 eru tekin dæmi um heildarneyslu íslendinga á nokkrum algengum fæðutegundum 1957-1987. Hérer um að ræða neyslu ásmjöri, kjöti, kartöflum, kaffi, sykri, fiski, eggjum, mjólk, öliog gosdrykkjum. Hér til viðbótar eru tölur um neyslu áfengis og tóbaks. Nokkur atriði skulu nefnd til skýringar. Tölur um neyslu á mjólk og smjöri eru samkvæmt söluyfirlitum Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Til viðbótar smjörsölu er fyrri hluta tímabilsins áætluð notkun á heimagerðu smjöri hjá framleiðend- um. Hér er þó um óverulegt magn að ræða. Við smjörsöluna bætist einnig sala á smjörva frá haustinu 1981. Við tölur Framleiðsluráðs um sölu á mjólk bætist sömuleiðis áætluð notkun mjólkur á bændaheimilum. Hér til viðbótar er einnig meðtalin sala á súrmjólk og jógúrt. Tölur um sölu á smjöri og mjólk innihalda sömuleiðis notkun þessara vara í iðnaði og á veitingahúsum. Kjötneysla 1957-1987 er í stórum dráttum samkvæmt söluskýrslum Framleiðsluráðs landbúnaðar- ins. Bæði er um að ræða kjöt, sem fer beint til sölu í verslunum og einnig kjöt sem fer í kjötvinnsluna. Til viðbótar er áætluð heimanotkun bænda meðtalin og einnig sala framleiðenda sjálfra beint til neytenda, einkum framan af tímabilinu. Er þá stuðst við upplýsingar um kjöt sem framleiðendur taka heim af búfé sem slátrað hefur verið í sláturhúsum. Neysla á innmat, svosem á hjörtum, lifur, blóðmör o.fl., er ekki meðtalin í kjötneyslunni. Varðandi kjötneyslu í heild er rétt að taka fram að samsetning sölunnar hefur tekið verulegum breytingum 1957-1987. Neysla á svínakjöti, fuglakjöti og nautakjöti hefur t.d. aukist verulega á meðan neysla kindakjöts og hrossakjöts hefur staðið í stað eða minnkað. í töflu 1.14 er sala allra tegundanna lögð saman án tillits til þess hvort neysla verðmeiri kjöttegunda hafi verið meiri eða minni. Kartöfluneysla landsmanna er samkvæmt framleiðsluskýrslum Framleiðsluráðs og söluskýrslum Grænmetisverslunar landbúnaðarins, nú Ágætis h.f. Til viðbótar koma upplýsingar um innfluttar kartöflur úr Verslunarskýrslum. Sömuleiðis er hér meðtalin heimanotkun bænda. Upplýsingar um kaffineyslu landsmanna byggjast í fyrsta lagi á tölum úr skýrslum Hagstofunnar um iðnaðarvöruframleiðsluna. Hér er að finna tölur um framleiðslu á brenndu og möluðu kaffi auk framleiðslu á kaffibæti, sem nú er hætt. í þriðja lagi er byggt á innflutningstölum úr Verslunarskýrslum um innflutt kaffi brennt og malað. í þriðja lagi var byggt á innflutningstölum Sambands íslenskra samvinnufélaga og fleiri heildsölufyrirtækja til að áætla sölu á óbrenndum kaffibaunum til neytenda, sem algeng var áður fyrr. Helstu heimildir um fiskneyslu eru skýrslur Fiskifélags íslands um fiskafla og ráðstöfun hans. Til viðbótar eru notaðar upplýsingar úr vísitölu framfærslukostnaðar, tölur frá Veiðimálastofnun auk upplýsinga sem framleiðsluskýrslur Hagstofunnar veita um hráefni í niðursuðuiðnaði. Upplýsingar um framleiðslu og neyslu á eggjum koma í fyrstu frá samtökum framleiðenda. Seinni 47
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.