Sagnir - 01.06.2003, Page 40
í vél Balbo á meðan flugmennimir hvíldust. Þegar leið á
kvöldið viðraði vel til flugs og var því gefin út sú skipun
að vera tilbúnir til brottfarar klukkan 3:30 um nóttina. A
þessum tíma var heldur famennt inni við Vatnagarða til að
kveðja Italina en klukkan 6:00 að morgni 12. júlí 1933 var
Balbo aftur kominn í loftið. Síðustu tvær sjóflugvélamar
yfirgáfu svæðið tveimur tímum og 24 mínútum á eftir
Balbo sem hefur þá sennilega verið kominn um 500 km
vestur á bóginn.44 Ferðin gekk vel og vom Italimir komnir
til Labrador um það bil tólf tímum síðar. Eftir að Italirnir
höfðu yfirgefið landið sendi forsætisráðherra Balbo skeyti
með ósk um góða ferð og þökk fyrir komuna. A sama tíma
barst honum svohljóðandi skeyti ffá Balbo: „Um leið og
ég kveð Island sendi ég yður enn einu sinni kveðju mína
og þökk fyrir þá miklu velvild sem við höfum notið í hinu
ógleymanlega landi yðar“.45
Italski hópurinn var ekki einn um að yfirgefa landið
þennan dag. Með hópnum vom einnig 298 bréf með
kveðjum frá Islandi. Þessi bréf vora öll frímerkt á sérstakan
máta því í tilefni hópflugsins vora prentuð sérstök ffímerki
að verðmæti 1, 5 og 10 króna. A öllum frímerkjunum var
mynd af Kristjáni X en búið var að prenta yfir hana með
rauðu letri „hópflug Itala 1933“. Það kostaði 16 krónur
undir hvert bréf til Ameríku eða eina seríu af þessum
sérprentuðu frímerkjum. Einungis þijár sdmpildagsetningar
era þekktar ffá Reykjavík á þessi bréf: 7.,9., og 11. VII.
33.46 Auk Italíu var Island eina landið sem gaf út sérstök
frímerki í tilefni hópflugsins. Af þessum 298 bréfúm sem
send vora frá Islandi eru þekkt 107 og fimm eða sex era
í eigu íslenskra safnara. Þrátt fyrir að ekki sé lengri tími
liðinn frá hópfluginu er erfitt að nálgast þessi frímerki og
þykja þau verðmæt.47 Hvort Islendingar hafi séð það fyrir
hversu mikils virði þessi frímerki yrðu er óvíst en það kom
fram í viðtali við Helgu Guðbjömsdóttur (1923) að hún
man eftirsjá foður síns í því að hafa ekki keypt frímerkin á
sínum tíma. Hann var þá yfirlögregluþjónn og sem slíkur
hafði hann í nógu að snúast á meðan á heimsókninni stóð
og gleymdi einfaldlega að kaupa ffímerkin.48
A degi ffímerkisins þann 9. október árið 1993 var
gefin út sérstök smáörk til minningar um að sextíu ár vora
liðin frá komu Balbo til landsins. Smáörkin sýnir þijú
frímerki úr seríunni sem notuð var á bréfin sem send vora
árið 1933.49
♦ ♦ Skiptar skoðanir ♦ ♦
Það lítur út fyrir að Islendingar hafi verið á einu máli með
að bjóða Italina velkomna til landsins og láta þeim líða sem
best á meðan á dvöHnni stóð en var það í raun svo? Þrátt
fyrir að minna hafi borið á þeim hópi manna sem ekki
vildi Balbo til landsins voru þeir engu að síður nokkrir og
reyndu að koma sínum skoðunum á framfæri.
Móttnœli
Það var ekki auðvelt að koma skoðunum sínum á framfæri
á þessum tíma og til dæmis mátti sjá auðan dálk í Rauða
fánanutn, blaði ungra kommúnista. Einungis fyrirsögnin
fékk að halda sér og sett var útskýring í sviga þar á
eftir: „FLUGFERÐ ÍTALANNA (greinin bönnuð af
lögreglustjóra)“.50 Þessir einstaklingar vildu ekki fa Balbo til
landsins því hann var fasisti og mótmæltu því komu hans og
hópsins í heild sinni. Þann 29. júní 1933 var „flugmiða“ á vegum
Rauða fánans dreift og á honurn útskýrð aðgerð lögreglu áður en
blaðið fór í prentun:
... í gærkveldi klukkan 11 koma 4 lögregluþjónar á
skrifstofú SUK og taka upplag blaðsins sem þar var!
Astæðan var, að í það var skrifað „óvirðulega” um
ítalska fasistaforingjann og mesta verkalýðsmorðingja
heimsins, Mussolini, og flugleiðangurinn, sem hann
er að stofna til hingað til Islands til að rannsaka
skilyrði fyrir flota og flugherstöð sem er einn
þátturinn í undirbúningi nýs heimsblóðbaðs!!51
Auk þessa var á miðanum einnig birtur síðasti hluti þeirra greinar
sem bönnuð var af lögreglustjóra.
Verkalýðurinn á Islandi tekur höndum saman við
ítalska verkalýðinn, sem hefir í 10 ár átt við blóðugar
ofsóknir að búa af hendi fasistastjómar Mussolini,
og mótmælir. Islenzkur verkalýður mótmæhr
pyntingum, manndrápum og launmorðum
valdhafanna á Italíu og tekur undir aðalkjörorð ítalska
verkalýðsins:
Abasso il Fascismo! (Niður með fasismann).
Abasso Mussolitti! Abasso Balbo! (Niður með
Mussolini og Balbo - foringi ít. flugleiðangursins).
Viva Terracitii e Gratnsci! (Lifi Terracini og
Gramsci - fangelsaðir foringjar ít. verkalýðsins).
Viva il Commuttismo! (Lifi kommúnisminn).
... Látum leiguþý Mussolini heyra þessi kjörorð.52
Að lokum notuðu kommúnistamir flugmiðann til þess að
hvetja bæði verkamenn og -konur til þess að nota þessi
kjörorð við konru Italanna til landsins. Koma Balbo er Pétri
Péturssyni eftirminnileg. A þeim tíma var hann í félagi ungra
jafnaðarmanna sem vora áhugasamir og virkir í þátttöku í ýmsum
verkalýðsmálum og stjómmálum. Hann man eftir því að hafa
fyllst aðdáun þegar hann sá ókvæðisorð eða skammaryrði sem
ætti að hrópa ef maður yrði á vegi þessara ítölsku flugmanna en
það vora eimitt þessi orð: „Abasso Balbo - abasso Mussolim".53
A þessum tíma var Pétur að vinna sem sendisveinn fyrir banka
og gafst honum eitt sinn tækifæri til að nota þessi orð þegar hann
var að sendast niður í Austurstræti. Þá sá hann konu sem hann
kannaðist við og var að tala við Itala. „Frábært tækifæri” hugsaði
Pétur um leið og hann öskraði „abasso Balbo - abasso Mussolini"
og svo hljóp hann! Það var ekki vegna hræðslu sem hann hljóp af
stað heldur var ástæðan sú að ef honum yrði náð myndi það líta
illa út gagnvart vinnunni. Þannig hélt Pétur hlaupununr áfram
með Italann á hælunum en tókst fljódega að sleppa þar sem hann
þekkti borgina vel.34
Þrátt fyrir að mótmælendur hafi kannski ekki verið
fjölmennir er ljóst að skiptar skoðanir vora um ágæti komu
Italanna til landsins. Alþýðublaðið, blað jafnaðarmanna birti einnig
38 SAGNIR