Einkaneysla 1957-1987


Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Qupperneq 56

Einkaneysla 1957-1987 - 01.12.1989, Qupperneq 56
hlutfall menntunarútgjalda af einkaneyslu vera í Svíþjóö 1986, 0,1% (0,2%). Næst koma Noregur og ísland með þennan kostnað 0,4% (0,5%) af einkaneyslunni. Hins vegar segir lágt hlutfall ekkert um heildarkostnað vegna menntunar þjóðanna, þar sem hlutur samneyslunnar er mismunandi eftir löndum. Þessi ólíku hlutföll lýsa mismunandi skipulagi menntunar í löndum OECD. Þar sem hlutfallið er hátt tekur hið opinbera takmarkaðan þátt í menntunarkostnaði, einkum á efri stigum og einkaskólar eru algengir. Hlutur nemendanna sjálfra verður því umtalsverður í greiðslu skólagjalda og í kostnaði við námsefni. Hér má nefna Bandaríkin sem dæmi um einkareknaskóla. Þar sem ríkisreknirskólareru algengir og skólgjöld lág er þetta hlutfall aftur á móti í lægra meðallagi. Má hér t.d. nefna Svíþjóð, þar sem hlutur samneyslunnar í menntunarkostnaði er verulegur. Liðurinn, ýmsar vörur og þjónusta, hefur farið vaxandi í öllum samanburðarlöndunum nema Svíþjóð þar sem hann hefur lækkað nokkuð. Hér er um að ræða útgjöld til kaupa á snyrtivörum og -þjónustu og útgjöld á veitingahúsum og til kaupa á gistingu. Hér er ennfremur meðtalinn kostnaður vegna líftrygginga og lífeyristrygginga, greiðslur fyrir bankaþjónustu, félagsgjöld o.fl. Hlutfallslega eru þessi útgjöld hæst á Spáni 20,7% 1986 og í Englandi 19,6% (17,9%). Japanir koma næstir með útgjöld sem nema 17,6% (14,0%) af einkaneyslunnni. A.m.k. hvað England varðar eru ástæður hins háa hlutfalls óvenju hátt hlutfall útgjalda á veitinga- og gistihúsum, það hæsta sem þekkist í þeim löndum sem tölurnar ná til. Samsvarandi tölur fyrir Spán og Japan eru ekki tiltækar 1986. Sama er að segja um sundurliðuð einkaneysluútgjöld í Englandi og á Spáni 1987. Lægsta hlutfall í þennan málaflokk 1986 er hjá Svíum 6,3% (6,7%). Einnig eru Þjóðverjar og Grikkir í lægri kantinum með hlutföll sem nema 8,3% (6,5% ) og 9,7% (8,2) af einkaneyslu. Til samanburðar hafa íslendingar aukið hlut sinn nokkuð og nemur hlutfallið 11,8% (7,5%) einkaneysl- unnar 1986. Ástæður fyrir auknu vægi þessa liðar á íslandi eru stóraukin útgjöld á veitinga- og gistihúsum á undanförnum árum. Námu útgjöld íslendinga á veitinga- og gistihúsum 7,8% (4,7%) einkaneyslunnar alls 1986. Til samanburðar var samsvarandi hlutfall á Islandi 1980 4,4% og 5,3% 1983. Mjög mismunandi er hversu hár ferðakostnaður innlendra ferðamanna erlendis er. í flestum tilfellum er þessi liður hlutfallslega vaxandi. Ef tekið er dæmi frá 1986 eru þessi útgjöld hæst hjá Norðmönnum 7,1% (4,3%) og íslendingum 5,8% (3,2%). Næstir í röðinni koma Danir, Svíar og Þjóðverjar þar sem þessi liður er á bilinu 4,1-4,6% einkaneyslu í viðkomandi löndum. Lægst hlutfall ferðakostnaðar erlendis er hjá Japönum 0,7% (0,6%), Bandaríkjamönnum 1,0% (1,0%) og hjá Spánverjum 1,2%. Útgjöld erlendra ferðamanna sem hlutfall einkaneyslu er sömuleiðis mjög mismunandi. Hér ræður að sjálfsögðu miklu hversu þróaður ferðamannaiðnaðurinn er og hvernig búið er að þessari atvinnugrein. Líklegt er að þetta hlutfall sé hátt hjá þeim þjóðum, sem leggja mikið upp úr ferðamannaþjónustu og hafa drjúgan hluta tekna sinna af slíkri starfsemi. Ef tekið er mið af tölum 1986 eru útgjöld erlendra ferðamanna sem hlutfall af einkaneyslu hæst á Spáni 8,2%, Grikklandi 6,8% (5,0%) og Portúgal 6,5%. Lægst er hlutfallið í Japan 0,1% (0,1%), Bandaríkjunum 0,5% (0,5%) og Ástralíu þar sem það er 1,5% (0,7%). Öll þessi lönd búa við óhagstæðan ferðamannajöfnuð þ.e.a.s. þjóðirnar eyða meiri gjaldeyri á ferðalögum erlendisheldur en erlendir ferðamenn skilja eftir í landinu. Sömu sögu má segja um Þýskaland þar sem hlutfall þetta er 2,7% (2,3%). Þjóðverjar verja aftur á móti sem svarar 4,1% af einkaneyslu 1986 á ferðalögum sínum erlendis. Allar Norðurlandaþjóðirnar, nema Danir eyða hlutfallslega meiru á ferðalögum erlendis en sem nemur tekjum þeirra af erlendum ferðamönnum á þessu sviði. Munar hér í flestum tilfellum miklu. Útgjöld erlendra ferðamanna á íslandi námu 2,6% (2,5%) einkaneyslunnar 1986 en 2,7% 1987. Á sama tíma var eyðsla íslendinga á ferðalögum erlendis 5,8% (3,2%) og 6,5% eða rúmlega helmingi meiri en tekjur af erlendum ferðamönnum hérlendis. Sami munur kemur fram hjá Norðmönnum sem eyða sem svarar 7,1% (4,3%) einkaneyslu 1986 á ferðalögum sínum erlendis. Á sama tíma eru tekjur af erlendum ferðamönnum í Noregi sem svarar 3,0% (2,7%) einkaneyslu Norðmanna. 54
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174

x

Einkaneysla 1957-1987

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Einkaneysla 1957-1987
https://timarit.is/publication/1001

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.