Sagnir - 01.06.2003, Blaðsíða 39
HÓPFLUG ÍTALA ÁRIÐ 1933
W I m
I VIVA I
I SALSO!
VIVA I.A I.l.'ii ,1 :.:A a
A meðan ítalimir dvöldu hér voru þessi orð rituð við innganginn að Hótel
Borg: Viva Italia! Viva Balbo! Viva la crociera atlantica.
Auk Balbo á myndinni em tveir aðrir foringjar og söngvarinn Eggert Stefansson.
hvílík miðstöð hér hefði verið famennrar menningarþjóðar".39
Nokkuð af ffóðleiknum hafði hann fengið á leiðinni frá íslensku
leiðsögumönnunum en einnig var þama dreift htlu hefti á
ítölsku sem útskýrði Alþingi hið foma og hafði að geyma stutt
ágrip af íslandssögunni. í Valhöll var mönnum boðið upp á
léttar veitingar og skemmtu menn sér þar um stund við léttar
samræður. Að þeirri stund lokinni og eftir að Islendingamir, sem
vom á fjórða tug manna, höfðu hrópað ferfalt húrra fyrir Balbo
og ítölsku þjóðinni var farið í bílana. Þegar ekið var í burtu var
mörgum enn starsýnt á Þingvelli og Þingvallavatn og „höfðu það
við orð, að þeir höfðu óvíða svipmeiri náttúrufegurð litið í sínu
eigin föðurlandi".40
Auk þessara ferða var að sögn nokkurra viðmælanda
önnur afþreying í boði fyrir ítalina á meðan á dvöl þeirra stóð
og mundu sum eftir því að hafa heyrt af glæsilegum dansleikjum
sem haldnir vom fyrir þá á Borginni. Að sjálfsögðu var mörgum
íslenskum dömum boðið á þessa dansleiki og slógu þær víst ekki
hendinni á móti shku boði „ ... enda vom þeir svo ægilega sætir,
með skakka húfu og svona ...“ 41 eins og Þórunn Kjartansdóttir
(1921) lýsti ítölunum. Pétur Pétursson (1918) mundi eftir
að hafa heyrt sögu sem gerðist á einum þessara dansleikja á
Borginni og var hún eitthvað á þessa leið:
... einn þessara pilta var að dansa við fallega,
ljóshærða stúlku á Hótel Borg og varð ákaflega
gagntekinn af henni. Hann hugði á frekari
kynni og hvíslaði í eyra hennar, hvort þau gætu
ekki fundist þegar dansleiknum væri lokið.
Hún tók vel í það, hvíslaði í eyra hans og
gerði honum það einhvem veginn skiljanlegt
að best væri að hittast í Hljómskálagarðinum
við syðri tjömina. Þar var nú grasgefinn blettur
... Sögunni um stefnumót Italans og ljóshærðu
stúlkunnar lauk á þann veg, að þegar Italinn
kom í Hljómskálagarðinn, horfði í kringum
sig og leit til lofts þá var sólin ekki enn sigin
til viðar, heldur var bjart allan sólarhringinn og
ekkert tré sem gæti skýlt ungum elskendum.
Þá er það sagt að hann hafi tekið til fótanna og
mnnið á flótta.42
Samkvæmt Pétri var því síðar bætt við, af illkvittnum
karlmönnum, að eftir þessa heimsókn hafi hafist mikill
trjáræktaráhugi hjá reykvískum konum, sem byquðu að
planta tijám í gríð og erg.
Brottfórin
Þann 10. júlí barst um bæinn sú frétt að Italimir hyggðust
halda för sinni áfram sama kvöld ef veður héldist gott.
Undirbúningur fýrir brottförina hófst nærri samstundis og
um klukkan 20:00 var lögreglan í viðbragðsstöðu inni við
Vatnagarða. Nokkrir flugmannanna gættu þess að fa næga
hvíld fyrir flugið sem framundan var, aðrir sáust spássera
um götur bæjarins. Síðasta kvöldmáltíðin var borin fram
klukkan 21:00 á Hótel Borg og var spiluð lifandi tónlist
undir borðum og sungin vom bæði íslensk og ítölsk
þjóðlög. Þjóðimar hylltu hvor aðra með húrrahrópum og
Italirnir sem vom mjög kátir sungu hástöfum fasistasöng
sinn „Giovinezza“ auk annarra söngva. Brottförin var
áætluð um klukkan 22:00 en þegar Italimir komu í
Vatnagarða var klukkan að nálgast 03:00. Um tíuleytið
var margt manna tilbúið inn við Vatnagarða að kveðja
Italina en þegar leið á nóttina án þess að þeir létu sjá sig
hurfú margir Islendinganna heim á leið, því þótt veðrið
væri gott var kalt að bíða. Jón Þorláksson borgarstjóri
var viðstaddur brottförina en forsætisráðherra var staddur
austur á fjörðum á framboðsfúndum. Hann sendi þrátt
fyrir það Balbo skeyti með ósk um góða ferð. Eins fékk
forsætisráðherra skeyti frá Balbo þar sem hann þakkaði
þjóðinni góðar viðtökur og minntist á það að ísland yrði
sér ógleymanlegt. Brottförin gekk ekki sem skyldi. Tafir
urðu vegna ósamræmis í veðurskeytum sem komast þurfti
til botns í áður en lagt yrði af stað. Klukkan rúmlega
fimm um morguninn var loks allt eins og það átti að vera
og hópurinn tilbúinn til brottfarar. Balbo kvaddi og var
hann hylltur með húrrahrópum af þeim sem enn voru á
svæðinu. En margt fer öðruvísi en ætlað er og þegar Balbo
ætlaði að hefja sig til flugs þá fór véhn ekki af stað vegna
bilunar og ítalski hópurinn var aftur kominn inn í borgina
klukkan 10:00 að morgni þess 11. júlí eða um 12 tímum
eftir fyrirhugaða brottför.43 Gert var við stíflaða bensínsíu
SAGNIR 37